Snjóamet í nóvember

Nú hefur snjóað mikið sums staðar austan Tröllaskaga og talsverður snjór er norðantil á Vestfjörðum. Snjódýptin var talin 60 cm á Akureyri á laugardagsmorgni og vísast að hún verði orðin meiri á sunnudag. Snjódýpt er mæld einu sinni á dag, kl.9 að morgni. Snjódýptarmet Akureyrar í nóvember er 70 cm, frá 22. degi mánaðarins 1972. Íslandsmetið, 155 cm var sett sama dag á Sandhaugum í Bárðardal. Langt er í það met, en stutt í Akureyrarmetið.

Snjódýptarmælingar eru erfiðar víða á landinu, sérstaklega þar sem mikil hreyfing er á snjó. Snjódýpt hefur verið mæld á fáeinum stöðvum frá því um miðjan þriðja áratuginn, en voru heldur slitróttar fram undir 1964. Fyrir 1965 vantar auk þess nokkuð af mælingum í tölvugagnagrunn Veðurstofunnar en vonandi verður það sem út af stendur sett þar inn um síðir.

Skráin sem hér fylgir sýnir mestu snjódýpt í nóvember á öllum veðurstöðvum landsins. Fyrst er tafla sem nær aftur til 1961 en neðar í skjalinu er tafla með hæstu tölur fram til þess tíma. Líklegt er að villur leynist í skránni og væri gott að frétta af því frá eftirtektarsömum lesendum.

Mesta snjódýpt í Reykjavík í nóvember mældist 24. dag mánaðarins 1978. Snjókoman þá og dagana á undan er mjög minnisstæð enda féll snjórinn í nokkrum óvenjulegum og kröppum smálægðum sem gengu yfir landið hver á fætur annarri. Á erlendum málum kallast smálægðir af þessu tagi pólarlægðir og það nafn gengur svosem á íslensku þar til betra finnst. Myndir af nóvemberlægðunum 1978 rötuðu meira að segja í erlend veðurfræðitímarit.

Afrit af þessum myndum eru einhvers staðar í hrúgunni hjá mér. Ég hafði ekki miklar áhyggjur af velferð þeirra þar sem þær voru síaðgengilegar á vef Dundee-gervihnattamóttökunnar, en nú eru þær ekki þar lengur enda er engu að treysta í varðveislumálum eins og flestir vonandi vita. En vonandi að Dundee hressist. Vel má einnig vera að ég finni myndirnar hjá sjálfum mér og gæti þá sýnt þær hér á blogginu.


Skrár tengdar þessari bloggfærslu:

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Það er gaman að skoða þessa töflu. Ég man vel eftir 24. nóv. ´78 í Reykjavík. Ég man hvaða bíl ég átti og brasið sem ég lenti í þennan dag, skammt frá Menntaskólanum við Hamrahlíð.

Það er athyglisvert að nóvembermetið á Flateyri er aðeins 18 cm. Örskammt frá, í beinni loftlínu er Suðureyri með 80 cm.!

Gunnar Th. Gunnarsson, 14.11.2010 kl. 23:23

2 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Sömu sögu má segja um Eskifjörð, með 10 cm. og Reyðarfjörð, (Kollaleira) með 35 cm., en varla er meira en 8 km. á milli staðanna.

Gunnar Th. Gunnarsson, 14.11.2010 kl. 23:27

3 Smámynd: Trausti Jónsson

Athuganir voru mjög skammvinnar bæði á Flateyri og á Eskifirði. Í töflunni má sjá að Flateyri athugaði aðeins haustið 1980 og á Eskifirði var aðeins athugað í rúm 2 ár (1990 til 1992(. Suðureyri athugaði hins vegar frá 1924 til 1989 eða í 65 ár og Kollaleira í 30 ár. Í neðri töflunni (fyrir 1961) má sjá að einu sinni hafa mælst 100 cm á Suðureyri í nóvember. Það var þann 25. 1947. Það var því álitamál hvort þessar „stuttu“ stöðvar ættu að fá aðgang að töflunni, en ég ákvað að hleypa þeim með til gamans.

Trausti Jónsson, 15.11.2010 kl. 00:24

4 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Takk fyrir þetta, tók ekki eftir þessu.

Gunnar Th. Gunnarsson, 15.11.2010 kl. 00:39

5 Smámynd: Einar Sveinbjörnsson

Trausti !

1978 er fyrsta árið sem tunglmyndir, þ.e. hitamyndir urðu aðgengilegar. Í safni Dundee eru allmargar myndir frá þessum mánuði, en líka eyður.  Sjá má á kortum þessa daga þarna um 20. nóvember að hringrásin fyrir vestan landið var um margt sérstök.  Ákveðin vestanvindur í háloftum og loftið áberandi kalt úr vestri.  Kjöraðstæður fyrir pólarlægðir af Grænlandshafi.  Maður tengir slíkar frekar við útmánuði, en eins og greinilegt hefur verið síðustu vikuna eða svo að tiltölulega hlýr sjórinn að haustinu eða öllu heldur síðla haustsins m.t.t. lofthitans getur skapað svipað aðstæður, þó svo að heimskautaloftið sé ekki alveg jafn kalt og þar verður gjarnan síðla vetrarins.     

ESv

Einar Sveinbjörnsson, 15.11.2010 kl. 01:20

6 Smámynd: Trausti Jónsson

Þakka þér fyrir Einar. Varðandi safnið í Dundee - þá voru fyrir fáeinum árum talsvert fleiri myndir frá nóvember 1978 í því heldur en nú - ég veit ekki hvað hefur gerst hjá þeim. M.a. voru fínar myndir sem sýndu lægðirnar smáu. Ég afritaði einhverjar þeirra og finn vonandi um síðir. Myndirnar sem birtust hjá Erik Rasmussen í Journal of Atmospheric Researsh eru varla til afritunar en greinin var stefnumótandi á sínum tíma og sömuleiðis deilurnar sem hann lenti í við Reed um skilgreiningu og eðli pólarlægða.

Trausti Jónsson, 15.11.2010 kl. 01:56

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veðurfræðingur og áhugamaður um veður.

Færsluflokkar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • w-blogg230424
  • Slide10
  • Slide8
  • Slide6
  • Slide5

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (24.4.): 411
  • Sl. sólarhring: 425
  • Sl. viku: 1727
  • Frá upphafi: 2350196

Annað

  • Innlit í dag: 371
  • Innlit sl. viku: 1574
  • Gestir í dag: 361
  • IP-tölur í dag: 349

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband