15.11.2010 | 00:13
Gamalt lágþrýstimet í nóvember
Lágþrýstimet nóvember er orðið ansi gamalt, elst mánaðalágþrýstimetanna, frá 18. nóvember 1883. Það er aðeins hærra en þrýstimet október, 940,7 hPa en sett á sama stað, í Vestmannaeyjum. Ég er að vísu ekki alveg rólegur yfir tölunni. Hugsanlegt er að ofan á hana vanti svokallaða þyngdarleiðréttingu en hún er um 1,4 hPa. Vonandi upplýsist um það síðar.
Kortið er úr tölvuiðrum í Ameríku (20thC Reanalysis v2/NOAA/ESRL). Það gengur kraftaverki næst að tekist hefur að endurskapa loftþrýsting yfir Norður-Atlantshafi þennan dag, kortið gildir kl.18. Línurnar sýna hæð 1000 hPa flatarins í stað þrýstingsins sjálfs, á 40 metra bili, en 40 metrar eru jafngildir 5 hPa. Hæð 1000 hPa flatarins í lægðarmiðju er -480 metrar og jafngildir það 940 hPa sjávarmálsþrýstingi.
Ekki er ótrúlegt að lægðin hafi í raun og veru verið dýpri. Endurgreiningin er ekki gerð nema með 2x2 gráða upplausn og smáatriði eins og krappar miðjur lægða týnast oftast. Lægðin grynntist ört og fór til norðausturs fyrir suðaustan land. Líklegt er að úrkoma hafi þá verið mikil norðaustan- og austanlands. Nokkrir tugir mm mældust á Teigarhorni og þar gerði norðan storm þann 19. Á undan skilum lægðarinnar var stormur eða rok af austri og norðaustri víða um land.
Oft er hætta á tjóni þegar lægðir eins og þessi fara hjá. Tjón samfara þessari lægð er þó ekki alveg á hreinu. Í Suðurnesjaannál segir:
Brim gerði mikið á útsunnan 17. nóv. með fjarska miklu flóði í hálfsmækkuðum straumi, sem svo mikið kvað að, að allan túngarðinn braut fyrir Útskálatúni, Lónshúsa og Lambastað og hefur ekki í annan tíma meri að orðið. Mikið braut og upp á tún suður á nesi.
Mánuði síðar, 18. desember gerði mikið sjávarflóð víða um vestanvert landið, frá Suðurnesjum og vestur á firði. Trúlega er hér um einhvern dagarugling að ræða. Einkennilegt er að í Vestfirskum slysadögum er getið um mikið flóð á Flateyri 20. og 23. nóvember. Svo vill til að veðurathuganir voru á Flateyri á þessum tíma, þar fréttist ekki af neinu flóði - fyrr en 18. desember að gerði eitthvert versta sjávarflóð sem vitað er um á Flateyri. Veðurathugunarmaður lýsir því.
Mjög líklegt er að sjávarflóð hafi orðið við suðurströndina samfara lægðinni djúpu og því einhvern veginn slegið saman við flóðið mánuði síðar. Veðrið þann 18. nóvember var hins vegar ekki af útsuðri eins og lýst Suðurnesjaannáll greinir. Hér er einhver maðkur í mysu og vel má vera að með ítarlegri rannsókn megi greina flóðaatburði nóvember og desember betur að.
Flokkur: Vísindi og fræði | Facebook
Um bloggið
Hungurdiskar
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.12.): 79
- Sl. sólarhring: 228
- Sl. viku: 1044
- Frá upphafi: 2420928
Annað
- Innlit í dag: 72
- Innlit sl. viku: 921
- Gestir í dag: 72
- IP-tölur í dag: 71
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Desember 2024
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
Athugasemdir
Og nú er hægt að skoða kortin alveg til 1871, kalda veturinn 1881 og allt!
Sigurður Þór Guðjónsson, 15.11.2010 kl. 18:09
Já, já, en sum kortin eru býsna vitlaus. Fyrir 1874 eru t.d. engar upplýsingar frá Íslandi notaðar við gerð kortanna og villur eru því mjög stórar. Sömuleiðis er tímabilið 1874 til 1880 áberandi verra heldur en árin milli 1881 og 1890. Þannig komast t.d. sum illviðri frostavetursins mikla 1880-1881 illa til skila og sömuleiðis vantar nokkuð upp á afl frostavetursins 1918. En kortin eru samt mikið kraftaverk. Nú er verið að setja ný gögn inn í líkanið, en mest í öðrum heimshlutum. Ef þau verða keyrð inn strax er óvíst hversu mikið ástandið batnar hjá okkur þótt það batni annars staðar.
Trausti Jónsson, 15.11.2010 kl. 18:22
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.