29.12.2010 | 23:37
Óvenjulegir veðurþættir eru óvenjulegir í ár
Í gær var fjallað um loftþrýstimetið. Ársmeðalhitinn og ársúrkoman er að verða skýr, hvoru tveggja óvenjulegt á Suður- og Vesturlandi, en ekki er alveg um met að ræða. Í hvaða sæti árið lendir í árangursröðinni fyrir þessa veðurþætti er enn ekki alveg ljóst, svo glöggt stendur keppnin.
Ætli sé ekki hægt að segja að árið hafi verið það snjóléttasta sem vitað er um hér í Reykjavík. Þegar um slík met er að ræða er eins gott að athuga skrárnar vel í leit að villum. Svo virðist sem árið sé eitt hið hægviðrasamasta um áratuga skeið. Þar sem vindhraðamælingar einstakra stöðva eru fullar af ósamfellum er best að nota landsmeðaltal. Við bíðum eftir því. Óþægilegar kvarðabreytingar hafa verið gerðar vindstiganum í gegnum tíðina þannig að erfitt er að fara lengra aftur en 1949 í samanburði - að sinni.
Þess vegna hefur staðið leit að veðurþáttum sem gætu gefið óbeint mat á meðalvindhraða. Ég hef ritað um sérstaka aðferð í erlend tímarit sem mér sýnist vænleg hér á landi. Samstarfsmenn mínir í nágrannalöndum hafa einnig um þetta skrifað en eru kannski ekki alveg trúaðir.
Aðferðin sem hér um ræðir er útreikningur á daglegum breytileika þrýstings, einfaldlega með því að finna mun á þrýstingi í dag og í gær. Þá er hægt að ganga í þrýstiröðina löngu sem gerð var í tengslum við nao-fárið mikla sem minnst var á í síðasta pistli. En um breytileikann var ritað löngu síðar. Ég reikna hann alltaf samviskusamlega út á hverju ári.
Í ár bregður svo við að vísitalan er lægri en oftast áður (í samræmi við lágan vindhraða), á síðari áratugum er það einungis árið 1960 sem á svipaða tölu. Það ár og gæði þess muna auðvitað öll forn veðurnörd.
Árið 1985 er ekki mjög langt undan og einnig 1941 en síðan þarf að fara allt aftur fyrir um 1860 til að finna ámóta. Rétt er að taka fram að lágu gildin 1837 og 1838 eru grunsamleg, en ég hef þó ekki fundið neina sérstaka galla í gögnunum.
Reikna má breytileikavísitölu hitans á sama hátt og hef ég notað morgunathugun í Stykkishólmi allt frá 1846 til þessa dags.
Í ljós kemur að síðustu tvö ár (2009 og 2010) skera sig nokkuð úr ásamt reyndar 1985 og 1987. Hitabreytileiki frá degi til dags er óvenju lítill þessi árin. Síðan þarf að fara aftur til 1851 til að finna ámóta. Mikla athygli vekur hvað hafísárin og sá kuldi sem fylgdi í kjölfar þeirra kemur vel fram á línuritinu og sömuleiðis ísatímabilið fyrir 1920. Árin kringum 1850 eru tiltölulega lág enda var ís þá minni en síðar varð (og áður).
Úrkomu- og snjólagsvísitölur af ýmsu tagi er ekki hægt að reikna fyrr en undir vor að upplýsingar frá veðurstöðvum hafa fengið gátmeðferð (?). Fleira skýrist einnig síðar, t.d illviðratalningar og vindáttafrábrigði.
Greinar:
Jones, P.D., T. Jónsson, and D. Wheeler, (1997) Extension to the North Atlantic Oscillation using early instrumental pressure observations from Gibraltar and South-West Iceland, International J. of Climatology Vol.17, 1433-1450
Jónsson, T. and E. Hanna (2007) A new day-to-day pressure variability index as a proxy of Icelandic storminess and complement to the North Atlantic Oscillation index 18232005. Meteorologische Zeitschrift, Vol. 16, No. 1, 025-036
Hanna, E., J. Cappelen, R.Allan, T. Jónsson, F. Le Blancq, T. Lillington and K. Hickey, (2008): New Insights into North European and North Atlantic Surface Pressure Variability, Storminess, and Related Climatic Change since 1830. J. Climate 21, pp. 67396766. DOI: 10.1175/2008JCLI2296.1
Flokkur: Vísindi og fræði | Breytt s.d. kl. 23:48 | Facebook
Um bloggið
Hungurdiskar
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.12.): 20
- Sl. sólarhring: 214
- Sl. viku: 985
- Frá upphafi: 2420869
Annað
- Innlit í dag: 15
- Innlit sl. viku: 864
- Gestir í dag: 15
- IP-tölur í dag: 15
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Desember 2024
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.