Mikil hitabrekka yfir landinu

Flestum mun ţykja fyrirsögnin heldur ankannanleg en ég vil frekar nota ţetta orđalag heldur en ađ segja ađ mikill hitastigull sé yfir landinu. Ég nota einnig orđiđ hitabratti yfir ţađ sama. Ţađ er mikil brekka í hitasviđinu, mikill munur er á hita á nćrliggjandi svćđum í lofthjúpnum. Oft fer mun betur á ţví ađ tala einfaldlega um hitamun milli stađa - ţađ fer eftir samhenginu hvort er heppilegra. Orđiđ hitastigull er ágćtt, en mér finnst ađ frekar eiga viđ lóđréttan hitamun - einkum niđur á viđ. En lítum nú á samhengiđ eins og ţađ birtist í HIRLAM-spá af flugveđurvef Veđurstofunnar. Hún gildir klukkan 9 ađ morgni laugardags 19. mars.

w-hirlam-fl17-190311-09

Kortiđ sýnir vind og hita, vindur er í hefđbundnum vindörvum, hvert heilt ţverstrik ţeirra táknar 5 m/s, svarta flaggiđ 25 m/s eđa 50 hnúta. Strikuđu línurnar sýna hita á fimm stiga bili. Kortiđ á viđ 500 til 600 metra hćđ yfir sjávarmáli. Fjólubláa strikalínan sýnir frostmark. Viđ sjáum ađ frostlaust er yfir Suđausturlandi, en -20 stiga línan liggur skammt undan Vestfjörđum. Í spánni er lćgđ yfir Norđausturlandi á mjög hrađri leiđ til norđausturs.

Auđvelt er ađ sjá af kortinu hvar hlýtt ađstreymi ríkir og hvar kalt. Vindörvarnar undan Austurlandi stefna nćrri hornrétt á frostmarkslínuna og auđvelt er ađ hugsa sér hana borna áfram í stefnu vindsins. Yfir landinu vestanverđu blása vindar undir 40 til 50 gráđu horni á jafnhitalínurnar. Ţar er ađstreymi af köldu lofti. Fyrir suđvestan land má sjá ađ vindar blása nćrri samsíđa frostmarkslínunni, úr norđaustri norđvestan hennar en úr suđvestri suđaustan viđ hana. Ţar gengur hvorki né rekur.

Ţegar ţetta er skrifađ er mjög kalt vestra, 11 stiga frost í Bolungarvík og 16 stig á Ţverfjalli í 750 metra hćđ ţar nćrri. Kaldara er á heiđum á Vestfjörđum heldur en á Miđhálendinu.   

Mikill vindstrengur í háloftunum ber nú hvert smákerfiđ á fćtur öđru yfir landiđ og erfitt er ađ fylgja ţeim eftir. Jafnhitalínurnar sveiflast lítillega til og frá en ekki nćgilega mikiđ til ađ gefa lćgđamyndun kraft ađ ráđi. Smásveiflurnar eru ţar ađ auki svo óvissar ađ mikill munur er á sólarhringsspám. Ţađ er ekki algengt núorđiđ. Vestfirđir virđast eiga ađ vera inni í kalda loftinu alla helgina, en suđvestanlands skiptast á hláka og frost ţegar tvćr til ţrjár smálćgđir berast yfir. Ţar á milli er allt í uppnámi.

Til umhugsunar fyrir áhugasama (ađrir beđnir velvirđingar): Ţótt hitabratti í kalda loftinu á kortinu sé mikill er ţar ekki mikill vindur, í hlýja loftinu er hins vegar lítill bratti og mikill vindur. En skapar mikill hitabratti ekki mikinn vind? Hvernig stendur ţá á hegđan vindsins í ţessu tilviki? Tryggir lesendur hungurdiska vita ađ hitamunur í ţeirri hćđ sem vindurinn blćs rćđur oftast litlu heldur rćđst ţrýstibrattinn af einhvers konar summu af hitaástandinu ofan viđ. Já, strangt tekiđ alveg upp til endimarka lofthjúpsins.

Vindurinn í hlýja loftinu á kortinu stafar af miklum hitabratta viđ veđrahvörfin og ţar um kring, ţar ólmast heimskautaröstin. Vindurinn í kalda loftinu er frekar lítill vegna ţess ađ sá mikli hitabratti í neđri hluta veđrahvolfsins sem viđ sjáum á kortinu vinnur gegn ţeim bratta sem ofar ríkir. Hyrfi sá síđarnefndi skyndilega á braut (ţađ gerist stundum í ţessari stöđu) fengi bratti dagsins í dag aldeilis ađ njóta sín sem norđaustanillviđri af ískyggilegri gerđ.

Nú er hins vegar stutt í suđvestanátt ofan viđ Vestfirđi og deyfir hún norđaustanáttina, andćtting sinn. Ţetta ástand vil ég kalla öfugsniđa. Ţegar háloftavindrastir eru á sveimi og brattar hitabrekkur sveiflast til í neđri lögum er rétt fyrir ţá sem eiga eitthvađ undir veđri ađ sýna fyrirhyggju međ ţví ađ fylgjast međ veđurspám.  

Jú, mér finnst fyrirsögnin ankannanleg, en ţannig er lífiđ. 


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurđur Ţór Guđjónsson

Út yfir tekur ankannanleikann ţegar mildur vetur tekur upp á ţví ađ breytast í vetrarríki á síđasta sprettinum. Ţađ er hreinlega afkáralegt!

Sigurđur Ţór Guđjónsson, 19.3.2011 kl. 11:13

2 identicon

.........."mey skal ađ morgni lofa"  og hafa hugfast ađ íslenskt vor er oft seint

á ferđinni og trakterar veislugesti  aukinheldur međ ţetta og ţetta mörgum hretum í desert.

Í framhaldi af ţví sem Trausti segir hér ađ framan , ţá vildi ég til gamans geta, ađ ég keyrđi frá Hvolsvelli í dag um hádegi og ţá var ţar 3C hiti, en á heimleiđinni (sem er ađeins 100 km. vegur )  . féll hitinn nokkurnveginn línulega niđur í -3 C . 

Kennslustund í verklegri veđurfrćđi. Hitamunur  lárétt 6C!!. Aldrei kynnst slíku!

                                                                                  Óli Hilmar Briem

óli Hilmar Briem Jónsson (IP-tala skráđ) 19.3.2011 kl. 16:07

3 Smámynd: Trausti Jónsson

Ţađ er rétt ađ viđbrigđi eru viđ vetrarkastiđ, ég lenti sjálfur í glórulausri hríđ og manndrápshálku í gćr (föstudag), Mér sýnist ađ hitinn í Reykjavík sé nú um 2 stig undir međallagi og meir en ţrjú stig undir međalhita í mars síđustu 10 ára. Heldur mildara hefur veriđ austanlands.

Trausti Jónsson, 19.3.2011 kl. 19:02

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Um bloggiđ

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veđurfrćđingur og áhugamađur um veđur.

Fćrsluflokkar

Apríl 2024
S M Ţ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • w-blogg230424
  • Slide10
  • Slide8
  • Slide6
  • Slide5

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.4.): 222
  • Sl. sólarhring: 252
  • Sl. viku: 2047
  • Frá upphafi: 2350783

Annađ

  • Innlit í dag: 204
  • Innlit sl. viku: 1832
  • Gestir í dag: 198
  • IP-tölur í dag: 197

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri fćrslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband