30.1.2011 | 00:14
Hefur langtímahlýnun verið mismunandi eftir landshlutum?
Þótt hiti á landinu sveiflist í öllum aðalatriðum í takt frá ári til árs má engu að síður sjá tímabilabundnar breytingar. Segja má að halli hitasviðsins breytist. Ég hef komið mér upp fáeinum mælitölum til að fylgjast með þessu. Breytileiki sumra talnanna er raunar lítill og óvíst hversu marktækur hann er. En greinilegastur er sá breytileiki sem kemur fram í mun hita við suður- og norðurströndina. Hann mæli ég með mismun ársmeðalhita í Vestmannaeyjum og í Grímsey. Mæliröðin nær aftur til 1878.
Fyrstu árin eru lengst til vinstri á myndinni en þau nýliðnu eru lengst til hægri. Sá má að fyrir 1920 eru gríðarlegar sveiflur milli ára og meðaltalið er hátt. Um 1920 varð mikil breyting og varð munurinn sérlega lítill á árunum um og fyrir 1960. Þar á eftir hrökk munurinn upp í svipaðar hæðir og hann var fyrir 1920 en jafnaði sig frá og með 1972. Í heildina hefur lítið breyst síðan.
Mestur var munurinn 1881 (frostaveturinn mikla), nærri 5 stig og litlu minni 1882 (sumarlausa árið á Norðurlandi). Sveiflurnar eru nátengdar hafísmagni fyrir norðan land. Sjávarhiti er lægri þegar ís er við land, en enn mikilvægara er að norðanáttin er umtalsvert kaldari en annars þegar ísmagn er mikið. Hafísárin 1965 til 1971 eru sérstaklega skýr. Hér sést vel að áratugasveiflur þær sem einkenna svo mjög veðurfar á Íslandi koma meðal annars fram í miklum breytileika hitasviðsins yfir landinu í stefnuna norður-suður.
En við sjáum líka að heldur meira hefur hlýnað í Grímsey heldur en í Vestmannaeyjum þegar litið er á 130 árin í heild.
Minnstur var munurinn 1984, þá voru suðvestlægar- og suðlægar áttir óvenjutíðar, tiltölulega kalt var þá í Vestmannaeyjum en hlýtt í Grímsey. Eitt af þessum ótrúlegu árum sem gefa krydd í tilveruna.
En hvernig hefur munur á hita á Suðausturlandi og á Vestfjörðum þróast? Það sjáum við líka á mynd.
Röðin nær aftur til 1898. Miklir flutningar stöðva á norðanverðum Vestfjörðum valda nokkurri óvissu. En flutninganna sér ekki stað á myndinni - alla vega ekki greinilega. Lágar tölur þýða að hitamunurinn er lítill, þá er tiltölulega hlýtt á Vestfjörðum miðað við Suðausturland. Við sjáum nokkra tímabilaskiptingu. Munurinn er fremur lítill á tímanum 1925 til 1950 vex síðan, en minnkar svo aftur um árið 2000. Kuldar hafísáranna voru öllu meiri á Vestfjörðum en suðaustanlands en langtímahneigð er lítil eða engin.
Á árunum 1980 til 2000 hlýnaði mun meira í Evrópu heldur en hér á landi og á Grænlandi kólnaði mestallt þetta tímabil. Hitamunur óx þá milli Evrópu og Grænlands. Á sama tíma jókst hitamunur í sömu stefnu (suðaustur til norðvesturs) líka hér á landi.
Á síðustu árum hefur þessi munur jafnast og meira hefur hlýnað á Vesturlandi heldur en á Austurlandi. Óvenjuleg hlýindi hafa verið á Grænlandi nýliðinn áratug, meiri heldur en í Evrópu. Ekki er þó alveg trúlegt að sú stutta vegalengd sem er á milli stöðvanna tveggja hér finni ætíð hneigðarmun Evrópu og Grænlands.
Mælitölur hitasviðsins eru fleiri en ég held ég láti þessi dæmi duga - að minnsta kosti að sinni.
Flokkur: Vísindi og fræði | Facebook
Um bloggið
Hungurdiskar
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (25.11.): 2
- Sl. sólarhring: 434
- Sl. viku: 2545
- Frá upphafi: 2414400
Annað
- Innlit í dag: 2
- Innlit sl. viku: 2366
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.