Síðasta blogg um kuldapollinn Snarp 3

Snarpur 3. lifir enn á sinni leið milli Vestfjarða og Grænlands, en mun hverfa að mestu til morguns. Bæði hlýnar hann að neðan af völdum sjávar en þegar hann þykknar rifnar hann um síðir í sundur. Smálægðirnar sem mynduðust urðu að minnsta kosti þrjár. Ég hef kosið að sýna þær í skýja- og þrýstispá Hirlam-líkansins (af brunni Veðurstofunnar). Spáin var gangsett með athugunum kl.18 í kvöld og myndin sýnir þriggja tíma spána - sem gildir kl.21 í kvöld.

hirlam-sky-090111-18-21spa

Ég hef merkt smálægðirnar þrjár inn á kortið með L-um. Græni liturinn táknar háský, sá rauði miðský og sá blái lágský. Lægðin fyrir austan land náði að búa til mikla norðvestankófhríð um norðaustanvert landið. Hríðin ætti nú að vera að ganga niður. Annar bakki þessu lítt tengdur gæti komið að Norðurlandi á morgun.

Lægðin vestsuðvestur af Reykjanesi er sú sem líkanið vildi láta myndast yfir Húnaflóa í nótt, en myndaðist í raun og veru vestur af Breiðafirði. Hún náði þó að valda talsverðri snjókomu á Vestfjörðum síðastliðna nótt og langt fram eftir degi í dag. Í vindstrengnum vestan við lægðina er vindur um 25 m/s. Landið slapp við það versta en vindur var þó í 20 m/s víða á Vestfirskum heiðum í dag og sjálfsagt víðar.

Nú er þriðja lægðin, sú sem er suður af Reykjanesi á kortinu einna gerðarlegust og étur sennilega þá fyrri til morguns, snýst í smáhringi - fer síðan til austurs og hverfur. Hún gæti enn valdið úrkomu syðst á landinu og sömuleiðis er óvissa með sameiningu lægðanna. Þótt snjókoma suðvestanlands af völdum þessara lægða virðist ólíkleg í augnablikinu (kl.22) er ekki hægt að afskrifa möguleikann.

Lýkur nú frásögn af Snarpi hinum þriðja. Snarpur fjórði er til norðan Grænlands, en hann er ekki eins vel skapaður og fyrirrennarar hans - hvað sem síðar verður. Ekki er víst að nokkrar fréttir af honum verði hér á blogginu. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Frétti í gær frá togurum, sem voru að veiðum djúpt vestur af Snæfellsnesi að þar væri ekki veiðiveður lengur og sigldu skipin í suðurátt. Þessi sömu skip voru búin að bíða af sér versta veðrið á föstudag inni á Dýrafirði.

Þorkell Guðbrandsson (IP-tala skráð) 10.1.2011 kl. 08:22

2 Smámynd: Guðjón Emil Arngrímsson

Mig langar til þess að spyrja Trausta, hvort hann hafi einhverja veðurfarslega skýringu á fugladauða sem var í fréttum í síðustu viku. Getur það verið að það séu til ofurkaldir pollar í lægri loftlögum, sem fuglarnir fljúga inní, og þeir hreinlega frjósi til dauða?

Guðjón Emil Arngrímsson, 10.1.2011 kl. 09:29

3 Smámynd: Georg P Sveinbjörnsson

Hef fylgst miðið með veðurspám Weather Acttion, sérstaklega langtímaspánum og veðuröfgaspám, en þær standast ótrúlega vel hjá þeim og láta opinberar veðurstofur heimsins líta stundum út eins og viðvaninga. Spáðu kuldumum á Englandi þó allir aðrir spáðu mildum vetri, spáðu fyrir um stórhríðina á austurströnd Bandaríkjanna þvert á aðra og það stóðst upp á dag, aðrir sáu hana ekki fyrir fyrr en sólahring áður en hún skall á og lítið um viðbúnað þessvegna. Áræðanlegar langtíma veður og loftlagsspár geta gert gæfumuninn og bjargað mannslífum. Þrátt fyrir þessa mögnuðu nákvæmni í langtímaspánum sínum virðast menn ekki alveg á því að notast við þessar greinilega afar áræðanlegu aðferðir sem Piers Corbyn og félagar hjá weatheraction.com brúka. Hefðbundnir veðurfræðingar og veðurstofur líta ekki sérlega vel út í samanburðinum svo ekki sé meira sagt.

Where is Weather, Climate and the Climate Change Con going?
5 new videos from Piers Corbyn 
taken on 6th Jan 2010 at WeatherAction Office, London Bridge.

The 5 videos produced by MORRIS HERMAN as they come out are listed - 

1. How Piers became a forecaster 

2. 'Cooling is Warming' is a CON! 

3. Fundamental solar-lunar driven changes in weather patterns have begun 

4. A failed Fiddling weather & Climate industry  

5. Jet Stream & Gulf stream dynamics & Jet Stream "freezing" & "blocking"

Georg P Sveinbjörnsson, 10.1.2011 kl. 18:29

4 Smámynd: Trausti Jónsson

Guðjón. Ég veit ekkert um fugladauðann, en fannst líkleg fyrsta skýringin sem heyrðist - sú að fuglahópur hefði lent í uppstreymi í þrumuskýi - sú rússibanareið upp í 60 stiga frost frystir þá til bana. En ég veit auðvitað ekki neitt um aðstæður á þessum stöðum. Það hlýtur að koma í ljós um síðir hvað veldur.

Georg. Gallinn við Piers Corbyn er sá að hann hefur aldrei fengist til að birta neitt um aðferðafræði sína og helst ekki spárnar heldur nema til aðila sem greiða fyrir þær. Viðskiptavinirnir segja ekkert heldur. Ég hef ekki fylgst kerfisbundið með spám hans en ég veit þó til þess að þær eru stundum réttar - trúlega oftar en mínar. Auðvitað eiga þeir sem vilja borga að fá að gera það - ef þeir eru mjög óánægðir hljóta þeir að hætta.

Trausti Jónsson, 10.1.2011 kl. 23:42

5 Smámynd: Guðjón Emil Arngrímsson

Takk fyrir þetta Trausti. Mér finnst þetta líka líklegt hvernig sem það nú gerðist. Allavega vonar maður að þetta hafi náttúrulegar skýringar. Það væri hið versta mál ef fuglarnir hafa lent í eitruðum polli þarna uppi. Svosem möguleiki.

Kveðja.

G.

Guðjón Emil Arngrímsson, 11.1.2011 kl. 09:45

6 Smámynd: Sveinn Atli Gunnarsson

Málið með hann Piers Corbyn er að það er eins og Trausti segir, ekki hægt að vita hvaða aðferðafræði hann notar. Það litla sem ég hef skoðað varðandi hans nálgun er að það virðist vera orðum aukið varðandi spáhæfileika hans, en gert einstaklega mikið úr því þegar hann hittir á eitthvað sem virðist um tíma vera rétt, t.d. hann spáir hörðum vetri, það verður kalt um tíma - spáin er túlkuð á þann hátt að hún gangi eftir (þó svo veturinn sé ný byrjaður), fyrir utan svo þau skipti sem hann spáir bara vitlaust og við fréttum ekki af því...

Hitt er svo annað mál að MetOffice gefur ekki út sérstakar langtíma spár fyrir allan veturinn (eins og fram hefur komið í sumum "fréttum" og bloggum þar sem spáhæfileikum Corbyns er hælt í hástert), heldur gera þeir bara spár frá mánuði til mánaðar eins og kemur fram í fréttatilkynningu frá þeim, Winter forecast?.

Sveinn Atli Gunnarsson, 11.1.2011 kl. 10:55

7 Smámynd: Georg P Sveinbjörnsson

Ég bíð samt spenntur eftir 100 ára spánni þeirra...ef ég þá tími að borga fyrir hana!

Georg P Sveinbjörnsson, 12.1.2011 kl. 22:30

8 Smámynd: Trausti Jónsson

Já, Georg, einhverjir hljóta að geta borgað fyrir hana (og eru e.t.v. búnir að því).

Trausti Jónsson, 13.1.2011 kl. 00:24

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veðurfræðingur og áhugamaður um veður.

Færsluflokkar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • w-blogg230424
  • Slide10
  • Slide8
  • Slide6
  • Slide5

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.4.): 6
  • Sl. sólarhring: 68
  • Sl. viku: 1604
  • Frá upphafi: 2350881

Annað

  • Innlit í dag: 6
  • Innlit sl. viku: 1403
  • Gestir í dag: 6
  • IP-tölur í dag: 6

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband