Færsluflokkur: Vísindi og fræði

Fyrri hluti maímánaðar

Meðalhiti fyrstu 15 daga maímánaðar er +5,4 stig í Reykjavík, -0,4 stigum neðan meðallags áranna 1991 til 2020, en í meðallagi síðustu tíu ára. Hitinn raðast í 13. hlýjasta sæti (af 22) á öldinni. Hlýjast var 2008, meðalhiti 8,3 stig, en kaldast 2015, meðalhiti 2,8 stig. Á langa listanum raðast hitinn í 71. sæti (af 148). Hlýjastur var fyrri hluti maí 1960, meðalhiti þá 9,4 stig, en kaldastur var hann 1979, meðalhiti +0,3 stig.

Á Akureyri er meðalhiti fyrri hluta maímánaðar 3,8 stig, -1,4 stigum neðan meðallags 1991-2020, en -0,7 stigum neðan meðallags síðustu tíu ára.

Að tiltölu hefur verið kaldast við Breiðafjörð og á Vestfjörðum, þar raðast hitinn í 20. hlýjasta sæti á öldinni (þriðjakaldasta), en hlýjast hefur verið á Suðurlandi þar sem hitinn raðast í 10. hlýjasta sætið.

Jákvæð hitavik, miðað við síðustu tíu ár eru mest undir Eyjafjöllum, +1,2 stig á Steinum og í Önundarhorni. Neikvæð vik eru mest á Vestfjörðum, -1,5 stig á Klettshálsi og -1,4 í Bolungarvík.

Úrkoma í Reykjavík hefur mælst 24,8 mm og er það í meðallagi. Á Akureyri hefur úrkoman mælst 30,5 mm, meir en tvöföld meðalúrkoma sömu daga.

Sólskinsstundir hafa mælst 106,9 í Reykjavík og er það í meðallagi. Á Akureyri hafa sólskinsstundirnar mælst 54,6, 23 stundum færri en í meðalári.


Fyrstu tíu dagar maímánaðar

Meðalhiti fyrstu 10 daga maímánaðar er +5,6 stig í Reykjavík, í meðallagi sömu daga árin 1991 til 2020, en +0,9 stigum ofan meðallags síðustu tíu ára. Hitinn raðast í tíundahlýjasta sæti (af 22) á öldinni. Hlýjastir voru þessir dagar árið 2011, meðalhiti þá +8,6 stig. Kaldastir voru þeir 2015, meðalhiti +1,7 stig. Á langa listanum er hitinn í 64. sæti (af 148). Hlýjast var þessa daga árið 1939, meðalhiti +9,1 stig, en kaldast 1979, meðalhiti -1,0 stig.

Á Akureyri er meðalhiti fyrstu tíu daga maí 3,8 stig. Það er -1,1 stigi neðan meðallags 1991 til 2020 og -0,3 neðan meðallags síðustu tíu ára.

Röðunarstaða er nokkuð misjöfn eftir landshlutum. Á Suðaustur- og Suðurlandi eru dagarnir tíu þeir 8. hlýjustu á öldinni, en á Vestfjörðum er hitinn í 18. hlýjasta sæti (5. kaldasta).

Jákvæða vikið er mest við Skarðsfjöruvita, hiti +2,1 stigi ofan meðallags síðustu tíu ára. Kaldast, að tiltölu, hefur hins vegar verið á Þverfjalli (nærri Bolungarvík), þar hefur hiti verið -1,3 stigum neðan meðallags síðustu tíu ára.

Úrkoma hefur mælst 20,9 mm í Reykjavík og er það í ríflegu meðallagi. Á Akureyri hefur úrkoman mælst 22,3 mm og er það nærri þrefalt meðallag.

Sólskinsstundir hafa mælst 59,1 í Reykjavík, í rétt tæpu meðallagi, en á Akureyri hafa sólskinsstundirnar mælst 39, 9 stundum færri en í meðalári.


Hugsað til ársins 1967

Hér er hugsað til ársins 1967. Ritstjóri hungurdiska hafði þá fylgst náið með veðri í ein sex ár. Honum fannst veðurlag þessa árs lausara í sniðum en verið hafði árin á undan, minni þráviðri, meiri tilbreyting. Þótt sumarið geti ekki talist hlýtt á síðari tíma vísu er það samt allgott í minningunni. Við lestur blaða og annarra heimilda rifjast samgönguvandræði og vondir vegir þessara ára mjög upp. Eins það að vandræði af völdum flóða eru áberandi, fannburður í þær með tilheyrandi krapa og klakastíflum - og síðan leysingar voru fylgifiskar kaldrar umhleypingatíðar. Stafsetning er færð til nútímahorfs að mestu. 

Menn töldu tíðarfar á árinu 1967 óhagstætt lengst af. Sumarið fékk þó góða dóma syðra. Janúar var óhagstæður framan af, en batnaði síðan. Mjög umhleypingasamt var í febrúar og gæftir stirðar, en tíð þó talin fremur hagstæð til landsins. Í mars var tíð mjög óhagstæð og kalt var í veðri, snjóþyngsli voru mikil og færð erfið. Kuldi og gróðurleysi ríktu í apríl. Maí var sólríkur syðra, en kalt var í veðri og mjög dauf tíð nyrðra. Júní var líka talinn óhagstæður. Kal kom fram í túnum. Tíð var hagstæð í júlí og langt fram eftir ágúst á Suður- og Vesturlandi, en óhagstæð nyrðra og grasvöxtur lítill. Í september var tíð hagstæð, sérstaklega á Norður- og Austurlandi. Rysjótt tíð var norðaustanlands í október, en hagstæð tíð syðra. Nóvember var stormasamur, gæftir slæmar og snjór í meira lagi, svipað tíðarfar hélst fram í desember. 

Ýmislegt minnisstætt gerðist í veðri á árinu. Hafís var viðloðandi við land allt fram á sumar, en þó í talsvert minna magni heldur en 1965 og aftur næstu ár á eftir. Vindur mátti vart snúast til norðlægrar áttar án þess að frost yrðu mjög hörð. Sé blöðunum flett eru þar stöðugar fréttir af ófærð og samgönguerfiðleikum. Morgunblaðið segir frá slíku strax í upphafi árs, þann 3.janúar:

Mikil ófœrð á Vestfjörðum, ... en þar lokaðist allt á gamlársdag. Þó er fært frá Ísafirði að flugvellinum, og unnið að mokstri frá kaupstaðnum til Bolungavíkur. Í Skagafirði, Eyjafirði og Þingeyjarsýslu er sama ástand og á Austfjörðum, alls staðar gífurlegt fannkyngi og ófærð, og vart fært nokkurs staðar.

Ritstjóri hungurdiska var um þessar mundir við nám á Akureyri og til að komast norður varð að fljúga. Það var í fyrsta sinn á ævinni að hann kom upp í flugvél. Í það skipti var flogið með DC-6 vél, sem var ekki það algengasta. Þann annan janúar voru ákveðin vandræði í flugi. Tíminn segir frá þann 4.:

KJ;Reykjavík, þriðjudag. Óvenjulega mikil þoka lagðist yfir Reykjavík og nágrenni um miðjan dag í gær [mánudag 2.], og þéttist stöðugt eftir því sem á daginn leið. Olli þokan miklum truflunum á flugsamgöngum, og urðu flugvélar að snúa frá flugvöllunum í Reykjavík og Keflavík, bæði í millilanda og innanlandsflugi. Þokan mun hafa verið einna þéttust um miðnættið hér í Reykjavík, og hafði þau áhrif á umferðina að ökumenn fóru sér hægar, enda skyggni slæmt, og ökumenn óvanir slíkum aðstæðum á götum borgarinnar. Það sem olli þokunni voru hitaskil [hitahvörf köllum við það nú] í lítilli hæð yfir jörðu, en rakt loft hafði borist inn yfir landið sunnan af sjónum. Úr lofti að sjá virtist ekki um mikla þoku að ræða, að minnsta kosti skartaði Reykjavík sínu fegursta þegar landhelgisgæsluflugvélin Sif flaug yfir með blaðamenn, en eftir lendingu kom í ljós að skyggni á jörðu niðri var mjög slæmt, og einkennilegt að sjá flugvélar koma inn til lendingar. 

Framan af janúar voru þó hlýindi og úrkoma minnisstæðari en annað. Um tíma lék óvenjuhlýtt loft um landið.

w-1967k-a

Kortið sýnir stöðuna í 500-hPa að kvöldi þess 8.janúar. Þykktin er í hæstu hæðum, hefur sárasjaldan orðið svona mikil norðan við landið í janúarmánuði. Hiti fór í 15,0 stig í Hólum í Hornafirði og komst í meir en 10 stig á mörgum stöðvum á Vestfjörðum. Næstu dagar voru líka hlýir flestir. Þessa daga, 9. til 11. sáust mikil glitský um allt norðan- og austanvert landið. Var það í fyrsta sinn sem ritstjóri hungurdiska sá þetta merka fyrirbrigði.  

Lægðir gerðust ágengari og þann 12. fuku hlöður, hey og eitthvað af gripahúsum í Hörðudal í Dölum og sama dag fuku þakplötur í Neskaupstað. Helgina 14. til 15. var mikil úrkoma sunnanlands og leysing um land allt. Við skulum líta á fréttir dagblaðsins Tímans af vatnavöxtunum, þótt langar séu - en styttum aðeins: 

Tíminn þriðjudaginn 17.janúar:

Reykjavík, mánudag. Blaðamenn og fréttamenn Tímans öfluðu í dag frétta af hinum óvenjumiklu flóðum og vegaskemmdum, sem urðu víða um land nú um helgina, sunnanlands, vestanlands og fyrir norðan. Flóðin fylgdu í kjölfar mikils úrfellis á þessum landssvæðum og asahláku, sem kom á freðna jörð. Vatnssöfnunin varð því gífurlega mikil og á mörgum stöðum var sem hafsjór yfir að líta, en bæir stóðu upp úr eins og eyjar. Báðar Hvítárnar flæddu yfir bakka sína, Blanda lokaði Langadalsvegi. Vegna jakaburðar rofnuðu raflínur og símalínur. Af þeim sökum hafa Biskupstungur og Skeið verið rafmagnslaus í gær og í dag. Fyrir utan að vegir hafa víða rofnað, er brúin yfir Jökulsá á Sólheimasandi að hrynja, og óvíst, hvenær tekst að opna hana fyrir umferð.

Blaðamaður Tímans flaug í dag austur á flóðasvæðið á Skeiðum, og var þar sums staðar yfir að líta sem hafsjór væri. Margir bæir voru umflotnir vatni, eins og Austurkot í Hraungerðishreppi, Ólafsvallahverfið og Útverk á Skeiðum. Voru bændur og búalið í Ólafsvallahverfinu að flytja mjólk frá bæjunum og upp á veginn á litlum pramma, sem róið var á milli. Hross og sauðfé stóð á þurru við útihús, og voru ekki í neinni hættu. Er blaðið símaði þangað austur í kvöld, sagði Ingimar í Björnskoti, að vatn hefði komið í tvo kjallara, og hefði fólk staðið við austur í dag. Hann sagði, að þeir í Ó1afsvallahverfinu væru ekki óvanir flóðum, en þó væri þetta með því mesta sem kæmi. Flóðið náði þó ekki heyjum, og komst ekki í útihús.

Útverk á Skeiðum voru eins og eyja { hafi, þar sem húsin stóðu upp úr vatnshafinu. Þar er enginn um þessar mundir, svo að flóðið kemur ekki svo mikið að sök þess vegna. Fyrir austan gekk á með svörtum éljum í dag, og varð því ekki af frekari könnun á flóðasvæðinu úr lofti. Jakastífla var í Hvítá og veitti vatninu upp á undirlendið, og var mikill jakaburður í ánni úr lofti að sjá. Álftavatn hafði flætt yfir veginn við sumarbústaðahverfið, og voru jakahrannir við austurhluta vatnsins. Allir engjavegir og hliðarvegir voru umflotnir vatni eða á kafi. Í Flóanum hafa ekki orðið neinar verulegar vegaskemmdir, runnið hefur yfir Hamarsveg, og Gaulverjabæjarveg, en ekki skemmst að ráði, og einnig yfir Vorsabæjarveginn, og hann varð ófær í gær, en verið að laga hann í dag, rann úr nýgerðu ræsi.

Laugardalsvegur lokaðist fyrir neðan Eyvindartungu, vegurinn að Haukadal varð ófær fyrir neðan Neðra-Dal, og Gullfossvegurinn stórskemmdist ofan við Tungufljótsbrú. Þar festist mjólkurbíllinn svo illa, að jarðýta varð að koma honum til aðstoðar. Stórflóð með miklum jakaíburði varð við Hvítá, svo hún flæddi suður yfir Auðsholtsmýri með miklum jakaburði, og braut þar staura í háspennulínunni, sem liggur í Hreppa og Skeið, og varð þá  rafmagnslaust um mestan hluta uppsveita Árnessýslu í gærmorgun, en komst þó á aftur vestan Hvítár eftir fimm klukkustundir en á 1. tímanum í nótt gerði mikið flóð í Brúará, og braut þá þrjá staura til viðbótar í háspennulínunni fyrir Biskupstungur og er rafmagnslaust þar, og verður í dag, þar sem viðgerð getur ekki hafist sökum mikils vatnsflóðs á þessu svæði. Svo hafa símastaurar við Tungufljót brotnað, í það minnsta tveir svo vitað sé.

Þetta eru einhver mestu flóð sem hafa komið síðast liðin tuttugu ár. Rafmagnsleysið  veldur mjög miklum erfiðleikum alls staðar, en þó mestu á stóru kúabúunum, þar sem mjaltavélar eru stöðvaðar. Eru dæmi til þess, að bændur með 40—50 kýr og lítinn mannskap eru mestan hluta sólarhringsins að mjólka. Einnig veldur miklum erfiðleikum, að víðast hvar ganga vatnsdælur fyrir rafmagni og sækja verður vatn í brúsum bæði fyrir kýr og fénað, einnig hefur kennsla í skólum fallið niður vegna rafmagnsleysisins. Pálmi Eyjólfsson á Hvolsvelli sagði að geysilegt vatnsveður hefði verið þar undanfarna tvo sólarhringa. Rignt hefur í logni og hiti verið átta til níu stig. Á Sámsstöðum í Fljótshlíð hefur verið úrkomumælir um áratugi, og hefur aðeins einu sinni mælst meiri úrkoma, en það var í september 1933, þá mældust 76 mm á sólarhring, en núna 68 mm á sólarhring. Í dag hefur verið unnið að því að kanna vegaskemmdir eystra, og eru vegir víða skemmdir. Þykkvabæjarvegur rann í sundur á móts við bæinn Hrafnstóftir, og er það 60 m skarð. Jeppar gátu brotist yfir með mjólk í dag, en mjólkurbíllinn fór ekki. Við Strandasýki, sem er á þjóðveginum til Reykjavíkur, rofnaði  vegurinn, en strax var gert við skemmdirnar. Vegurinn í Fljótshliðinni er mikið skemmdur, og komust mjólkurbílar, sem aka þangað ekki nema móts við Uppsali í Hvolshreppi, þar var vegurinn í sundur og urðu þeir því að snúa við og aka austur Landeyjar og upp hjó Stóra-Dímon og í Fljótshlíðina. í Landhreppnum komust mjólkurbílar nokkurn veginn leiðar sinnar, þó er vegurinn grafinn á móts við Strandarhöfða, en hefur nú verið lagfærður. Í Austur-Landeyjahreppi lét sig brúarhol á afleggjara, sem liggur í Hólmarhverfið í A-Landeyjum. Mestu skemmdirnar hér um slóðir sagði Pálmi munu vera við Seljalandsá, en þar var byggð ný brú á ána í sumar. Hefur vatnsflaumurinn rofið um tíu metra skarð í uppfyllinguna vestan við brúna, og rann áin þar um. Í dag var byrjað að lagfæra skemmdirnar.

Hlaup kom í Markarfljót og rauf skarð í varnargarðinn við Þórólfsfell í Fljótshlíð. Skörðin voru þó ekki það djúp að rynni þar um eftir að sjatna tók, en ýtur eru nú á leið til að lagfæra skemmdirnar eftir hlaupið. Þá hljóp Gljúfurá við Hamragarða úr farvegi sínum, og raunin austur með þjóðveginum, en er nú komin í sinn venjulega farveg, og engar skemmdir urðu á veginum. Mjólkurbíll austan úr Vík komst ekkí leiðar sinnar við Seljaland.

Áin Klifandi rann yfir bakka sína á þjóðveginum austan við Pétursey. Komu skörð þar í veginn, en stórir bílar komust þar um í gær. Uppfyllingin við brúna á Skógá undir Eyjafjöllum mun eitthvað hafa látið sig, en ekki svo að umferð tepptist. Talið er að klaki sé að mestu úr jörð í Austur-Eyjafjallahreppi, og örlar fyrir grænni slikju á túnum vegna hita og úrkomu. Aftur á móti er mikill klaki í jörð í utanverðu héraðinu, og vegir því þungir og holóttir. Í gær byltu allir lækir og ár sér yfir bakka sína, í nótt stytti svo upp, og nú er grátt-fyrir, því gengið hefur á með éljum í dag.

Í nótt grófst undan einum stólpa um miðbik brúarinnar yfir Jökulsá á Sólheimasandi og í dag var hallinn á brúargólfinu orðinn 40 gráður og brúin öll skökk og skæld á kafla. Engir bílar hafa að sjálfsögðu farið yfir brúna í dag, og ferðir gangandi fólks voru takmarkaðar þar yfir vegna hins mikla halla á brúnni og hættu á að hún færi alveg. Í miklum vatnavöxtum á árinu 1965 fór stöpull undan enda brúarinnar, og var engin bílaumferð leyfð um hana í marga daga á meðan gert var við skemmdirnar. Skemmdirnar núna eru erfiðari viðfangs en þá, og má því búast við umferð verði ekki hleypt á brúna í nokkra daga a.m.k.

Engin umferð um Mýrdalssand. Mikið skarð er við eina brúna á Mýrdalsandi, sem er eiginlega beint suður af Hafursey. Stendur brúin þar í dálítilli kvos á sandinum, og 10—15 metra skarð við brúna. Mikið vatn var þar í gær, en var farið að fjara í dag. Engin umferð mun hafa verið um Mýrdalssand í dag.

Frá því á sunnudagsmorguninn og þangað til um klukkan tíu í morgun var þjóðvegurinn á milli Síkisbrúnna í Borgarfirði ófær bifreiðum vegna skarðs, sem flóð hafði brotið í veginn og einnig var vegurinn við Hvítárvelli undir vatni. Umferðinni var beint um Kljáfossbrúna á meðan vegurinn beggja megin Ferjukots var ófær, en í dag var umferðin um aðalþjóðveginn að færast í eðlilegt horf. Í gær komst klakastífla í Grímsá og flæddi þá yfir veginn hjá Hesti. Klakastíflan brast í nótt og við það jókst vatn töluvert í Hvítá. Frá Kolási voru Stafholtstungurnar yfir að líta eins og hafsjór í gær, en í dag var vatnið mikið farið að sjatna, en jakar víða. Sævar Guðmundsson í Arnarholti í Stafholtstungum sagði, að skarð hefði komið í þjóðveginn fyrir ofan bæinn í gær, en núna væri orðið sæmilega fært þarna um. Hann sagði, að þetta væri með meiri flóðum, sem kæmu þarna, en nú væri mikið farið að sjatna í. Ekki náði flóðið útihúsum eða íbúðarhúsum, þar sem þau standa hátt, en flóðið náði um mýrar á milli bæja. Sveinn Jóhannsson að Flóðatanga í Stafholtstungum sagði, að mikið af jökum hefði borist upp á veginn neðst í Stafholtstungunum. Svona flóð væru ekki óalgeng á þessum slóðum. Frá Sólheimatungu í Stafholtstungum fengust þær fréttir, að bakkar Norðurár hefðu farið í kaf, og væri þetta með mestu vetrarflóðum þar um slóðir, en vorflóð væru þó hærri. Flóðið náði hámarki sínu í gærkvöldi, en var farið að sjatna mikið í dag. Reykjadalsá í Miðdölum, Dalasýslu flæddi yfir veginn og urðu skemmdir á honum þar en ekki þó mjög alvarlegar, að því er talið er.

Þormóður Pétursson, verkstjóri á Blönduósi, sagði blaðinu, að í nótt hefði Blanda rutt sig og lokað Langadalsveginum. Flæddi hún yfir veginn á fjórum stöðum á um 100 metra kafla. Setti Blanda í sig miklar klakastíflur frammi í dalnum. Mikil klakahrönn er á veginum, og mikið magn af vatni rennur nú yfir veginn. Liggur klakahrönnin yfir allt láglendið og yfir veginn rétt hjá Æsustöðum í Langadal. Þormóður kom að veginum, þar sem áin flæðir yfir hann, um kl. 15 í dag, og var þá mikið vatn á veginum og klakahrönn. Þá lokaðist Svínadalsvegurinn einnig, vegna úrrennslis á tveim stöðum. Í dag var gert við veginn, og var hann fær í kvöld. Annars sagði Þormóður, að skemmdir á öðrum vegum væru litlar, einungis smávegis úrrennsli. Hefðu vegirnir yfirleitt sloppið vel í þessum miklu leysingum.

Í Skagafirði eru vegir sundurskornir á nokkrum stöðum, en hvergi munu þeir þó vera alófærir. Mikill vatnselgur hefur verið á veginum yfir Vallabakka í Hólmi, en stærri bílar og jeppar hafa komist þar um. Héraðsvötnin flæddu yfir veginn hjá Völlum á stóru svæði í gær og í dag. Asabálka var í Skagafirði á laugardaginn og á sunnudaginn rigndi mikið, en flóð eru víðast hvar í rénum núna. Rann víða úr vegum. Blaðið hafði tal af Guðmundi Benediktssyni vegaverkstjóra á Akureyri, og sagði hann að á tveim stöðum í sinu umdæmi hefðu orðið alvarlegar vegaskemmdir af völdum vatnavaxta, en á mörgum stöðum hefði runnið úr vegum og yfir þá. Alvarlegustu skemmdirnar hafa orðið á Köldukinnarvegi við Ófeigsstaði, þar sem vatn flæðir yfir veginn á um 70 metra kafla og við brúna á Skjálfandafljóti. Hjá Stóruvöllum í Bárðardal var vatn að brjóta stórt skarð í veginn seinnipartinn í dag. Guðmundur sagði, að þessar vegaskemmdir væru ekki fullkannaðar, þar sem vatnið er mjög gruggugt og erfitt að átta sig á vegaskemmdunum sem stendur, en það yrði gert á morgun. Svarfaðardalsá flæddi yfir þjóðveginn og sömuleiðis Hörgá, en ekki svo að umferð stöðvaðist um vegina.

Tíminn heldur áfram að segja frá flóðunum þann 18. janúar:

KJ Reykjavík, þriðjudag. Alls urðu 275 bæir í Árnessýslu rafmagnslausir er jakaburður braut rafmagnslínustaura við Brúará og í Auðholtsmýri. Í dag komst rafmagnið aftur á á um 100 bæjum í Grímsnesi og Biskupstungum, og í kvöld eða fyrramálið fá bæir á Skeiðum og í Hreppum rafmagn frá dieselrafstöð sem verið er að setja upp að Flúðum í Hrunamannahreppi. Guðjón Guðmundsson deildarstjóri hjá Raforkunálaskrifstofunni fór ásamt fleirum í dag í þyrlunni EIR, og könnuðu þeir aðstæður til viðgerðar, en vont er að komast þarna um vegna vatnselgs.

 

Í þessum langa texta var minnst á hlaup í Markarfljóti - rétt í framhjáhlaupi. Í ljós kom að það var óvenjulegra heldur en allir aðrir vatnavextir þessa daga. 

w-1967k-b

Innstihaus, fjallhnjúkur við Steinsholtsjökul (í norðurhliðum Eyjafjallajökuls) hrundi sunnudaginn 15. janúar. Tíminn segir þann 24. janúar:

Jökulhlaupið kom að Markarfljótsbrú rétt fyrir kl. 4 um daginn, og mun það því hafa tekið um tvo tíma að brjótast undan jöklinum og fara niður Markarfljótsauranna að brúnni. Taldi Guðmundur [Kjartansson], að þetta væri ekki ósennilegt. Guðmundur sagði, að rætur Innsta-hauss, sem er eins og þverhníptur veggur upp frá ísröndinni, væru í um 300 metra hæð yfir sjávarmál, en toppur haussins væri í um 700 metra hæð. Væri sjálft fjallið því 300—400 metrar, og mætti segja, að klofnað hefði framan af fjallinu, frá toppnum og niður úr. Virðist svo, sem þessi spilda hafi gengið út að neðan líklega sem heilleg hella og hún „sunkað" niður í lónið sem væntanlega hefur verið undir jöklinum. Til þess að þessi fjallshluti kæmist ofan í lónið varð jökullinn að færast til hliðar. 

Um þennan mikla atburð má lesa í ítarlegri grein sem Guðmundur Kjartansson ritaði í Náttúrufræðinginn (3-4 tölublað 1968, byrjar á s. 120), við rekjum hann ekki frekar hér. 

Þann 27. janúar gerði mikið austanveður. Þak fauk af hlöðu á Úlfsstöðum í Blönduhlíð í Skagafirði og hluti af kornhlöðu fauk á Sámsstöðum í Fljótshlíð. Skip slitnuðu upp í Vestmannaeyjum. Fyrri hluti febrúar var mjög illviðrasamur og miklar fréttir af samgöngutruflunum og hrakningum ferðalanga í blöðum. Hefur veður í kringum 11.febrúar 1967 komið við sögu á hungurdiskum áður og verður sú umfjöllun ekki endurtekin hér. 

Ekki voru þó allir óánægðir með tíðarfarið, betri dagar greinilega innan um. Tíminn segir frá 18. mars (hvers vegna fréttin birtist ekki fyrr er ekki ljóst, þorranum lauk 18. febrúar):

Þorrinn var óvenju mildur að þessu sinni og góa heilsaði með hlýindum. Um miðjan febrúar voru komnir blómhnappar á vetrargosa, dvergliljur og vorboða sunnan undir húsveggjum í Reykjavík og blöð margra garðblóma voru farin að spretta. Grænir flekkir sáust í grasblettum og brum byrjuðu að þrútna á sumum trjám og runnum. En síðustu sólarhringana í febrúar gerði 6—9° frost, sem stöðvaði „þorragróðurinn". 4. mars var komin hláka og laukblómin héldu áfram að vaxa eins og ekkert hefði í skorist. 8. mars var komið föl á jörð, en ekkert bítur það á þessi harðgerðu fjallablóm, sem við ræktuðum í görðum okkar. 

Mikil ótíð var í mars. Tíminn segir af snjó og ófærð þann 3.:

Mikið fannfergi er á Austur- og Norð-Austurlandi og samgöngur mjög slæmar. Verst mun ástandið vera á Raufarhöfn og nærsveitum, en þar hafa samgöngur að mestu legið niðri í marga daga. Þegar Tíminn hafði tal af fréttariturum sínum á þessum slóðum, geisaði þar enn stórhríð og ekki viðlit að halda vegum opnum. Á Raufarhöfn er mjólkurlaust orðið, og sloti veðrinu ekki innan skamms fá þorpsbúar ekki mjólk fyrr en strandferðaskipið Blikur kemur þar, en það er ekki væntanlegt fyrr en eftir viku. Vart er fært milli húsa í þorpinu, en reynt hefur verið að halda aðalvegunum þar opnum með snjóplóg til að hægt sé að koma olíu í húsin. Sum húsin hefur nærri fennt í kaf, og á einum stað þurfti maður að skriða út um glugga á efri hæð húss til að komast út. Á Þórshöfn er ástandið nokkuð skárra, en þó hvergi nærri gott, og bátar þaðan hafa ekki getað stundað veiðar um hálfsmánaðarskeið vegna gæftaleysis. Talsverðir samgönguerfiðleikar hafa einnig verið á Austurlandi. Snjó kyngir niður jafnskjótt og vegir hafa verið ruddir, og samgöngum er að mestu haldið uppi á snjóbilum. Fjallvegir eru vitaskuld allir lokaðir. 

Þessa daga voru einnig fréttir af ís, Tíminn segir m.a. þann 5. mars:

Í nótt færðist ísinn töluvert suður eftir Vestfjörðum og í morgun voru ísjakar reknir á fjörur við Sæból á Ingjaldssandi. Látlaus snjókoma er fyrir vestan og skyggni mjög slæmt og því erfitt að segja um hve mikill ís er úti fyrir landinu. Samkvæmt upplýsingum Veðurstofunnar er hér um að ræða ísspangir á reki en aðalísinn er fjær landinu. Vélbáturinn Mímir tilkynnti í nótt um jaka á reki út af Galtarvita og sáust þeir ekki i radar. Undan Stigahlíð er íshröngl en ekki sér nema. um 200 metra frá landinu. Í Látravík er breið ísspöng landföst og ís á reki fyrir utan og ís er út af Straumnesi og austur fyrir Kögur. Ekki er hægt að fara í ískönnunarflug vegna veðurs og því ógjörningur að segja hve mikill ís er úti fyrir en íshröngl er á öllum siglingaleiðum fyrir Vestfjörðum. 

Margir muna e.t.v. enn eftir stórbruna sem varð við Lækjargötu og Vonarstræti í Reykjavík þann 10. mars. 

w-1967-03p-sponn_2

Myndin sýnir annars vegar mun á hæsta og lægsta sjávarmálsþrýstingi á landinu (þrýstispönn) á 3 stunda fresti frá 13, mars 1967 og út mánuðinn(ljósblátt þreparit), en hins vegar lægsta þrýsting á landinu á sama tíma (gulbrúnn ferill). Snemma í mánuðinum komu nokkrir rólegir dagar (5. til 8.), en síðan tók við mjög órólegt veður. Dagana 13. til 20 gekk yfir mikill illviðrakafli, fjórar stórar lægðir gengu hjá með og blés af ýmsum áttum. Hvert þessara illviðra stóð þó ekki lengi. Þann 21. til 23. var aftur rólegt veður, en síðan gerði mjög hvassa norðanátt, páskahret, sem stóð í 3 til 4 daga. Náði hámarki á laugardag fyrir páska og á páskadag (26.). Síðustu daga mánaðarins var ekki hvasst.  

Ung veðurnörd máttu hafa sig við ef fylgjast átti með atburðum. Upplýsingar lágu ekki alveg á lausu. Veðurskeytalestur útvarpsins mikilvægastur ásamt veðurkortum Morgunblaðsins. Veðurfregnir voru nýhafnar í sjónvarpi, en útsendingar náðu ekki til landsins alls og voru þar að auki ekki daglegar. 

w-1967v-mblkort

Þetta kort birtist í Morgunblaðinu laugardaginn 18. mars, í lægðafárinu miðju. Lægð númer tvö í syrpunni rétt gengin yfir. Miklar fréttir voru í blöðunum af veðri þessa daga. Við grípum niður í fáeinum fréttum Tímans:

14.mars: Reykjavík mánudag [13. mars]: Versta veður var á SV-landi kvöld og voru vegir víða ófærir. f Vestmannaeyjum hefur verið blindhríð í allt kvöld, rafmagnslínur hafa slitnað, þak fauk af hænsnahúsi og tveir bátar héldu sjó fyrir utan Eiðið. Heldur er óvenjulegt að blindhríð geri í Eyjum, en í kvöld var þar orðinn þæfingur á götum og ekki fært bílum sums staðar. Nokkrir bátar réru í morgun og komust þeir allir í höfn nema tveir, Stígandi VE og Magnús IV., er áður hét Stígandi, og héldu þeir sjó fyrir utan Eiðið, en 13 vindstig mældust á Stórhöfða. Mörg sjónvarpsloftnet brotnuðu í veðrinu, og þar sem þau stóðu af sér veðrið lýsti af þeim, og var líkast því sem ljósagangur væri um allan bæ, en sumir hlutar hans voru rafmagnslausir, vegna þess að loftlínur höfðu slitnað. Vegurinn milli Hafnarfjarðar og Reykjavíkur var um það bil að lokast fyrir minni bíla í kvöld á Arnarneshæðinni og í Silfurtúni, en vegagerðarmenn komu með moksturstæki og ruddu veginn. Má búast við að skafið hafi fljótlega í slóðina Mikil hálka var á Keflavíkurveginum nýja, en færð sæmileg. Aftur á móti var vegurinn til Grindavíkur að lokast, og ekki búist við að hann yrði ruddur fyrr en í fyrramálið. Hér í Reykjavík skóf nokkuð, og sums staðar urðu umferðartafir, en ekki þó alvarlegar. Einn bíll fór útaf í Ártúnsbrekkunni af völdum hálku en þeir sem í bílnum voru sluppu ómeiddir.

17.mars: Enn eru vegir tepptir víða um land vegna snjóa og segja má að allir vegir á Norður- og Austurlandi séu ófærir allt frá Skagafirði austur um land og suður á Lónsheiði. Mikill snjór er á Vestfjörðum sérstaklega á norðanverðum kjálkanum og liggja þar niðri allar samgöngur á landi. Í dag voru stórir bílar aðstoðaðir við að komast frá Skagafirði til Reykjavíkur og norður á Strandir. Á morgun verða allir aðalvegir um Snœfellsnes ruddir og opnast þá Kerlingarskarð og Fróðárheiði. En Ennisvegur milli Hellissands og Ólafsvíkur verður ekki ruddur. Miklar snjóhengjur hafa myndast ofan við veginn og er hætta á snjóflóðum, og þykir ekki ráðlegt að fara þá leið. Flestir vegir á Suðurlandi eru færir allt austur að Vík í Mýrdal.

21.mars: Mikið hvassviðri gekk yfir landið um síðustu helgi [18. til 19.] og olli víða skemmdum á rafmagns- og símalínum. Ófærð var víða um landið og flugsamgöngur lágu niðri innanlands. Veðurofsinn gekk að mestu niður í dag og síðari hluta dagsins var flogið til margra staða sem hafa verið einangraðir í allt að vikutíma. Þegar leið á daginn voru rafmagnslínur komnar í samt lag og sömuleiðis flestar símalínur. Ekki er kunnugt um að aðrir skaðar hafi orðið vegna veðursins. Fáir bátar voru á sjó og komust þeir allir til hafnar. Um 17 bátar leituðu vars í Rifshöfn á Snæfellsnesi og á Patreksfirði voru 20 bátar í höfninni í gær, þar af sjö heimabátar. Allir Eyrabakkabátar leituðu hafnar í Vestmannaeyjum, nema einn er í Þorlákshöfn og einn annar í heimahöfn og kemst ekki út vegna hafróts. Bátarnir sem ráku upp á Stokkseyri fyrir helgi eru báðir taldir ónýtir og hafa verið teknir á leigu tveir bátar til að vetrarvertíð leggist ekki niður á Stokkseyri, þeir eru Stefnir frá Hafnarfirði og Þorgrímur frá Þingeyri. Hólmsteinn og Hásteinn liggja enn á legunni við Stokkseyri og er ekkí hægt að koma þeim út vegna brimsins, en þegar gefur verður farið með þá til Vestmannaeyja til viðgerðar. Bjarmi II. liggur enn á fjörukambinum og er ekki í hættu. Vélbáturinn Auðunn GK-27 fékk á sig sjó út af Jökli á sunnudag. Brotnuðu rúður í brúnni og biluðu loftskeyta og fiskileitartæki bátsins. Tveir menn voru í brúnni þegar ólagið skall á og sluppu þeir báðir með smáskrámur. Skipverjar voru nýbúnir að taka upp netin þegar sjórinn reið yfir og voru með rúml. 15 lestir af fiski. Báturinn sigldi í var og ætluðu skipverjar að taka upp þau net sem enn voru í sjó og sigla til Hafnarfjarðar þegar veður batnar.

Á Raufarhöfn er fannfergi og hefur verið þar blindhríð síðan fyrir helgi. Sjúkraflugvél Tryggva Helgasonar hefur verið veðurteppt þar síðan á fimmtudag, en niðurkoman er svo mikil að ekki er viðlit að ýta snjó af flugvellinum, fyrr en hríðinni slotar. Flugvélin er vel bundin niður og er henni ekki hætta búin. í dag var flogið til Patreksfjarðar og höfðu þá allar flugsamgöngur legið niðri í vikutíma. Rafmagnstruflanir urðu á suðvestanverðu landinu á laugardag og sunnudag. Orsakaðist það af bilun í aðalrofa í Elliðaárstöðinni. Á sunnudagskvöld bilaði Hafnarfjarðarlínan og þar með línan í sendistöð útvarpsins á Vatnsenda og féllu útvarpssendingar niður í 15 mínútur. Á sunnudag urðu miklar rafmagnsbilanir í Rangárvallasýslu. Bilunin varð á linunni frá Hellu til Hvolsvallar. Varð það svæði og austur til Víkur í Mýrdal rafmagnslaust mikinn hluta dagsins. Símatruflanir urðu víða á Norður- og Vesturlandi en flestar símalínur voru komnar í lag upp úr hádegi í dag. í morgun  var fjölsímalínan milli Brúar í Hrútafirði og Akureyrar biluð. Þá bilaði línan milli Brúar og Hólmavikur. Línan milli Brúar og Patreksfjarðar hefur verið biluð síðan fyrir helgi og er enn ekki komin í lag. Þá er línutruflun milli Húsavíkur og Raufarhafnar, en sambandið ekki alveg rofið. Í morgun var símalínan milli Hafnar og Hornafjarðar og Víkur í Mýrdal biluð en gert var við hana í dag. Flestar þessar línubilanir hafa orsakast vegna samsláttar á línunum í rokinu. Línan milli Patreksfjarðar og Brúar er sennilega slitin.

Ástandið í vegamálum er svipið og fyrir helgi. Fært er um Suðurland allt til Víkur í Mýrdal, en ekki nema stórum bílum austur fyrir Mýrdalssand. Frá Reykjavík er fært upp í Borgarfjörð og vestur á Snæfellsnes, en fjallvegir þar eru ófærir. Kerlingarskarð og Fróðárheiði verða opnuð í dag og svo og Brattabrekka vestur í Dali. Á Vestfjörðum er mikið fannfergi og flestir vegir þar ófærir. Á morgun verður Holtavörðuheiði rudd norður í Skagafjörð og stórir bílar verða aðstoðaðir norður Strandir til Hólmavíkur. Á miðvikudag reynir Vegagerðin að aðstoða stóra bíla yfir Öxnadalsheiði og yfir í Eyjafjörð. Á Austurlandi eru nær allir vegir ófærir. Vegagerðin mun reyna að opna aftur leiðina til Skagafjarðar á fimmtudag og síðan aftur 23. þessa mánaðar.

En síðan kom smáhlé. Frétt sem birtist í Tímanum 23. mars (á skírdag) sýnir vel hversu erfitt var að spá um veður á þessum árum, hvað þá meir en sólarhring fram í tímann. Þættu það viðbrigði nú ef skipti til sömu hátta. Væntanlega hefur verið rætt við Veðurstofuna daginn áður. 

Tíminn 23.mars:

Veðurútlit um páskahelgina er gott víðast hvar um landið. Samkvæmt upplýsingum Veðurstofunnar eru horfur á norðlægri átt sem væntanlega stendur fram yfir páska. Á Suðurlandi má reikna með að veðrið verði gott, hægviðri og sólskin. Norðanlands mun ganga á með éljum en sennilega verður veður þar gott að öðru leyti. Erfitt er að spá um veðurfar langt fram í tímann um þetta leyti árs og geta einhverjar breytingar á orðið en mestar líkur eru á að þessi spá standist. Færð á vegum er yfirleitt góð á Suður og Vesturlandi og er fært á litlum bílum um Suðurnes, um Þrengsli austur í Árnes- og Rangárvallasýslur austur að Vík.

Rétt var getið til um vindátt, en góðviðrisspáin fór algjörlega í vaskinn. Á skírdag (23.) snjóaði mikið allvíða, éljabakkar virðast hafa gengið yfir. Á föstudaginn langa fór veður mjög versnandi og gerði mikla hríð um stóran hluta landsins. Stóð þetta veður í hátt í fjóra sólarhringa. Ofankoma var ekki mjög mikil syðra, en þar skóf hins vegar mikið og samgöngur tepptust algjörlega. Er þetta næstöflugasta páskahret sem ritstjóri hungurdiska man, næst á eftir hretinu mikla 1963. Það bar þó allt öðru vísi að. Miklir kuldar höfðu verið ríkjandi nær allan marsmánuð. Frost á landsvísu náði hámarki á skírdag, þegar meðallágmarkshiti á landinu var -12,9 stig. Mikið frost hélst út mánuðinn. 

w-1967k-paskad-i

Kortið sýnir páskahretið í hámarki, kringum hádegi á páskadag, 26. mars. Nær sama vindátt var í háloftum og við jörð, en hægari vindur efra.

Morgunblaðið rekur páskaveðrið í pistli þann 29. mars (miðvikudag eftir páska:

Páskarnir í ár voru fyrr en undanfarin ár og var veður um allt land mjög slæmt. Samkvæmt upplýsingum, sem Morgunblaðið fékk í gær hjá Jónasi Jakobssyni, veðurfræðing, var veður um hátíðina svipað um land allt og einkum slæmt hvað veðurhæð og frost snertir. Frost var alls staðar á landinu frá skírdag og fram á annan í páskum og allt upp í 10 stig, sem var eitt það mesta sem verið hefur á landinu í vetur. Á annan í páskum var mikil hríð á Norður- og Austurlandi, en úrkomulaust á Suðurlandi. Mikill skafrenningur var á Suðurlandi alla hátíðina, einkum föstudag og laugardag meðan mikið var um lausan snjó. Jörð var alhvít um land allt. Þessum mikla veðurofsa ollu djúpar lægðir austan undan Noregsströndum og mikil hæð yfir Grænlandi. Yfir alla hátíðina var djúp lægð á sveimi yfir hafinu á milli Noregs og Íslands, en hæð eins og fyrr getur yfir Grænlandi. Sökum þess lagði sterkan breiðan loftstraum norðan úr íshafi meðfram austurströnd Grænlands, þar sem er mjótt autt belti milli hafíssins norðanundan og lands, þá var frostharkan yfir hátíðina eins mikil og raun var á. Hafís barst að landinu norðan frá ísröndinni á öll svæðin frá Melrakkasléttu að Bjargtungu [svo]. Veðurstofan spáir nú góðu veðri framundan með nýrri lægð, sem er að myndast yfir Grænlandshafi.

Til þess að gera yfirlit um veðrið um hátíðina verður hér greint frá veðrinu um nónbil dag hvern. Á skírdag var hæg norðanátt yfir landinu, en léttskýjað á Suðurlandi. Frost var frá 2—8 stig á láglendi. Í Reykjavík var 2 stiga frost. Á föstudaginn langa var veður orðið mun verra um land allt. Veðurhæðin var meiri, víðast 5—8 vindstig, snjókoma víða á Suðurlandi og í útsveitum norðanlands og vestur á Firði, en þurrt var á Suðurlandi og talsverður skafrenningur víða. Frost var þá á Suðurlandi, 1—2 stig, en á Norðurlandi 7—10 stig. Í Reykjavík var á 4 stiga frost. Laugardaginn 25. var komið 8 stiga frost í Reykjavík. Á Norður- og Suðurlandi var talsverð snjókoma og frost víða 7—10 stig. Á páskadag var veðrið mjög svipað og norðanlands og daginn áður, mikil snjókoma norðanlands, en bjart fyrir sunnan. Á annan í páskum var 5 stiga frost í Reykjavík, norðanátt um land allt og mjög hvasst. Í gær [þriðjudag 28. mars] var veður betra, víða logn og sólskin.

Á annan páskadag [27.] féll snjóflóð úr Bjólfinum á Seyðisfirði og á mjölskemmu. Lagðist skemman saman, fleiri snjóflóð féllu í firðinum.

Þess má geta að í dymbilvikunni urðu miklar slysfarir á fjöllum í Noregi, bæði í Jötunheimum sem og á Saltfjalli í Nordlandfylki. Fjórtán urðu úti og margir björguðust naumlega. Voru þessir ólukkupáskar oft nefndir meðal veðurfræðinga og veðurfræðinema á tíð ritstjórans í Noregi fáeinum árum síðar - og eru ábyggilega enn. 

Fyrstu dagar aprílmánaðar voru heldur hlýrri, og þann 6. til 7. gerði góða hláku. Hún var að vísu ekki mjög góð að því leyti að hún olli bæði miklum leysingaflóðum og ófærð á vegum. Á þessum árum óðust allir vegir upp í drullu og for og urðu algjörlega ófærir minni bílum. 

Í blöðum eru fjölmargar fréttir af vatnavöxtum og skemmdum vegum þessa daga. Við veljum eina þeirra, nánast af handahófi. Hún birtist í Tímanum 14. apríl:

Vegir um land allt eru nú yfirleitt ófærir með öllu öðrum farartækjum en jeppum og létthlöðnum flutningabílum. Þetta ástand veganna skapast af vatnselg af völdum úrkomu og leysinga, aurskriður hafa víða fallið yfir vegi, ræsi flæða yfir þá og mikil úrföll eru víða úr vegunum. Sum staðar er ástandið svo slæmt að starfsmenn Vegagerðar ríkisins geta ekkert gert til að gera við vegina að sinni og verða að bíða eftir að þorni. Gífurleg vatnsflóð eru á Snæfellsnesi og Dalasýslu og margir vegir þar ófærir öllum farartækjum. Sérstaklega er útnesjavegur illa farinn og sífelld skriðuföll eru á Ennisvegi milli Ólafsvíkur og Hellissands. Mikil úrföll eru á veginum yfir Fróðár(heiði) og í Fróðárhreppi er vegurinn víða undir vatni. Skógastrandarvegur er lokaður hjá Ósi vega vatnavaxta. Á Vestfjörðum eru vegirnir einkum illa farnir vegna skriðufalla og aurbleytu. Samgöngur milli fjarða liggja þar víðast niðri. Í Húnavatnssýslu og Skagafirði er ástand nokkru betra, en talsvert hefur rignt þar í dag og fara vegir versnandi. Í Langadal hefur Blanda flætt yfir bakka sína og lokað veginum. Ekkert hefur rignt í Eyjafjarðarsýslu og Þingeyjarsýslum, en þar er 11 stiga hiti í dag og miklar leysingar, og vegir illa farnir af aurbleytu og úrrennslis, en víðast hvar færir. Á Dalvíkurvegi skarst vegurinn sundur þar sem ræsi flaut yfir hann. Þegar starfsmenn Vegagerðarinnar komu þar til að .gera við var bíll kominn ofan í ræsið og munu einhver slys hafa orðið á fólki, ók bílinn á fullri ferð út í vatnselginn og áttaði bílstjórinn sig ekki á að djúpur skurður var yfir þveran veg fyrr en um seinan. Á Austurlandi er ástandið í vegamálum hvað best og ekki teljandi tjón af leysingum það sem komið er. Sæmilega er fært um Suðurland til Víkur í Mýrdal á jeppum og stærri bílum en mikið rigndi þar í dag og fóru vegir versnandi.

 

Daginn eftir var fjallað um flóð í Hvítá í Árnessýslu og leysingaflóð fyrir norðan. En vorið var ekki komið því að um miðjan mánuð kólnaði verulega aftur og við tóku einhverjir köldustu apríldagar sem ritstjóri hungurdiska man eftir - meðallágmarkshiti á landsvísu var -11,9 stig þann 17., -11,3 þann 18. og -10,1 þann 22. Vantaði ekki mikið upp á hörkuna á páskahretinu 1963, en vindur var þó hægari en þá. Man ritstjórinn ekki betur en að útskriftarnemendur MA þetta vor hafi ekið um bæinn á dráttarvélum og heyvögnum þann 19. (daginn fyrir fyrsta sumardag) til að kasta kveðju á kennara sína. Er óvíst að sú athöfn hafi nokkru sinni farið fram í kaldara veðri - en þó var hríðarlítið þann dag. 

w-1967v-gervinattamynd-mbl-frjett-04-25

Þann 22. apríl urðu töluverð tímamót í veðurspám hér á landi þegar tekið var á móti gervihnattamynd beint í fyrsta sinn. Það var útibú Veðurstofu Íslands, flugveðurstofan á Keflavíkurflugvelli sem naut fyrst góðs af. Myndir þessar bárust nú ótt og títt, en í fyrstu aðeins á sýnilegri rás. Innrauðar rásir bættust við síðar og var það mesta framförin. Þrátt fyrir að fyrstu myndirnar væru oft ógreinilegar og illráðanlegar voru þær samt ómetanlegar í leit veðurfræðinga að veðrakerfum sem áður gátu týnst gjörsamlega - eða myndast óvænt yfir Atlantshafi á leið til landsins. Auðvitað tók nokkurn tíma að læra að ráða í myndirnar. Á þessari mynd sést meginísjaðar norðan við land allvel, en mun síður miklar ísdreifar nær landi. Nokkur tími leið þar til veðurfræðingar í Reykjavík gátu notið myndanna, en úr því var bætt.

Maí var sólríkur syðra, en suddasamur og kaldur á Norðurlandi. Meðalhiti mánaðarins í Grímsey var 0,1 stig og -0,2 stig í Skoruvík á Langanesi. Allar meðalhitatölur ársins má finna í viðhenginu. 

Tíminn segir af hríð í maí þann 6.:

Reykjavík, föstudag [5.maí]. Þótt komið sé fram í maímánuð og sumardagurinn fyrsti löngu um garð genginn, lætur vorið enn bíða eftir sér. Í gærdag snjóaði mikið á Suðvesturlandi og ísrek er fyrir Norðurlandi, ísjaka rekur á fjörur á Langanesi. Í gærmorgun [4.] snjóaði mikið á nokkru svæði sunnan- og vestanlands. Talsvert snjóaði í Reykjavik en snjóinn tók af eftir nokkrar klukkustundir. Aftur á móti snjóaði mun meira í fjöll í nágrenninu og lokaðist Hellisheiði um tíma. Mönnum var ráðlagt að fara ekki úr bænum á litlum bílum. Þegar leið á daginn, var heiðin rudd og eru nú allir vegir færir. Samkvæmt upplýsingum Veðurstofunnar lá hríðarbeltið eftir Reykjanesfjallgarði, innan við Hvalfjörð og upp í Borgarfjörð Beggja megin við það var heiðskírt og besta veður. Þar sem hríðarbeltið náði yfir var mikil niðurkoma og á Hólmi mældist snjólagið um 40 sentímetra þykkt í gærkveldi. Er það nálægt 20 mm úrkoma. Í dag hlýnaði í veðri og má búast við að snjóinn taki fljótlega af. ... Í Skoruvík á Langanesi hefur talsvert af ís rekið á fjörur. Úti fyrir ströndinni er rekís á siglingaleið og lengra úti í hafi sjást þéttari ísspangir. Rekís er dreifður á siglingaleiðum úti fyrir Hornbjargi og sést meiri ís úti fyrir. Ef núverandi vindátt helst, er líklegt að ísinn reki frá landinu. Að þessu sinni vorar óvenju seint hér á landi og er sömu sögu að segja um norðanverða Evrópu. Er vorið þar 2—3 vikum seinna á ferðinni en endranær.

 

w-1967-05-27_09

Morgunn í maí. Ritstjóri hungurdiska var á leið frá Akureyri suður í Borgarfjörð þennan dag. Kuldi var um allt Norðurland og þarna um morguninn líka í Borgarfirði. Hiti um og ofan við frostmark yfir ísasvæðum Húnaflóa. Hámarkshiti dagsins á Horbjargsvita var 1,5 stig og um 3 stig í Hrútafirðinum. Austar á Norðurlandi varð sæmilega hlýtt síðdegis, hiti komst í 11,6 stig á Akureyri. Hæsti hámarkshiti dagsins var 14,5 stig á Víðistöðum í Hafnarfirði. Eftirminnileg aurbleytan á Hrútafjarðarhálsi sem og hinn mikli munur á vorgróðri við Hrútafjörð og í Borgarfirði. 

Fyrir miðjan júní urðu aftur mikil leysingaflóð á Norðurlandi með skemmdum á vegum og landi. Síðar í mánuðinum voru sagðar fréttir af kalskemmdum í túnum um landið norðanvert. 

Snemma í júlí gerði mikið úrhelli um landið norðvestanvert, sérstaklega á Ströndum. Mældist úrkoma á Hornbjargsvita (85,5 mm) og Kjörvogi (71,1 mm) meiri en fyrr og síðar í júlímánuði.  

Tíminn segir frá 11. júlí:

Hér i Árneshreppi hefur verið gífurleg rigning síðustu daga og vegaskemmdir geysimiklar. Á Kjörvogi mældist úrkoman frá kl. 18 á laugardag til kl. 9 á sunnudagsmorgun 64,3 mm. Eru allir vegir ófærir, en stór stykki hafa runnið úr þeim á mörgum stöðum, einkum í Kleifunum. Eru viðgerðir þegar hafnar, en taka mun nokkra daga að gera vegina umferðarhæfa. Skriður hafa víða fallið hátt úr fjallshlíðunum yfir vegina og niður i sjó. Eru á nokkrum stöðum stórir haugar i flæðarmálinu. Hér í víkinni lenti skriða í vatnsbóli því, er bæirnir hér kring fá vatn úr. Stíflaðist vatnsleiðslan, sem er um km á lengd af aur, og er viðbúið að rífa þurfi upp alla leiðsluna til þess að hreinsa hana.

Í Tímanum 18. júlí er frétt um kólnandi veðurfar í heiminum. Hún er of löng til að hafa eftir hér en þó segir m.a.:

Veðurspáin fyrir árið 2000 gerir ráð fyrir kaldara veðri í heiminum en á þessu ári og á hitastigið að fara lækkandi ár frá ári. Virtustu vísindamenn á sviði veðurfræði telja að hin hægfara hækkunar tilhneiging hitastigsins á fyrra helmingi þessarar aldar hafi nú náð hámarki og nú hefjist lækkunin niður á við. Mun það hafa víðtækar efnahagslegar og þar af leiðandi pólitískar afleiðingar og áhrif. Bandaríski veðurfræðingurinn, dr. Murrey Mitchell, sem er í vísindaráði bandarísku stjórnarinnar hefur lýst þvi yfir í viðtali við vikuritið US News and World Report, að jörðin hafi smám saman verið að kólna síðan 1940. Dr. Mitchell gerir ráð fyrir aukningu jöklanna á Norðurhveli og muni það hafa í för með sér versnandi siglingaaðstöðu um nyrstu höf. Erfiðleikar munu skapast í heimskautahöfnum Sovétríkjanna og Kanada og í bandarískum höfnum í Norður-Alaska. ... Við erum því ekki á leiðinni inn í nýja ísöld, en hins vegar verðum við að gera ráð fyrir, að lækkun hitastigsins muni hafa veruleg áhrif á plöntu og dýralíf á hinum ýmsu svæðum jarðar.

Í síðari hluta júlí gerði allmikið hret og hálku gerði á fjallvegum norðaustanlands. Á Grímsstöðum á Fjöllum snjóaði. 

Í júlílok urðu talsverðir jarðskjálftar á Suðurlandi. Upptökin voru nærri Villingaholti í Flóa. Stærstu skjálftarnir urðu þann 27. og 29. Stærð um 5 [á „Richter“]. Um mánaðamótin september/október varð talsverð jarðskjálftahrina við Grindavík. 

Um mitt sumar var lengst af gott veður um landið sunnan- og vestanvert, en um og upp úr 20. ágúst brá til töluverðrar úrkomu. Annars voru þessir mánuðir, allt fram í nóvember stórtíðindalitlir í veðri.

Þann 22. ágúst gerði haglél og þrumuveður í Reykjavík. Tíminn segir frá þann 23.:

Haglél gerði í Reykjavík í morgun. Við hringdum á Veðurstofuna og spurðum, hvort slíkt veðurlag væri eðlilegt á þessum árstíma, en fengum þau svör, að svo yrði að teljast, því að ekki væri óvenjulegt, að haglél gengju yfir á sumrin. Yrði þetta helst, þegar svo háttaði um veðurlag, að mjög háir skúraklakkar gengju yfir, og gæti það orsakað bæði þrumuveður og hagl, en þó væri haglið algengara í slíkum tilvikum. Þetta gæti orðið í besta veðri, og t.d. hefur verið um 8 stiga hiti í Reykjavík undanfarið. Í kvöld um áttaleytið kom svo aftur hálfgert hagl hér í borginni og fylgdu því þrumur og eldingar úr þungbúnum skýjum, sem voru yfir borginni, en að sjá austur til Hengilsins var besta veður, sól og heiðskírt.

Veður gerðist órólegra þegar kom fram í nóvember og varð foktjón í nokkrum veðranna. Þann 12. nóvember fauk þak af söltunarhúsi á Seyðisfirði og járnplötur af síldarverksmiðju Ríkisins auk þess að gafl hennar sprakk. Maður varð fyrir járnplötu og meiddist. Pallur af heyvagni fauk á Egilsstöðum og skemmdi símalínu. Þann 18. sama mánaðar urðu miklar skemmdir í hvassviðri á Ísafirði, bátar löskuðust og bryggjur skemmdust. Kjallarar fylltust af sjó, rúður brotnuðu og þakjárn fauk á Ísafirði, í Hnífsdal og í Súðavík. Þrjár trillur löskuðust í Hrísey og járnplötur fuku af húsum, fiskhjallar fuku þar og á Árskógsströnd, en sjór gróf þar undan bryggjuhaus, heygeymsla fauk í Brimnesi og járnplötur á fleiri bæjum í nágrenninu. Þakplötur fuku af húsum í Ólafsfirði. Bátur fauk langa leið á Borgarfiðri eystra. Þann 3. desember fauk vörubíll af bryggju í sjóinn á Siglufirði og járn fuku af húsum. Þakplötur og hey fuku á bæ í Kelduhverfi. 

Í lok nóvember gerði aftur mikla ófærð um mestallt land og skiptust á mjög kaldir dagar og asahláka fram eftir desember. Hafíss varð vart við Grímsey snemma í desember og reyndist hann mikill, aðdragandi mesta hafísvetrar allt frá árinu 1902. 

Viku af desember gerði allmikil frost og varð þá afkastabrestur hjá hitaveitunni í Reykjavík í allmörgum eldri hverfum. Tíminn segir í frétt þann 8. desember að „kuldabeltið" [nái] yfir allan Vesturbæinn og alveg austur að Rauðarárstíg eða þar um bil. ... í langflestum húsanna — hvort sem um steinsteypt hús eða timburhús er að ræða — er nístingskuldi. Í þessum húsum verður fólk að haldast við með börn sín. Gamalmenni verða einnig að þola kuldann. Fólk kappklæðist en það dugar lítið. Flestir reyna að hita upp, þó ekki væri nema eitt herbergi, með rafmagnsofnum. 

Tíminn segir enn af hitaveituvanda 12. desember - en þá hafði hlánað og skemmdir komið í ljós: 

Töluvert miklar skemmdir munu hafa orðið víðs vegar um borgina nú um helgina, þegar frostið tók að lina, og í ljós kom að fjöldi miðstöðvarofna og leiðsla hafði sprungið í kuldunum og vatnið tók að streyma úr rifum. Við höfðum samband við Gunnar Kristinsson verkfræðing hjá Hitaveitunni, og sagði hann að skemmdirnar nú væru þær mestu undanfarin ár, líklega helmingi meiri en í fyrravetur, en þá hefði fyrst orðið veralegar skemmdir vegna frostanna og hitaveitunnar svo nokkru hefði numið.

Enn meiri vandræði urðu svo í veitumálum fyrstu dagana eftir áramót. Um það kuldakast má lesa í gömlum pistli á hungurdiskum: „Af kuldakastinu fyrir 50 árum“.

Tíminn segir frá þann 12.:

Geysileg flóð hafa orðið úr ám og kvíslum í Skagafirði i dag [11. desember]. Ríkir sums staðar hálfgert neyðarástand, eftir því sem dæma má af fréttum að norðan, býli eru einangruð og sums staðar kemst fólk ekki út fyrir dyr vegna vatnsflaums, sem ríður yfir tún. Á fjórum stöðum í Skagafirði hafa orðið flóð, en ástandið er misjafnlega slæmt. Mesta flóðið er í Svartá í Lýtingsstaðahreppi, einnig mun talsvert flóð hafa orsakast af stíflu í Húseyjarkvísl. Þá flæðir Dalsá yfir veginn í Blönduhlíð og í Gönguskörðum var vegurinn næsta ófær í kvöld vegna flóða. Svo sem fyrr segir, er flóðið mest í Svartá í Lýtingsstaðahreppi. Stíflaðist hún snemma í dag af krapi skammt fyrir framan Reykjafoss, og gífurlegur vatnsflaumur streymdi yfir bakkana. Einangruðust tveir bæir af þessum sökum, Reykjaborg og Laugabakki, en býlin eru umflotin vatni, og vart viðlit að fara út úr húsi. Er sýnt var, hvernig komið var, ákváðu bændur á nærliggjandi bæjum, að freista þess að bjarga fólkinu. Hrintu þeir, báti á flot og voru nær komnir að húsinu á Laugabakka, er þeir urðu að snúa við, vegna hins gífurlega straumþunga við bæinn. ... Vel byggt er á báðum bæjunum, og er fólkinu talið óhætt, ef ástandið versnar ekki því meira. Á Laugabökkum, sem nær eru veginum er einlyft steinhús en Reykjaborg er nokkru fjær og þar er tvílyft steinhús. Vegurinn hjá Varmalæk er algjörlega ófær og túnið er á floti. Þá stíflaðist í dag Húseyjarkvísl fyrir innan Húsey hjá Vallhólmi. Flæðir yfir Vallhólma og straumurinn úr kvíslinni braut ræsi í veginn hjá Sólvöllum og er hann ófær. Er mjög erfitt um skepnuhirðingu á þessum slóðum, en túnin eru á kafi í vatni og sums staðar standa húsin eins og eyjar uppi úr flaumnum. Þá flæðir Dalsá yfir veginn hjá Akratorfu í Blönduhlíð, en vatnsmagnið er ekki eins gífurlegt og á hinum stöðunum tveimur, og ekki annað vitað, en fólk sé sæmilega statt. Einnig eru flóð í Gönguskörðum fyrir utan Sauðárkrók, og flæðir yfir veginn fyrir neðan Veðramót. Vatnsmagnið í Héraðsvötnum er óvenjulega mikið, en ekki er vitað til, að þau hafi stíflast að ráði. Hægt er að komast um Skagafjörðinn með því að fara leiðina frá Sauðárkróki og út á Hegranes. Fréttaritari blaðsins á Sauðárkróki sagði í kvöld, að ekki hefðu í manna minnum orðið svona mikil flóð á þessum slóðum. Svartá þar sem flóðin eru mest, er bergvatnsá, og að jafnaði mjög vatnslítil.

Miklar vegaskemmdir um helgina og í dag [mánudag 11. desember] rigninga og asahláku. Ár og lækir runnu viða yfir vegi og skörð mynduðust í vegina svo lokuðust margir þeirra í dag. Sérstaklega urðu miklar skemmdir á vegum á Suðurlandi og á Vesturlandi. ... Samkvæmt upplýsingum Vegagerðarinnar var Suðsuðurlandsvegur fær í dag en þó varla nema stórum bílum og jeppum. En á mörgum stöðum voru komin stór skörð í veginn og hann hættulegur yfirferðar. Verstur er vegurinn milli Hvolsvallar og Hellu. Í Landeyjum liggur vegurinn að töluverðu leyti undir vatni. Ýmsir aðrir vegir á Suðurlandi eru alveg ófærir. Ár renna yfir vegina og í þeim eru stór og djúp skörð. Svo er ástatt með Fljótshlíðarveg, Þykkvabæjarveg, Landeyjarveg syðri og Leirnaveg i Austur-Eyjafjallahreppi. Aðrir vegir eru skörðóttir og mangir illfærir þótt aka megi eftir þeim með lagni. Vesturlandsvegur er illfær og flæðir víða yfir hann. Í Kollafirði liggur vegurinn undir vatni á kafla, en er þó fær stórum bílum. Í Hvalfirði er vegurinn mjög slæmur og um tíma í dag lokaðist hann alveg við Olíustöðina, en þar tókst að opna hann aftur. Í Borgarfirði er ástandið afleitt og flæða þar margar ár yfir bakka síma og loka vegum. Svo er til dæmis með Hvítá, en hún flæðir yfir veginn hjá Hvítárvöllum og er mikill jakaruðningur í ánni. Þá flæðir einnig yfir veginn hinu megin árinnar við Ferjukot. ... Hjá Hvammi [í Norðurárdal er] mjög djúpt vatn á veginum og við Dalsmynni, en þar geta stórir bílar ekið eftir veginum, en vatnið er gruggugt og jakaíburður mikill og því varasamt að reyna að aka þarna um og eiga bílstjórar erfitt með að átta sig á hvar vegurinn liggur undir vatninu.

Allt innanlandsflug lagðist niður í gærkveldi og í morgun vegna svartaþoku um land allt. Einnig urðu allmiklar tafir á millilandaflugi, t.d. varð þota FÍ að lenda á Reykjavíkurflugvelli í stað Keflavíkurflugvallar, og Friendshipvél félagsins, sem átti að lenda í Reykjavík, neyddist til að fljúga til Akureyrar og lenda þar í nótt. ... Tíminn segir þann 15.desember af mikilli hálku í Reykjavík daginn áður, þann 14.:

Mikil hálka var á götum Reykjavíkur og nágrennis i morgun. Fyrir kl. 10 var nær algjört umferðaröngþveiti í Kópavogi og á Hafnarfjarðarveginum af þessum sökum. Miklar brekkur eru á þessari leið og var hálkan slík að bilar komust hvergi nærri upp brekkurnar þótt þeir væru á snjódekkjum. Lögreglan í Kópavogi segist ekki muna annað eins öngþveiti. Fjöldi bíla fór út af veginum og nokkrir árekstrar urðu. Engin slys urðu á fólki og bílarnir skemmdust ekki að ráði, sem varla var von því þeir náðu aldrei þeim hraða í hálkunni að hætta stæði af, þótt þeir færu út fyrir vegkantinn.

Í sama blaði er sagt frá því að flóð væru í rénun, en á aðfangadag segir enn af flóðum í Ölfusá. Rætt er við Eyþór Einarsson bónda í Kaldaðarnesi:

 ... sem sagði Tímanum í dag að síðan 4. des. hafi hann aðeins komist fjórum sinnum með mjólk frá bænum, og sé ástandið nú með versta móti ... En samt ætlaði Eyþór að reyna að koma mjólk frá sér og taka varning til jólanna. Vegurinn frá bænum er allur undir ísi og á ísnum er mittisdjúpt vatn. Nær það langt yfir framhjól á dráttarvél. Mikið íshröngl fylgir flóðunum, og gerir það öll ferðalög enn erfiðari. Þegar hlánar lyftir áin ísnum upp og ryður honum yfir bakkana og kemur síðan undan honum hér og hvar uppi á landinu. Eru því víða djúpir álar þar sem að öllu jöfnu er þurrt land.

Hér lýkur þessari lauslegu (en löngu) hugleiðingum ritstjóra hungurdiska um árið 1967. 


Skrár tengdar þessari bloggfærslu:

Nokkrir kaldir dagar framundan

Eftir til þess að gera hlýja 2 til 3 daga virðist nú kólna aftur. Hlýindin náðu þó illa til Vestfjarða. Vonandi stendur kuldakastið þó ekki lengi. Á morgun, þriðjudag, breiðist norðanáttin yfir landið allt. Seint á miðvikudag kemur síðan nokkuð snarpur kuldapollur til okkar úr vestri, yfir Grænland.

w-blogg090522a

Myndin sýnir tilgátu evrópureiknimiðstöðvarinnar um stöðuna í 500 hPa-fletinum á miðvikudagskvöld. Þá er miðja kuldapollsins skammt fyrir vestan land á leið austur fyrir. Mjög kalt er í honum miðjum, -39 stiga frost, þar sem mest er í rúmlega 5 km hæð. Það er í meira lagi á þessum árstíma. Eftir því sem pollurinn fer austar hlýnar þó í honum - og síðan er ekki óalgengt að spár sem þessar ýki kuldann lítillega. Þessi kuldapollur er búinn að vera í spánum í nokkra daga - en áhrif hans virðast þó verða heldur minni en gert var ráð fyrir í fyrstu. 

w-blogg090522b

Meginástæða þess að líklega fer heldur betur en á horfðist er að sjávarmálslægðin sem verður til við kuldapollinn (sú sem er yfir landinu á kortinu hér að ofan) og smálægð sem á kortinu er á hraðri austurleið fyrir sunnan land ná ekki saman yfir landinu - eins og fyrri spár voru um tíma að giska á. Þetta kort gildir á sama tíma og háloftakortið að ofan, kl.24 á miðvikudagskvöld, 11.maí. 

En hætt er við að næstu dagar verði kaldir. Fyrir norðan snjóar og jafnvel gæti orðið vart við snjókomu syðra. En framtíðarspár gera síðan ráð fyrir mjög hlýnandi veðri. Við treystum slíku auðvitað hóflega - en minnst er á 18 til 20 stiga hita. Hæsti hiti ársins á landinu til þessa er 18,6 stig sem mældust í Kvískerjum í Öræfum 26. mars - merkilegt að það skuli ekki hafa verið toppað í hinum nýliðna hlýja aprílmánuði. En apríl var á flestan hátt hógvær. 


Hugsað til ársins 1937

Árið 1937 var ekki ár mikilla tíðinda. Snjódýptarmet Reykjavíkur er þó frá þessu ári og menn minntust lengi óþurrka á Suður- og Vesturlandi þetta sumar, þó það félli síðar í skuggann af sumrunum 1955, 1983 og fleiri slíkum. Þrumuveður gerðu líka usla. Hæsti hiti ársins mældist 28,0 stig, í Möðrudal 25.júlí - en mælingin er ekki trúverðug. Mesta frostið mældist -27,3 stig, á Grímsstöðum á Fjöllum 18. mars. Sú mæling er trúverðug, sama dag mældist frostið á Akureyri -22,1 stig, óvenjulega mikið á þeim bæ - kannist nánar. 

Janúar var umhleypingasamur og snjóþungt var með köflum, febrúar var talinn óhagstæður og ógæftir miklar. Í mars var hagstæð þurrviðratíð á Suður- og Vesturlandi, en nokkuð snjóþungt norðanlands og austan. Úrkoma var sérlega lítil víða um vestanvert landið, mældist ekki nema 0,3 mm á Hvanneyri, 1,2 mm í Síðumúla og 7,0 mm í Reykjavík, það næstminnsta sem vitað er um þar í þeim almanaksmánuði. Meðalloftþrýstingur mánaðarins var líka með hærra móti. Í apríl var tíð talin hagstæð en úrkomusöm, þá var hlýtt í veðri. Maí var talsvert óhagstæðari. Í júní töldu menn tíð óhagstæða gróðri, þó hlýtt væri í veðri. Júlí var votviðrasamur, sérstaklega á Suður- og Vesturlandi. Votviðrin héldust fram í ágúst, en þá var tíð talin góð norðaustanlands. Votviðrasamt var líka í september. Október var órólegur, en tíð hagstæð á Norður- og Austurlandi. Nóvember og desember voru hagstæðir, jörð víða alauð síðari hluta desembermánaðar. 

Við rifjum nú upp nokkra atburði með aðstoð blaðafregna og fleira.

Aðfaranótt 10.janúar sló eldingu niður í íbúðarhús á Brunnastöðum á Vatnsleysuströnd og olli miklu tjóni. Það var á öðrum bæ á ströndinni, Auðnum, sem eldingarslysið mikla varð í mars 1865 og lesa má um í pistli hungurdiska fyrir það ár. 

Alþýðublaðið segir frá þann 11.janúar:

Í fyrra kvöld gerði afspyrnurok og hvassvíðri um Reykjanes og suðvesturströndina. Ekki hefir þó ennþá frést um nein alvarleg slys af völdum óveðursins. Um miðnætti í fyrrakvöld [9.] var ofviðrið einna snarpast í Vestmannaeyjum, eða 10 vindstig. Hér í Reykjavík var stormurinn 9 stig og 5—6 stiga hiti. Um kl. 2 í fyrrinótt gekk í suðvestan átt og voru mjög harðar hryðjur, Vindhraði var hér um það leyti 11 stig. Í gær var skaplegt veður, útsynningur, en í morgun gekk í suðaustan ofsaveður og er vindurinn 9—11 stig. Símabilanir hafa ekki orðið miklar, smáslit hér og þar, en víðast samband; þó er Suðurlandslínan slitin milli Núpsstaða og Skaftafells, á Skeiðarársandi. Það er því ekkert samband við Austfirði um Suðurlandslínuna.

Í fyrri nótt kl.2 laust niður eldingu í íbúðarhúsið á Brunnastöðum á Vatnsleysuströnd. Húsið er úr steinsteypu, eign Guðjóns Péturssonar. Fólk sakaði ekki, en nokkrar skemmdir urðu á útveggjum hússins og þaki. Inni brotnaði í mola útvarpstæki og skápur, er það stóð á, og allt lauslegt í því herbergi kastaðist til og brotnaði og þiljur sviðnuðu og gluggatjöld brunnu. Enginn maður svaf í því herbergi. Víðar á húsinu urðu meiri og minni skemmdir.

Morgunblaðið 12.janúar - lýsir afleiðingum eldingarinnar á Brunnastöðum:

Eiríkur Einarsson, maður héðan að sunnan, er var á ferð þarna snemma á sunnudagsmorgun, hefir gefið Morgunblaðinu lýsingu á því, hvernig umhorfs var þarna þá. Fer frásögn hans hér á eftir. Skemmdir voru miklar á þaki hússins og útvegg, þiljur brotnar og þakið gengið inn, þakrennan hafði fallið niður og brunnið í sundur. Veggir voru víða sviðnir og holaðir, eins og eftir byssukúlur.Inni í húsinu var eldavél og útvarpstæki sundurtætt og brotið. Í stórum skáp í eldhúsinu var veggurinn allur sviðinn, og leirtau allt og önnur áhöld meira og minna brotin, eða færð úr stað. Þá voru gluggatjöldin mjög sviðin, og margt skemmt af sóti. Seytján rúður voru brotnar í húsinu, en á tveimur öðrum gluggum voru karmar sundurtættir. Um átta manns var í húsinu, þegar eldingunni laust niður: Guðjón Pjetursson og kona hans Margrét Jónsdóttir, ljósmóðir ,ásamt dóttur þeirra og tengdasyni, með 4 börn. Er það mikil mildi að enginn skyldi meiðast. Er svo heppilega vildi til, að enginn svaf í þeim hluta hússins, sem verst varð úti.

Slide1

Bandaríska endurgreiningin sýnir okkur aðstæður þrumuveðursins. Mikil lægð er á Grænlandshafi (giskað á 946 hPa í lægðarmiðju). Kortið gildir kl.6 á sunnudagsmorgni, 10. janúar. Skil hafa nokkrum klukkustundum áður farið yfir Vatnsleysuströnd og trúlega hefur þrumuveðrið gert í þann mund, frásagnir segja um kl.2. Þetta hefur verið myndarlegt þrumuveður því að 10 veðurstöðvar geta um þrumur þessa nótt. Níu þrumudagar voru í þessum mánuði. 

Nokkrum dögum síðar dró aftur til tíðinda. Óvenjumikla óvenjumikla snjókomu gerði, sérstaklega suðvestanlands. Lítum fyrst á frásagnir blaðanna: 

Nýja dagblaðið þriðjudag 19. janúar:

„Síðan ég kom hingað til bæjarins fyrir rúmum þrjátíu árum, man ég ekki eftir að hafi komið eins mikill og jafnfallinn snjór hér í bæ og nú", sagði bæjarverkfræðingurinn við Nýja dagblaðið í gær. Það er líka álit margra manna annar a að vart hafi komið hér meiri snjór í manna minnum. Dálítill snjór var fyrir á sunnudaginn [17.janúar], þá var rigning um morguninn, en nokkru fyrir hádegi kom afamikil lognhríð og hélst óslitið fram undir miðnætti. Um kvöldið var kominn svo mikill lognsnjór, að til stórvandræða horfði um alla umferð innanbœjar og utan. Var nær ófært 5 og 7 manna bifreiðum innanbæjar og því dæmi til þess að stórar bifreiðar væru teknar til innanbæjaraksturs. Gátu bifreiðastöðvarnar ekki fullnægt eftirspurninni og telja að ekki hafi nándar nærri svarað kostnaði að aka. Utanbæjar varð ófært minni bifreiðum, en strætisvögnum mun hafa tekist að halda uppi ferðum a.m.k. til Hafnarfjarðar fram til kl. 1 eftir miðnætti.

Í gær [18.janúar] unnu um 250 manns hér í bæ að snjómokstri og höfðu fjölda bifreiða til aðstoðar. Tókst að greiða fyrir umferð um aðalgöturnar og var bifreiðaumferð innanbæjar i sæmilegu lagi eftir því sem aðstæður voru til. Ófært var í gær að Lögbergi og situr þar tepptur einn strætisvagninn. Áætlunarbifreiðar komust ekki nema að Blikastöðum árdegis og að Grafarholti síðdegis. Til Hafnarfjarðar og eins „suður með sjó" var fært allan daginn stórum vögnum.

Búist var við í gærkvöldi, að ef renningur yrði í nótt muni bifreiðar ekki komast til Hafnarfjarðar i dag eða yfirleitt út úr bænum. Virtist veðurspá benda til að svo myndi fara. En til eru allmargir, sem ekki kvarta undan snjóþyngslunum. Það er skíðafólkið. Fjöldi manns var á skíðum i gær. Kunnugir menn telja, að þegar snjóinn leysi, eða sérstaklega, ef rignir í snjóinn, þá muni hætt við skemmdum af vatni í húsum inni og eins á götum úti hér í bæ. Þessvegna virðist full ástœða til að moka snjónum strax frá þeim stöðum, þar sem hætt er við slíku. Mikill snjór er nú „austan fjalls" og öll bifreiðaumferð algerlega stöðvuð. Önnur umferð er erfið. Á Hellisheiði er geysi snjór og eins ofan við Lögberg. Snjóbifreið, sem fór frá Lögbergi að Kolviðarhóli var 9 klst á leiðinni Er lognsnjórinn svo mikill að heita má ófært.

Hláka á Norðausturlandi. Í gœr [18.janúar] var austan hvassviðri og rigning með 4—5 stiga hita á Norðaustur- og Austurlandi. Snjór er þar litill og mun hafa minnkað til muna í gær. En allt útlit er fyrir að hér muni enn bæta á hinn mikla snjó. Samt var veður breytilegt sunnanlands í gær, sem sést best á því, að rigning var og slagviðri í gær hjá Sogi þótt hér væri stundum hríðarveður.

Alþýðublaðið 18.janúar:

Snjóþyngslin eru nú svo mikil hér í bænum, að þau hafa ekki orðið meiri á mörgum undanförnum árum. Í gærmorgun {17.janúar] var hér rigning, en um hádegisbilið byrjaði að snjóa og hlóð snjónum niður látlaust til kl. 11 í gærkveldi. Var þá komin svo mikil ófærð á götunum, að þær voru varla færar fyrir gangandi fólk eða bíla ,og varð fólk að vaða snjóinn á aðalgötunum jafnvel í mitt læri. Óvenjulegt var að sjá litlu húsin við Lindargötu með snjó i miðjar hliðar og bílana svo að segja kaffennta sums staðar.

Svo vill til að þó snjódýptarathuganir hafi verið gerðar reglulega í Reykjavík þennan mánuð er færsla þeirra í bækur eitthvað óregluleg. Með því að nýta heimildir í skeytafærslubók og annarri athugunarbók hefur þó tekist að ná gögnum saman fyrir allan mánuðinn.   

Þegar litið er á veðurkort þessa daga koma ástæður þessarar miklu snjókomu í ljós:

Slide2

Bandaríska endurgreiningin sýnir að mjög skörp en hægfara skil voru yfir landinu síðdegis sunnudaginn 17. janúar. Norðan skilanna var suðaustanátt, víða rigning og hláka, en sunnan þeirra og vestan var mjög mikill snjókoma í mjög hægum vindi - en aðeins á til þess að gera mjóu belti. Hægt er að tala um þessa stöðu sem sígilda. Svo virðist sem snjókomubeltið hafi verið það mjótt að lítið náði að snjóa vestan Hafnarfjarðar, en snjókoman náði hins vegar austur fyrir fjall. Á Úlfljótsvatni mældist snjódýptin mest 93 cm þann 20., en talsverður snjór var þar fyrir. Á Hvanneyri í Borgarfirði rigndi ýmist eða snjóaði, snjódýpt var ekki mæld þar, en athugunarmaður gefur til kynna að bleyta hafi verið í snjónum - og hann því væntanlega ekki eins fyrirferðarmikill og í Reykjavík. Austur í Hrunamannahreppi snjóaði ekki mjög mikið. 

Snjódýpt var mæld allan mánuðinn í Reykjavík, en færð sitt á hvað í tvær bækur, skeytabók og síðan almenna athugunarbók, nokkuð mál var að púsla þessum færslum saman, en mælingarnar virðast þó vera sannfærandi þegar upp er staðið, og ber vel saman við þær lýsingar sem komu fram hér að ofan. 

Alhvítt var í Reykjavík fyrstu 20 daga mánaðarins. Snjór var mikill fyrstu dagana, en minnkaði síðan áður en mesta snjókoman varð, var komin niður í 3 cm þann 11. Að kvöldi þess 20. gerði síðan afgerandi hláku og varð loks autt. Þann 15. fór að snjóa að ráði og að morgni 17. mældist snjódýptin 25 cm. Eitthvert hik hefur því miður verið á athugunarmanni þann 18. því 55 virðast hafa verið skrifaðir ofan í 45. Sé litið nánar á úrkomumælingar og veður virðist aðalsnjókoman hafa verið 16. og 17. Samfelld snjókoma hófst að kvöldi fyrri dagsins og stóð í u.þ.b. sólarhring. Eins og kom fram að ofan var snjódýptin 25 cm þann 17., síðan mældist úrkoman næsta sólarhring 24 mm.

Ekki er því ótrúlegt að 50 cm múrinn hafi verið rofinn strax þann 18. og 55 cm séu því rétt tala og met. En reyndar snjóaði dálítið, bæði síðari hluta dags 18. og 19. Vindur var fyrst fremur hægur af suðaustri, nærri skilunum, en síðan virðist mesti snjórinn hafa fallið í logni. Aðeins skóf síðari daga. Hiti var rétt við frostmark. Umferð nánast stöðvaðist og mjólkurskortur varð í bænum og í blöðum er talað um 50 til 60 cm jafnfallinn snjó.

w-blogg-hugsad_1937a

Myndin sýnir snjódýpt í Reykjavík (þegar alhvítt var) frá 1. janúar til 5. maí 1937. Mikill snjór var tvisvar í janúar. Allmikill um tíma um og fyrir miðjan febrúar, fáeinir cm um tíma í mars, þó 15 cm einn dag. Föl var nokkra daga í apríl og síðast varð alhvítt 3. maí, en aðeins 1 cm. 

Slide3

Kortið sýnir veður að morgni mánudagsins 18.janúar - þá er enn suðaustanátt með hlýindum á Norðaustur- og Austurlandi en heldur farið að draga úr snjókomunni kuldamegin skilanna. Á Stórhöfða er norðanstrekkingur og -2 stiga frost. Lægðin sem á yfirlitskortinu hér að ofan var nokkuð fyrir sunnan land hefur nálgast - miðja hennar er skammt suður af Öræfum. 

Nokkurn tíma tók að koma umferð á réttan kjöl eftir snjókomuna. 

Nýja Dagblaðið 28.janúar:

Umferð yfir Hellisheiði, sem tepptist nær með öllu í síðustu snjóum, er nú hafin að nokkru attur. Hefir nú verið gert vel bílfært að Kolviðarhóli. Voru 28 menn við snjómokstur á veginum þangað í þrjá daga fyrir og eftir helgina [sunnudagur 23]. Þegar mokstrinum var lokið, fór umferð aftur að aukast yfir Hellisheiði. Á annað hundrað manns kom að austan yfir heiðina i fyrradag og að Kolviðarhóli. Snjóbifreiðar ganga þaðan og a Kambabrún. Flytja þær nokkuð af mjólk en mest mun flutt á sleðum. Öðrum bifreiðum er heiðin ófær. Þó komst litt hlaðin bifreið alla leið yfir heiðina nýlega. þræddi hún hina hörðu slóð snjóbifreiðanna. þótti þar vel hafa til tekist. Bifreiðasamgöngur, eru sæmilegar víðast um Suðurlandsundirlendið og upp á Kambabrún.

Í blaðinu hafði áður komið fram að lítið hafði snjóað vestan Hafnarfjarðar - og vegur til Keflavíkur ekki teppst að ráði.

Leysingar náðu til Austurlands og ollu flóði í Lagarfljóti:

Morgunblaðið segir frá skemmdum á Lagarfljótsbrúnni 29.janúar:

Lagarfljótsbrúin er nú ófær öllum farartækjum og jafnvel gangandi mönnum. Vegna aðstöðu verður aðgerð á brúnni ekki lokið fyrr en lækkar í f1jótinu, en gangfært verður yfir mjög fljótlega (segir í tilkynningu frá vegamálastjóra). Það var austasti stauraokinn undir brúnni, sem brotnaði á föstudagsnótt í óvenju miklum vatnavöxtum og ísreki og féll þá niður í fljótið annar endinn á gólfpallinum á austasta opinu, en hinn endinn situr á landstöplinum. Fljótið er þarna grynnst og venjulega þurr farvegurinn, og þessi oki er sá eini sem ekki er varinn með sterkum ísbrjót. Hefir það ekki komið að sök þau full 30 ár, sem brúin hefir staðið.

Síðustu helgi mánaðarins var blíðuveður sem notað var til skíðaiðkunar.

Morgunblaðið 2.febrúar:

Fjöldi bæjarbúa notaði góða veðrið til skíðaferða um helgina [31. janúar, sunnudagur], og er talið, að alls hafi 3-4 hundruð manns verið á skíðum á sunnudaginn, á Hellisheiði, í Bláfjöllum, í Skálafelli í Esju og víðar. Margt skíðafólk fór þegar á laugardaggkvöld og gisti í skíðaskálunum. Veður var dásamlegt á fjöllum, glampandi sólskin lengi dags og kyrrt veður, þó er sól enn svo lágt á lofti, að hún er ekki orðin verulega sterk, en þess verður ekki lengi að bíða og þá renna upp bestu dagar skíðamannsins, er hann kemur aftur kolbrúnn af sól í bæinn, eftir eins dags skíðaferð.

Snemma í febrúar urðu miklar símabilanir í ísingarveðri:

Morgunblaðið lýsir þeim 9.febrúar:

Samkvæmt fregn, sem póst- og símamálastjóra hefir borist frá umdæmisstjóranum í Seyðisfirði, hafa orðið allmiklar símabilanir af völdum ísinga á Austurlandi: Símalínur milli Bakkafjarðar og Vopnafjarðar féllu niður á löngu svæði á Sandvíkurheiði, eða af 44 staurum á svæði línumannsins á Hámundarstöðum, en fregnir voru ekki komnar um skemmdir Bakkafjarðarmegin. Sunnan í Búrfelli milli Vopnafjarðar og Fagradals, brotnuðu að minnsta kosti 3 staurar og línan milli Fagradals og Ketilsstaða féll niður á löngu svæði og Gönguskarðinu milli Unaóss og Njarðvíkur féllu niður línur á nokkru svæði. ... Í Króardal milli Seyðisfjarðar og Mjóafjarðar féll línan niður af 10—15 staurum. Er nú unnið að viðgerðum á öllum svæðum og hefir tekist að halda símasambandinu að mestu leyti nothæfu. Á aðfaranótt laugardagsins [6.febrúar] var einnig allmikil ísing á Suðurlandsundirlendinu og féllu niður Vestmannaeyjalínurnar á öllu svæðinu frá Hólum í Landeyjum að sæsímanum í Landeyjasandi, og varð á þann hátt talsímasambandslaust við Vestmannaeyjar á laugardaginn.

Hvassviðri olli vandræðum í Keflavíkurhöfn (rétt einu sinni) þann 26.febrúar og um svipað leyti féll snjóflóð vestur í Arnarfirði: 

Morgunblaðið 26.febrúar:

Í nótt rak vélbátinn Höfrung á land í Keflavík. Brotnaði báturinn mjög á annarri síðu. Höfrungur var á leið frá Reykjavík til Vestmannaeyja með vörur, en hafði leitað til Keflavíkur undan óveðrinu. Magnús Guðmundsson skipasmiður úr Reykjavík var fenginn hingað suðureftir til að reyna að ná bátnum út. Austan rok hefir verið hér í þrjá sólarhringa og hefir veðrið ollið ýmsum smáskemmdum á bátum. Þegar rokið skall á á þriðjudaginn [23.] voru allir bátar á sjó. Er þeir komu að gátu þeir ekki landað aflanum fyrir óveðri og lögðust flestir undir Hafnargarðinn. En hafnargarðurinn er alltof lítill fyrir alla þá báta sem ganga frá Keflavík. Sex bátar fluttu sig þess vegna til Hafnarfjarðar og þrír inn á Voga. Í nótt lágu 12—14 bátar við garðinn og skemmdust þeir allir meira eða minna, en enginn þó svo mikið, að draga þurfi á land. Austanrok er versta veður sem kemur í Keflavík.

Morgunblaðið hefur þann 27.febrúar eftir Fréttastofu útvarpsins:

Snjóflóð féll aðfaranótt fimmtudags [25.febrúar] á Álftamýri í Arnarfirði og reif þar burtu túngirðinguna á nokkru svæði, braut þakið af kúahlöðunni, tók þakið af fjósinu og fyllti fjóstóftina fönn. — Kýrnar náðust þó lifandi, en tvö lömb, sem voru í fjósinu, voru dauð, er til þeirra náðist. (FÚ.).

Eins og áður sagði var mjög þurrt um vestanvert landið í mars, þráviðrasamt var og veðri misskipt á landinu.

Húsavík í mars (Benedikt Jónsson frá Auðnum):

Þótt sjaldan væru grimmdarveður og aldrei eiginlegar stórhríðar, þá var veðráttan þó mjög óhagstæð, umhleypingar og slitringshríðar og logndrífur á víxl. Allan mánuðinn að mestu haglaust um allt héraðið, meira vegna margfaldra áfreða en snjódýptar.

Reykjahlíð í mars (Gísli Pétursson):

Allan marsmánuð var fremur hæg veðurátta, óvenjulega margir logndagar. Snjókoma mikil og snjór var orðinn mjög mikill, þegar brá til suðaustanáttar og þíðu 29. mars. Sauðfé var beitt hér fleiri daga mánaðarins, en það var eini bærinn hér í sveit, sem beitt var á, og jafnvel í allri sýslunni. Frost varð oft mjög mikið hér og allmiklu hærra en útvarpað var „sem mesta frosti á landinu“ og er það ekkert óvinalegt hér.

Reykjanesviti í mars (Jón Á. Guðmundsson):

Sérstaklega bjart og gott veður. Þó nokkuð kalt. Gæftir ágætar og afli sæmilegur í net og ef beitt var loðnu. En hún var mjög mikil, einkum hér í röstinni. Beit var sæmileg þó jörð væri þurr og frosin.

Óhöpp urðu á sjó um mánaðamótin mars/apríl: Þann 30. mars fórust tveir menn í lendingu á báti við Djúpavog og 1. apríl strandaði breskur togari við Stokkseyri, öll áhöfnin fórst.

Þó nokkra hríð gerði snemma í maí. Alhvítt varð víðsvegar um land, nema allrasyðst. Snjódýpt fór í 58 cm í Kjörvogi á Ströndum, en eitthvað af því munu hafa verið fyrningar úr fyrri mánuðum. 

w_1937-05-03a

Kortið sýnir hríðarveðrið 3. maí. Frost og hríð um mestallt land. Þann 18. eða 19. maí fórst vélbátur frá Súðavík og með honum fjórir menn. Fleiri bátar lentu í vandræðum. 

Lítilsháttar hafís kom að landinu í júní. Þann 28. var hann kominn að Selskeri í Húnaflóa og sá ekki út fyrir hann þar um slóðir. 

Morgunblaðið 1. júlí:

Hafíshröngl er ennþá meðfram Ströndum og alla leið inn á Húnaflóa. Grynnri ísspöngin er, eftir því sem skipshafnir á síldveiðiskipum sem komu til Siglufjarðar, sögðu í gær, komin alla leið upp undir Gjögur, en siglingarleiðin er þó nokkurn veginn íslaus. Aðeins einstakir jakar hafa sést á þeirri leið.

Morgunblaðið 4.júlí:

Fréttaritar Morgunblaðsins á Siglufirði símaði í gær að bleytuhríð hefði verið á Siglufirði í gær og fjöll öll alhvít af snjó niður í miðjar hlíðar.

Blöðin á þessum árum voru full af síldveiðifréttum. Afkoma þjóðabúsins réðist mjög af árangri síldveiðanna. Þær voru aftur á móti talsvert háðar veðri. Bátar voru smáir og veiðar útilokaðar í strekkingsvindi eða meira. 

Morgunblaðið 16.júlí:

Nóg síld virðist vera allstaðar fyrir Norðurlandi, en illviðri hamla stöðugt veiðum svo til stórvandræða horfir. Veiðiveður var slæmt á síldarmiðum í gærdag, norðaustan bræla og þokusúld. ... Til Siglufjarðar bárust alls um 8000 mál síldar frá því í fyrradag og þar til í gær. Var það afli 20 skipa sem öll höfðu verið að veiðum á Siglufirði. Hin stöðuga ótíð er farin að gera menn vondaufa um að síldveiði verði í meðallagi í ár, hvað þá fram yfir það.

Þurrir og góðir dagar komu um landið sunnan- og vestanvert fram eftir júlí, en heyþurrkar voru samt stopulir og sláttur hófst seint sökum slakrar sprettu. 

Nokkrir góðir daga komu suðvestanlands í júlí - hér er lýsing á einum þeirra.

Morgunblaðið 24. júlí:

Aldrei á þessu sumri hefir verið slíkur mannfjöldi í sól og sjóböðum í Skerjafirði eins og í gærdag. Mestur hiti sem mældist í sjónum í Skerjafirði í gær, var 25 stig á Celsius. Var það í fjöruborðinu á aðfallinu. Langt úti í firði var sjávarhitinn 14 stig. Giskað er á að 600—700 baðgestir hafi veríð í Skerjafirði í gær. Notið sjóinn og sólskinið.

Í lok júlí gerði miklar rigningar á Austfjörðum og Suðausturlandi. Selá í Geithellnahreppi braust fram og bar gjót og leir á stór svæði á engjum. Ár flóðu yfir bakka sína í Hornafirði og ollu heysköðum. Byrjað var að mæla úrkomu við Berufjörð árið 1873 og reyndist úrkoman í júlí 1937 sú mesta í þeim mánuði þar fram að þeim tíma, 256,1 mm, um fjórföld meðalúrkoma (eins og meðaltalið var þá). Síðan hefur úrkoma í júlí nokkrum sinnum mælst ámóta eða lítillega meiri. 

Sumrin 1937 og 1938 voru gerðar mælingar í Hvítárnesi við Hvítárvatn. Þetta munu vera fyrstu formlegu mælingarnar sem gerðar voru í óbyggðum Íslands. Áður hafði þó verið athugað í heilan vetur á Jökulhálsi við Snæfellsjökul, 1932-33. Stöðin í Hvítárnesi var talin vera í 425 m hæð yfir sjó. Það er reyndar lægra en athugunarstöðin í Möðrudal. Hún er í um 450 metra hæð - en er auðvitað í byggð. Á þessum árum var skipulega verið að taka loftmyndir af hálendi Íslands vegna landmælinga og kortagerðar og var stöðin starfrækt vegna þessa. Athuganir voru sömuleiðis auknar á ýmsum stöðum öðrum í nágrenni hálendisins.

Árið 1937 var athugað 7. júní til og með 7. september. Fjórar athuganir á dag og sendar sem skeyti niður að Geysi þar sem þau voru símsend til Veðurstofunnar. Mestan hita mældi Jón 11. júlí, 18,4 stig, en -2,4 stiga frost aðfaranótt 4. júlí. Þann 11. júlí mældist einnig hæsti hiti sumarsins í Reykjavík, 20,4 stig. Ekkert frost mældist í Hvítárnesi frá upphafi mælinganna í júní til loka mánaðar og í ágúst var aðeins ein frostnótt, þann 19. Þá mældist frostið -1,0 stig. Ekkert frost mældist þá viku sem athugað var í september. Athuganirnar gerði Jón Jónsson, sá sem síðar varð fiskifræðingur og forstjóri Hafrannsóknastofnunarinnar.

Í júlískýrslu sinni ritar Jón:

Fréttir eru héðan fáar, nema að hingað er stöðugur ferðamannastraumur, bæði útlendingar og innlendir ferðamenn. Skemmdir af völdum óveðurs hafa hér engar orðið nema ef helst skyldi telja að undanfarna daga hefi ég ekkert heyrt í Geysi vegna lofttruflana. En þetta lagast vonandi bráðum því síminn sendi hingað mann til þess að lagfæra þetta; annars hefur sambandið við Geysi alltaf verið í sæmilega góðu lagi. Annað er hér fátt að frétta; jörð er hér alauð og snjór að mestu farinn úr fjöllum. Úr skriðjöklinum hrynur jafnt og þétt, en seinni hluta mánaðarins hafa þó verið mjög fáir jakar á vatninu. Undanfarna daga hefur verið hér mikil rigning, svo mikill vöxtur hefur hlaupið í ár hér; Fúlakvísl hefur brotið af sér brúna, sem var sett á hana núna nýlega og flæðir nú töluvert yfir bakka sína. Vegur er nú kominn á Hveravelli og Ferðafélagið vígði veginn á sunnudaginn var. Fleira er nú ekki í fréttum að sinni. Kær kveðja - Jón.

Í ágústbyrjun eykst þungi rigningasumarsins:

Morgunblaðið 5. ágúst:

Til stórvandræða horfir víða í sveitum, einkum austan til á Suðurlandi, vegna hinna langvarandi óþurrka. Verst er ástandið í austurhluta Rangárvallasýslu (frá Hvolhreppi), í Vestur-Skaftafellssýslu og vesturhluta Austur-Skaftafellssýslu. Á öllu þessu svæði má segja að varla sé kominn baggi í hlöðu, og er nú komið fram í ágústmánuð. Sláttur byrjaði að þessu sinni nokkuð seint hér syðra, vegna þess að bændum þótti illa sprottið. En frá 20.—25. júlí mun sláttur almennt hafa byrjað, en síðan hefir enginn þurrkdagur komið hér austan til á Suðurlandi. Liggur því taða bænda a á þessu svæði nú undir skemmdum, og sumstaðar er taðan svo hrakin, að hún er að verða ónýt sem fóður. Hér horfir því til stórvandræða. Verst er ástandið, eins og fyrr segir, í austurhlut a Rangárvallasýslu, Vestur-Skaftafellssýslu og vesturhluta Austur-Skaftafellssýslu. En ástandið er enganveginn gott hér vestan til á Suðurlandi, í Borgarfirði, á Vesturlandi og Norðurlandi, austur að Skagafirði. Þurrkdagar hafa verið fáir á þessu svæði og hey hrakist víða, og hirðingar ekki góðar. Og nú upp á síðkastið hafa engir góðir þurrkdagar komið á öllu þessu svæði, svo að þar er útlitið ekki gott, ef ekki breytir um til batnaðar hið skjótasta. Austan til á Norðurlandi (frá Skagafirði) og á Austurlandi hefir tíð verið góð undanfarið og sláttur gengið vel það sem af er.

Morgunblaðið 12. ágúst:

Mikill hluti af töðu bænda á öllu Suður- Suðvestur- og Vesturlandi liggur undir skemmdum, vegna hinna langvarandi óþurrka, sem gengið hafa að heita má óslitið síðan sláttur byrjaði. Eina uppstyttan, sem komið hefir var um síðustu helgi (8. ágúst), en hún stóð skamma stund, eða víðast hvar aðeins sunnudaginn. Á Suðvestur- og Vesturlandi kom rigningin aftur strax á mánudagsmorgun (9. ág.), hér austan fjalls upp úr hádegi, en í Skaftafellssýslu hélst að mestu þurrt allan mánudaginn. Uppstyttan gagnaði því Skaftfellingum ofurlítið betur, en þeir höfðu heldur ekki neinni tuggu náð inn áður.

Morgunblaðið 21. ágúst:

Bændur á óþurrkasvæðinu náðu inn miklu af heyjum á þriðjudag [17.] og miðvikudag, því að þá var víðast hvar sæmilegur þurrkur og sumstaðar ágætur. En þessir tveir þurrkdagar nægðu þó ekki til þess að ná inn öllu, sem losað var, enda var orðið feikna mikið úti af heyjum á öllu Suður- og Vesturlandi. Þessir tveir þerridagar löguðu þó mikið fyrir bændum á óþurrkasvæðinu, en útkoman á heyskapnum er og verður alltaf mjög slæm. Hey eru yfirleitt hrakin og léleg til fóðurs.

Morgunblaðið 26. ágúst:

„Síðastliðinn sólarhring hefir verið vont veður og snjóað niður í miðjar hlíðar", símar fréttaritari Morgunblaðsins á Siglufirði í gær. Ennfremur símar hann: „Mörg skip leituðu hafnar vegna veðurs og sögðu mikinn sjó úti fyrir. Stöðva varð löndun á Siglufirði í nótt er leið vegna illveðurs, en byrjaði aftur á hádegi“.

w-1937-sildarskeyti-fra-grimsey-13-14-agust

Í ágúst sendi Matthías Eggertsson veðurathugunarmaður í Grímsey svokölluð síldarskeyti til Siglufjarðar þrisvar á dag. Í þeim voru upplýsingar um veður, skipaferðir - og síld, ef hún sást. Upplýsingarnar voru lesnar í útvarp fyrir síldveiðiflotann (hvort það hefur verið í Ríkisútvarpið eða aðeins í gegnum loftskeytastöðina á Siglufirði veit ritstjóri hungurdiska ekki). 

Ingibjörg Guðmundsdóttir í Síðumúla segir af sumarmánuðunum tveimur 1937, júlí og ágúst. Aðfaranótt þess 4. júlí var köld, þá fraus víðar en í Síðumúla.

Júlí: Fyrstu dagar mánaðarins voru kaldir, sérílagi næturnar. Aðfaranótt þ. 4. sýndi lágmarksmælirinn 0,2 stig frost. Eftir það hlýnaði í veðri og grasið tók að spretta. Um miðjan mánuðinn byrjaði almennt sláttur hér í grennd, sumstaðar fyrr. (Grasspretta er í lakara lagi, en er að batna). Þá var um tíma sæmileg veðrátta, svo að hægt var að þurrka hey, en alla síðastliðna viku var þerrilaust og oft nokkur rigning. Aldrei tók svo af heyi að væri snúið flekk. Er því allstaðar úti, meira en vikuheyskapur í ljá og flötum flekkjum. Í dag (1.8.) er súld og rigning og ófært veður til að skemmta sér úti.

Ágúst: Allan ágústmánuð út var samfelld votviðratíð. Einir 3 dagar mánaðarins voru úrkomulausir. Eftir miðjan mánuð voru nokkra daga þurrkflæsur, þó með smáskúrum. Var þá víða náð inn nokkru af illa þurri hrakinni töðu. Síðan hefir ekkert náðst inn hér, en mikið úti af töðu og útheyi, föngum, sætum, flekkjum og ljá. Engjar eru orðnar dável sprottnar, en víðast flóandi í vatni. Háin er illa sprottin.

Dómar um ágústmánuð voru mjög ólíkir norðaustanlands og á Suðvesturlandi.

Fagridalur í Vopnafirði í ágúst (Oddný S. Wiium):

Tíðin afbragðsgóð og hagstæð bæði á sjó og landi.

Sámsstaðir í ágúst (Klemens Kr. Kristjánsson):

Mánuðurinn raka- og rigningasamur með óvenjuköldu tíðarfari. Svo að segja engir þerrar. Sólarlítið og hráslagalegt veður frá byrjun til enda mánaðarins. Olli þetta tíðarfar miklum skemmdum á heyjum. Töður hröktust mikið og allt annað. ... Tíðarfarið hið óhagstæðasta sem verið getur og ólíkt því sem elstu menn muna.

Í ágústlok kom mikil lægð að landinu úr suðri og olli hvassviðri víða um land og óhemjurigningu á Suðaustur- og Austurlandi. Tjón af skriðuföllum varð í Eskifirði og einnig mun í Norðfirði. Blaðafregnir greina frá:

Þjóðviljinn 3. september:

Á Austurlandi gerði aðfaranótt 1. þessa mánaðar stórrigningu af austri. Olli hún miklum vatnavöxtum, og féllu við það skriður úr fjöllum. Fréttaritari útvarpsins á
Eskifirði símar í dag: Í fyrri nótt gerði aftaka rigningu af austri og hélst hún fram á kvöld í gær. — Þegar fram á daginn leið tóku að falla skriður úr Hólmatindi. Féllu 2 allstórar skriður um miðja Hólaströnd en gerðu ekki annað tjón en að stöðva umferð um veginn. Þriðja og mesta skriðan féll skammt fyrir innan fjarðarbotn á tún þeirra Kristjáns Tómassonar og Péturs Jónassonar og eyddi því að mestu — en það er nýrækt, 60 hesta tún aðallega sáósléttur og þaksléttur. Huldust þær gjörsamlega aur og stórgrýti. Hólmamegin féllu úr tindinum að sunnan tvær skriður. Féll önnur þeirra vestan við svonefnda Illukeldu, og eyddi 120 metra breiðri engjaskák frá þjóðvegi og niður að nýrækt. Ennfremur kom hlaup í bæjarlækinn á Hólmum. Stöðvaðist það við brú á læknum og bar aur og leðju inn á túnið. Tókst að rjúfa brúna svo að lækurinn fékk framrás og urðu skemmdir minni en á horfðist í fyrstu.

Morgunblaðið 2. september - segir af rigningu í Norðfirði:

Óhemju rigningarveður hefir verið hér í dag, og urðu stórhlaup í öllum lækjum, sem orsakað hefir flóð í kauptúninu. Miklar skemmdir hafa orðið á vegum og matjurtagörðum af vatnsflóðunum. Uppfyllingar og brýr í Miðstræti sprengdi vatnið fram. Stór upphleðsla yfir Franskagil sprakk og rótaðist fram alla leið til sjávar. Meiri hluti gatna í bænum eru ófærar vegna flóða. Sumstaðar er hnédjúp aurbleyta. Stórhætta er á frekari skemmdum við Strandgötu, ef ekki styttir upp. Þá hafa orðið miklar skemmdir á túni Sigfúsar Sveinssonar, því flóð hefir borið aur yfir alt túnið. Flóðin hafa rifið upp kartöflur úr görðum og borið þær langar leiðir. Má víða sjá kartöflur á götunum. Sumstaðar barst aurleðja inn í kjallara á húsum, en unnið hefir verið að því að verja hús, með því- að veita flóðunum frá þeim. Á einum stað komst aurleðjan upp að gluggum á pakkhúsi, en þó tókst að verja húsið frá skemmdum, með því að moka frá húsinu og grafa nýja farvegi fyrir vatnið. Mest var rigningin klukkan 11—1, en fór heldur minnkandi, er leið á daginn.

Slide7

Hvassviðrið olli allmiklu heyfoki á Suðurlandi. Kortið sýnir veðrið að morgni 1. september. Örin bendir á veðurathugunarstöðina í Hvítárnesi. Hlýtt er um landið suðvestanvert í austræningnum, en mikil rigning austan- og suðaustanlands. Lesa má úrkomutölur næturinnar, þær standa neðst til hægri við stöðina, eining heilir mm. Stækka má kortið. 

Eins og fram kom hér að ofan aðstoðaði Veðurstofan loftmyndatökumenn sumarið 1937 með aukningu veðurathugana. En vegna úrkomutíðar gekk myndatakan ekki sérlega vel. 

Morgunblaðið segir frá henni 12. september:

Starfi landmælingamannanna sem unnið hafa að því að taka myndir af hálendinu úr lofti, er lokið að þessu sinni. Var vonast eftir því, að hægt yrði á þessu sumri að ljúka myndatöku af þessum 20.000 ferkílómetrum, sem ómældir eru. En sífeld dimmviðri og ótíð hafa valdið því, að þetta tókst ekki, enda þótt flugmennirnir hafi notað hverja stund sem hægt var til myndatöku-flugsins.

Þann 14. október ræðir Morgunblaðið við Klemens á Sámsstöðum um kornrækt sumarsins:

Blaðið hefir átt tal við Klemens Kristjánsson tilraunastjóra á Sámsstöðum, og spurði hann hvernig uppskera hans hefði orðið í haust. Það er alt á góðri leið núna, sagði Klemens, ég er búinn að fá alt kornið í stakka. — Hve mikla kornuppskeru býst þú við að fá í haust? — Einar 70—80 tunnur. — Meira verður það ekki, því kornið spillist svo mikið í ofviðrinu 31. ágúst. — Hvernig þroskuðust korntegundirnar í sumar? — Þær þroskuðust allar, þó þetta væri hið kaldasta, úrfellasamasta og sólarminnsta sumar, síðan ég byrjaði á kornræktartilraunum árið 1923 — En samt náði kornið fullum þroska? — Já, bæði tvíraðaða byggið, hafrarnir og rúgurinn, að ógleymdu sexraðaða bygginu, sem alltaf er mín aðal-korntegund. — Hve mikið færð þú af rúgi? — Ég hafði rúg í einni dagsláttu, en fæ ekki nema þrjár tunnur, vegna þess .hve sumarið var slæmt. — Og grasfræið? — Það var með minna móti vegna kuldanna og votviðranna, en það þroskaðist.

Seint í september varð annað alvarlegt eldingaratvik.

Morgunblaðið segir af því þann 15.október:

Eldingu laust niður hjá bænum Lunansholti á Landi þann 29. fyrra mánaðar [september]. Drap eldingin tvær kindur og reif upp þúfu, sem hún lenti í. Maður, sem úti var er eldingunni laust niður, féll við loftþrýstinginn, en bærinn lék á reiðiskjálfi Eldingunni laust niður að morgni dags fyrrnefndan dag. Gengu þá snarpar hryðjuskúrir úr suðri og útsuðri með þrumum. Ein þruman var fáum þrumum lík — einna líkust geysisterkri fallbyssudrunu, sem hjaðnar allt í einu. Með þessari þrumu kom eldingin. Bóndinn í Lunansholti var staddur úti við bæ og féll hann á hné af loftþrýstingnum, eins og fyrr er sagt, og kenndi á eftir undarlegs svima. Kindurnar, sem drápust er eldingunni laust á þær, voru ær með lambi sínu. Eldingunni hafði lostið í ána og sviðið alla ull af hrygglengjunni, en lambið hitti hún fyrir framan bóg og einkum þó á höfuðið. Ullin, sem sviðnað hafði af eldingunni, var blásvört að lit. (Samkv. Fréttastofu Útvarps;)

Slide6

Veðurkort bandarísku endurgreiningarinnar sýnir stöðuna í háloftunum eldingadaginn 29. september. Mikil og köld háloftalægð er skammt vestan við land og skilyrði til þrumuklakkamyndunar ákjósanleg. 

Talsvert illviðri gerði 16. til 17. október með minniháttar tjóni:

Morgunblaðið segir frá þann 19. október:

Um helgina gerði suðvestan storm um alt Suðvestur- og Austurland. Veðurhæð var þó hvergi meiri en 10 vindstig hér sunnan lands t.d. í Vestmannaeyjum. Veður tók að hvessa hér aðfaranótt sunnudags [17.] og var vindur fyrst suðaustlægur, en gekk síðan til vesturs. Stormsins gætti lítið sem ekkert á Norðurlandi, en eftir upplýsingum Veðurstofunnar náði hvassviðrið alla leið milli íslands og Noregs og til Hjaltlandseyja. Ekki hefir frést af neinu verulegu tjóni, sem orsakast hafi af veðrinu beinlínis. Á sunnudagsmorgun voru menn farnir að óttast um tvo báta. Línuveiðarinn Fjölnir var á leið frá Þingeyri með farþega til Reykjavíkur. Hann lá af sér mesta veðrið við Sand á Snæfellsnesi. Vélbáturinn „Víðir" frá Vestmannaeyjum var á leið frá Reykjavík til Vestmannaeyja. Hann komst til Njarðvíkur og var þar meðan versta veðrið stóð yfir. Tvö farþegaskip, „Lyra" og „Dronning Alexandrine" voru á leið til landsins og töfðust þau bæði vegna veðurs. „Dronning Alexanddrine" lá til drifs í sólarhring. Sjór kom á skipið, sem beygði bátsuglur og braut björgunarbáta. Skipið kom í gærmorgun til Vestmannaeyja og var væntanlegt hingað snemma í morgun. Lyru seinkaði einnig um sólarhring og er væntanleg hingað í dag. Hér í Reykjavíkurhöfn urðu dálitlar skemmdir á vélbátum sem slógust saman í rokinu, þar sem þeir voru bundnir við bryggju.

Eins og þegar er fram komið var tíð hagstæð í nóvember og desember og fékk góða dóma veðurathugunarmanna.

Ingibjörg í Síðumúla segir frá nóvembermánuði:

Í nóvembermánuði hefir verið einmunagóð tíð, stilt og mild og hin ákjósanlegasta. Jörð er kalla má auð. Skaflar aðeins í giljum og djúpum lautum. Bílar ganga enn hiklaust milli Borgarness og Sauðárkróks. Hross og fé gengur sjálfala núna, en hefir verið hýst, svo sem vikutíma.

Hér eru tvö dæmi um desemberdóma: 

Hamraendar í Dölum í desember (Guðmundur Baldvinsson):

Desembermánuður hefur verið óvenju góður, hlýindi og fremur úrkomulítið. Um miðjan mánuð gjörði töluvert frost, en það hélst aðeins stuttan tíma. Enn er töluverður gróður frá liðnu sumri. Þetta er sá besti desember sem fullaldra menn þykjast muna.

Reykjahlíð við Mývatn í desember (Gísli Pétursson):

Desember-mánuður var með afbrigðum góður svo elstu menn muna varla annað eins.

Enn höfðu menn áhyggjur af hafís:

Morgunblaðið segir 1. desember:

Talsverður hafíshroði er 12 sjómílur út af Deild, Stigahlíðarhorni. Í gœr var vélbáturinn „Kveldúlfur", frá Hnífsdal á þessum slóðum, en gat ekki lagt allar lóðir sínar sökum íss. Skipverjar sáu marga togara halda til lands frá djúpmiðum. Afli hefir verið góður hér við Djúp undanfarið og tíðarfar ágætt.

Þann 17. fauk af kirkju í Ólafsvík, stúlka lá úti á Fróðárheiði, en bjargaðist, á aðfangadag lentu bátar úr Höfnum í hrakningum og á jólanóttina strandaði breskur togari við Gerðar, mannbjörg varð.

Hér lýkur þessari lauslegu yfirferð hungurdiska um árið 1937 - tölur má finna í viðhenginu.


Skrár tengdar þessari bloggfærslu:

Aðeins meira af apríl

Við lítum á stöðuna í háloftunum í apríl. Kort að vanda frá evrópureiknimiðstöðinni í gerð Bolla P. 

w-blogg020522a

Gæðalegur hæðarhryggur var við landið. Hlýindi fyrir vestan hann, en kalt austur í Skandinavíu. Afskaplega æskileg vorstaða hér á landi. Jafnhæðarlínur 500 hPa-flatarins eru heildregnar, en þykktin sýnd með daufum strikalínum. Litir sýna þykktarvikin. Mesta jákvæða vikið er við austurströnd Grænlands, um 80 metrar. Samsvarar það því að hiti sé um 4 stigum ofan meðallags í neðri hluta veðrahvolfs, en minna þó við yfirborð. Hér er miðað við tímabilið 1981 til 2010. Vikið væri minna ef við miðuðum við síðari ár. 

Í apríl í fyrra var vestanátt háloftanna heldur stríðari, mestu jákvæðu þykktarvikin voru þá vestar en nú, en enn ákveðnari. Neikvæðu vikin yfir sunnanverðri Skandinavíu voru þá enn meiri en nú. 

Til gamans leitum við að nánum ættingja í hópi liðinna aprílmánaða - og finnum apríl 1978. 

w-blogg020522b

Við sjáum líka hæðarhrygg - svipaðan yfir landinu, en samt í heildina mjórri en þann sem var í apríl nú. Jákvæðu vikin eru á svipuðum slóðum og nú - en þau neikvæðu víðáttumeiri, þó miðað sé við tímabilið 1901 til 2000. Ritstjóri hungurdiska var erlendis í apríl 1978 og því er þessi mánuður honum ekki minnisstæður. Segir þó í heimildum að hann hafi verið hagstæður, en mjög þurrt hafi verið víða austanlands. Úrkoma mældist ekki nema 2,1 mm allan mánuðinn á Egilsstöðum og engin við Grímsárvirkjun (en mælingar þar teljast nokkuð óvissar), 1,1 mm mældust á Dratthalastöðum. Það er sárasjaldan sem úrkoma mælist jafnlítil á þessum slóðum. Snemma í mánuðinum urðu miklir vatnavextir á sunnanverðum Vestfjörðum og á Norðurlandi. 

Tíð var talin óhagstæð í maí 1978 - en ekki vitum við enn neitt um maí 2022. 


Hlýr og hægur apríl

Apríl var öfgalaus mánuður, en bæði hlýr og hægviðrasamur. Bráðabirgðatölur benda til þess að hann sé sá hægviðrasamasti í meir en 30 ár og jafnframt í hópi þeirra hlýrri á öldinni. Röðun í sæti er að vísu nokkuð misjöfn eftir landsvæðum.

w-blogg010522a

Að tiltölu var hlýjast við Faxaflóa. Er mánuðurinn sá þriðjihlýjasti á öldinni, en raðast yfirleitt í fjórða til sjöunda hlýjasta sætið. Að tiltölu var svalast á Austfjörðum þar sem hann raðast í 9. sæti. 

Er þetta góð hvíld frá ruddafengnum umhleypingum vetrarins. Maí virðist ætla að byrja heldur svalari (að tiltölu) - en engan veginn er þó útséð um neitt í þeim efnum. 

Fréttir af meðalhita á einstökum stöðvum, úrkomu og fleira koma svo frá Veðurstofunni innan nokkurra daga. 


Lítið veðurkerfi fer hjá

Veðurkerfi eru af öllum stærðum - sum eru svo óveruleg og fara svo hljóðlega hjá að vart er tekið eftir - en þau eru samt. Við lítum hér á neðan á eitt slíkt kerfi sem kemur að landinu seint í nótt (aðfaranótt föstudags 29.apríl) og fer yfir það á morgun. Rétt er að vara lesendur við strembnum texta - þar sem engin miskunn er sýnd. 

w-blogg280422a

Kerfið kemur einna best fram á 500 hPa og 300 hPa-kortum. Þar kemur það fram sem greinilegt lægðardrag. Á myndinni (500 hPa) má sjá lögun þess af legu jafnhæðarlína (heildregnar) og þar með vindátt og vindstyrk (örvar). Litirnir á kortinu sýna hita. Kaldast er í dökkgræna litnum, þar er meir en -28 stiga frost. Ástæða kuldans getur verið að minnsta kosti tvenns konar (enn fleira kemur til greina). Annars vegar séu hér á ferð leifar af köldu lofti að vestan eða norðan sem lokast hefur inni í hlýrra umhverfis. Hins vegar, og það finnst ritstjóra hungurdiska líklegra, að hér megi greina uppstreymi og niðurstreymi í kerfinu af dreifingu litanna. Loft sem streymir upp kólnar, en það sem streymir niður hlýnar. Lægðardragið hreyfist hér til austurs - uppstreymi er á undan því og þar með kalt, því kaldara sem uppstreymið er ákafara. Vestan dragsins (bakvið það) er hins vegar niðurstreymi, loft í niðurstreymi hlýnar. 

w-blogg280422b

Næsta kort sýnir sjávarmálsþrýsting, úrkomu, hita í 850 hPa-fletinum og vind í 10 m hæð. Þetta er á sama tíma og fyrsta kortið. Ekki sér móta fyrir neinni lægðarmyndun - alls ekki -  við erum í hér í hæðarhrygg, og varla sér heldur nokkurs stað í 850 hPa-hitanum. Við sjáum hins vegar nokkra úrkomuflekki, mest á undan háloftadraginu, þar sem við gátum okkur til að væri uppstreymi. Sé farið í smáatriðin má sjá lítil skúramerki í úrkomusvæðinu yfir Vestfjörðum - líkan evrópureiknimiðstöðvarinnar giskar á að þar séu skúraklakkar á ferð (mjög óst0ðugt loft). Úrkomuákefðin er ekki mikil, en þó sýna dekkstu, grænu flekkirnir ákefðina 1,5 til 3 mm á 3 klst - einhver gæti blotnað. Þessi árstími er ekki mjög gæfur á myndun klakka. Ef við værum hér í júlímánuði væri næsta líklegt að úr þessu yrðu töluverðar síðdegisdembur í flatt hey á Suður- og Vesturlandi - afskaplega erfið staða fyrir veðurfræðinga fortíðar á miðju rigningasumri - og það í hæðarhrygg.

w-blogg280422c

Þetta kort nær um allt Norður-Atlantshaf og sýnir það sem kallað er stöðugleikastuðull. Sjá má af litunum hversu stöðugt loftið er, kannski hversu mikið þarf að hreyfa við því til að það taki að velta af sjálfu sér. Á brúnu svæðunum er stöðugleiki lítill, en mikill á þeim grænu. Talan sjálf segir frá mun á mættishita við veðrahvörf og jafngildismættishita í 850 hPa-fletinum. Þetta hljómar heldur flókið - en því minni sem þessi munur er, því óstöðugra er loftið - fari það á annað borð að lyftast. Ástæður þeirrar lyftu geta verið ýmsar, t.d. hlýtt yfirborð lands síðdegis á sumardegi - eða fjallshlíð sem loftið rekst á. Í kerfinu „okkar“ er lægsta gildi stuðulsins minna en 5 stig. Þetta lágmark fer yfir Vesturland í fyrramálið - eins og reyndar má sjá á úrkomukortinu að ofan. Af spákortum má sjá að í framhaldinu á þetta kerfi að fara suðaustur fyrir land, sameinast þar lægðinni litlu sem er á kortinu beint suður af landinu og fara síðan í með henni yfir Bretland, suður um Spán og svo austur til Ítalíu. Ótrúlega samheldið allt saman þótt lítið sé - sé að marka spárnar (sem ekki er víst).

w-blogg280422d

Síðasta kortið sýnir jafngildismættishitasnið (heildregnar línur), rakastig (litir) og vatnsmagn í lofti (rauðar strikalínur), allt á sama tíma og áður, kl.6 í fyrramálið. Landið sjálft, hálendi þess er grátt. Sniðið nær yfir landið frá vestri til austurs og rúmlega það (innskotskort). Umfang uppstreymishluta kerfisins „okkar“ er merkt með gulu striki ofarlega á myndinni. Á þvi svæði er loft nærri því rakamettað (rakastig yfir 90 prósent) allt frá sjávarmáli upp í 400 hPa (7 km hæð). Jafngildismættishitalínurnar eru líka mjög gisnar - langt á milli þeirra. Það er nokkurn veginn það sem stöðugleikastuðullinn segir okkur. Svo virðist sem rakt loft kembi fram af og berist enn ofar austan við lægðardragið, allt að veðrahvörfum (þau merkjum við af mjög þéttum línum). Trúlega er þarna háskýjabreiða á ferð. 

Þeir sem vel fylgjast með veðri geta ábyggilega séð eitthvað af þessu öllu - en langflestir verða einskis varir og missa algjörlega af þeirri miklu fegurð sem hér fer hljóðlega hjá. 


Af árinu 1781

Flestar heimildir hrósa heldur tíðarfari ársins 1781, en þó er ljóst að erfiðleikar voru ýmsir. Veturinn var hagstæður framan af, en síðan nokkuð umhleypingasamur. Sumir tala um gott vor, en aðrir segja frá felli. Tvö nokkuð langvinn og leiðinleg hret gerði um vorið. Annað í kringum páskana (um miðjan apríl), en hitt þegar nokkuð var komið fram í maí. Þá virðist hafa snjóað nokkuð víða um land, meðal annars á Suðurlandi. Grasspretta var góð - en misvel gekk að hirða um landið sunnan- og vestanvert. Nóvember var harður, en desember mildur. Almennt fékk haustið góða dóma. 

Færeyskur maður, Nicolai Mohr, dvaldist hér á landi veturinn 1780 til 1781, birti veðurathuganir á bók og notum við okkur það. Við lítum líka lauslega í dagbækur Sveins Pálssonar í uppskrift Haraldar Jónssonar í Gröf. Sveinn var aðallega í Skagafirði, en var þó í nokkrum ferðalögum suður á land. Annálapistlar eru fengnir beint úr Íslenskum annálum Bókmenntafélagsins (stundum styttir lítillega). 

ar_1781t-lambhus 

Myndin sýnir hitamælingar Rasmusar Lievog í Lambhúsum á Bessastöðum. Þó mælirinn sé e.t.v. ekki alveg réttur, sjáum við marga atburði mjög vel. Hlýtt var í nokkra daga fyrir miðjan janúar, en eftir það talavert frost afgang mánaðarins. Ekki er sérlega kalt í febrúar og mars, en talsvert kuldakasti apríl. Eftir mjög hlýja daga um mánaðamótin apríl/maí gerði leiðinlegt kuldakast. Eftir það er stórtíðindalítið í hitamálum, en seint í ágúst kólnaði snögglega, Mjög kalt varð seint í október og í nóvember, en hlýrra í desember.

Við skiptum frásögnum annálanna á árstíðir til að samanburður verði auðveldari. 

[Vetur]: Veturinn fær allgóða dóma. Helst að Espólin sé þungorður - blotaumhleypingar eru auðvitað engin úrvalstíð í Skagafirði þótt snjór sé e.t.v. ekki mikill. 

Vatnsfjarðarannáll yngsti: Vetrarveðurátta frá nýári og fram yfir sumarmál var að vísu óstöðug, með sterkum frostum og köföldum á milli, þó ætíð nægilegar jarðir;

Úr Djáknaannálum: Vetur mjög frostalítill svo klaki kom fyrst í jörð á þorra að kalla mátti. Veðrátta síðan óstöðug með regnum og útsynningsfjúkum, sérdeilis alla góu, einkum syðra og vestra, svo færri mundu þar slíka umhleypinga.

Höskuldsstaðaannáll: Veturinn var í betra lagi, ekki langsamar stórhríðir né jarðbönn, þó fjúkapáskar í síðustu vetrarviku.

Íslands árbók: Gjörðist vetur í meðallagi og þó nokkuð betur, án stóráhlaupa. Á langaföstu kom ein dugga (s100) inn á Eyjafjörð ... lá hér fram á vor fyrir hindran af hafís, lagði í millitíð út til Hríseyjar og mætti þar áfalli af veðri og hafís ... [Hér er áreiðanlega átt við sama skip og Mohr talar um að komið hafi til Akureyrar 1. apríl og hann hitti síðan í Hrísey í maílok]. 

Espihólsannáll: Veðurátta frá nýári og fram á gói ærið góð, þaðan af stríðari með umhleypingsfjúk- og áfreðahríðum, so oftar var annað dægur regn, en annað frosthríð, og þessi veðurátt varaði fram á sumarmál í Eyja- og Skagafjarðarsýslum. . (Vetur frá nýári til þorraloka góður. Versnaði þá veðurátt, so þaðan af fram yfir sumarmál var mesta ónotaveður.

Ketilsstaðaannáll: Vetur til nýárs harður, en þaðan af góður, ...  

Espólín: XXVI Kap. Veturinn versnaði með þorra lokum, og var allillur fram yfir sumarmál, var þá svo mikill bjargarskortur, að hrossakjöts át gjörðist tíðara en nokkurn tíma fyrr hafði verið, frá því er kristni kom á land þetta. (s 27).

Janúar (Mohr):
Þann 1. blástur með þéttri snjókomu, 2. bjart veður 5 stiga frost, 3. og 4. þykkviðri og blástur, 2 stiga hiti, 5. og 6. órólegt veður með éljum. 7. sterkur blástur með þéttri snjókomu, birti upp undir kvöld, 5 stiga frost. 8. blástur og regn, 9. sterkur stormur með stórum hrannarskýjum, 8 stiga hiti. 10. og 11. næstum logn og bjart veður, 6 stiga hiti. 12. sama veður, 0 stig. 13. sama veður 4 stiga frost, 14. og 15. misskýjað, hægur vindur 0 stig. 16. þykkviðri, 3 stiga hiti. Að morgni 17. hægur, síðdegis stormur og þétt snjókoma, 2 stiga frost. 18. hryðjur 6 stiga frost. 19. lítill vindur og hreinviðri, framan af degi 7 stiga frost, 12 stiga frost undir kvöld. 20. og 21. hægur og hreinn, 16 stiga frost. 22. sama veður 7 stiga frost, 23. misvindi 4 stiga frost. 24. hægur, 12 stiga frost. 25. hægur vindur, 7 stiga frost, 26. og til mánaðarloka skiptust á bjart veður og snjókoma 10 til 14 stiga frost.

Febrúar (Mohr):
Þann 1. heiður, næstum logn, vindur af suðaustri 4 stiga frost. Um kvöldið sáust óvenjusterk norðurljós, næstum því í hvirfilpunkt; þar léku, eins og oft, margir sterkir litir og snerist í hring eins og mylla á óvenjulegum hraða, hélt sér, án þess að breytast verulegar frá klukkan 8 til 9 um kvöldið. Flestir spáðu harðviðri næsta daga, en þá varð samt hægviðri og skýjað með köflum og 14 stiga frost. Þ. 3. og 4. þykkviðri og snjókoma 4 stiga hiti. 5. bjart, nokkur blástur, 6 stiga frost. 6. hægur, 4 stiga hiti. 7. og 8. hægur og snjókoma, 2 stiga hiti. 9. og 10. bjart, 1 stigs frost. 11. og 12. stormur og snjókoma 9 stiga frost. 13. bjartur og hægur 5 stiga frost. 14. sama veður 11 stiga frost. 15. lítilsháttar snjóél 2 stiga frost. 16. og 17. þykkviðri, 0 stig. 18. bjartviðri, 2 stiga frost. 19. blástur, 3 stiga hiti. 20. sterkur blástur, bjartviðri, 6 stiga hiti. 21. blástur og skafrenningur, 6 stiga frost. 22. næstum logn og bjartviðri, 10 stiga frost. 23. til 27. skiptist á bjartviðri og snjókoma, frost 4 til 10 stig. 28. þykkviðri fyrir hádegi með lítilsháttar snjókomu, 8 stiga frost; undir kvöld sunnanvindur, 5 stiga hiti.

Sveinn Pálsson segir 3. febrúar: „Góðviðrið varir með frosti“. Þann 18.: „Skipti um til hláku“. 9. mars: „Hláka góð og mari“. 

Mars (Mohr):
Þann 1. sterkur blástur með regnskúrum, 5 stiga hiti. 2. sama veður, undir kvöld 0 stig. 3. til 8. breytilegt veður, milli 2 stiga hita og 2 stiga frosts. 9. þykkviðri með regni, 5 stiga hiti. 10. til 22. breytilegt, enginn stormur og stundum logn, milli 3 stiga hita og 3 stiga frost. 22. logn og bjart, 5 stiga frost. 23. sama veður, 2 stiga hiti. 24. til 28. milt veður með vestlægum áttum og skiptist á regn og bjartviðri, 4 til 6 stiga hiti. Hávella sást í fyrsta sinn þessa daga. 29. blástur og snjór, 3 stiga frost, um kvöldið 7 stiga frost. 30. og 31. logn og fagurt veður, 5 stiga frost.

[Vor] Eftir slæmt páskahret kom mjög góður kafli, en snerist svo til kulda þegar fram í maí kom. 

Vatnsfjarðarannáll yngsti: ... síðan góðviðri fyrsta sumarmánuð, þar eftir fram yfir fardaga sterkir norðankuldar og hretviðrasamt; hafísar miklir, einkum fyrir Norður- og Vesturlandi;

Úr Djáknaannálum: Gjörði norðanhríðir um páskana [15. apríl], en batnaði aftur með næsta sunnudegi eftir þá, sem var sá fyrsti í sumri og gjörði góða veðráttu. Vorið gott og snemmgróið, kom þó stórhret um krossmessu svo í lágar komu óklífir skaflar. [Strangt tekið er krossmessa 3. maí, en hún er samt oft í heimildum talin þann 13., mun svo hér]. Hafís kom fyrir sumarmál, umkringdi Strandir og allt Norðurland. Varð þó ei til spillingar veðri. ... Í Árnessýslu kom hríð sú miðvikudag [23.maí] næsta fyrir uppstigningardag, að í Ölvesi dóu af henni 19 kýr og ei allfáar annarsstaðar, ... Um vorið horféllu bæði kýr og sauðfé syðra, því heyin voru lítil og ónýt. ... Í Árnessýslu féllu 260 kýr, 4355 sauðfjár og 334 hestar.  Sæmilegt árferði á Austfjörðum. ... Hafísinn, sem vofraði fyrir norðan fram í Júlium hindraði stundum róðra á Skagafirði. (s228) g3 Um vorið var víða hart til matar, svo fólk dó sumstaðar úr ófeiti, helst í Árnessýslu. ... Þetta og fyrirfarandi ár fækkaði á 8 mánuðum 989 manns á Íslandi. g4. ... 2 bátar fórust syðra. 

Höskuldsstaðaannáll: Vorið og svo í betra lagi (og gott í tilliti til flestra). Grasvöxtur fljótur og góður síðan Urbanus [25. maí]. ...

Íslands árbók: Vorið þótti kalt, þó ei framar venju. 

Espihólsannáll: Vorið var eftir stillt. Í Majo seint kom áhlaup so mikið, að sunnan lands og vestan dó mikið af kúpeningi og öðru fé. Var þetta óaldarvor þar, einkum við sjósíðu, og varð mannfellir mikill.

Espólín: XXVI Kap. Varð þá mannfellir mikill við sjóinn vestra og syðra, þvíað vor var illt, og kom svo mikil hríð miðvikudaginn fyrir uppstigningardag, að á þeim bæjum einum saman, er liggja niður með Varmá, miðreitis í Ölfusi, dóu 19 kýr, og eigi allfáar annarstaðar [beint úr Mannfækkun af hallærum (s104)]. Dó sauðfé framar venju, og eignuðu sumir vanþrifum, er fylgdu hafís; urðu þá jarðir víða lausar í sveitum, því að peningslausir menn lögðust í sjóbúðir, og var þó ekki þessi vetur almennt talinn með harðindisárum. (s 27)

Apríl (Mohr)

Þann 1. hægur vindur, bjartviðri, 0 stig. 2. til 4. stöðugt þykkviðri með snjókomu, 2 stiga frost. 5. logn og bjart, 7 stiga frost. 6. ti 8. þykkviðri og snjóél, 5 stiga frost. 9. til 16. lengst af bjartviðri; stundum þó él, lítill vindur, oftast logn, 6 til 10 stiga frost. 17. til 19. óstöðugir vindar, 0 stig og 1 stigs hiti. 20. blástur og heiðríkt, 5 stiga frost. 21. til 25. hægir vestanvindar 4 til 6 stiga frost. 26. til 30. bjartviðri með sterkum hafvindi um skeið á daginn, hin svokallaða „haf-gola“. Á kvöldin og nóttunni, logn 5 til 7 stiga hiti.

Sveinn Pálsson, 19. apríl: „Kuldi á norðan með fjúkrenningi“, 20.: „Heljar kuldi á sunnan, þó sólskin“ , 23.: „Vestan rosi, snerist í hláku, hvessti mjög“, 3. maí: „Þykkveður og hita molla“, 10. maí: „Hríð með frosti og snjófergja, rak inn hafís“, 13.: „Fjörðurinn fullur af ís“.  

Maí (Mohr)
1. til 6. sama veður og í apríllok. 7. og 8. órólegt veður, 9. blástur úr norðri, 4 stiga frost. 10. til 12. bjartviðri með blæstri, 2 til 4 stiga frost. 13. stormur og skafrenningur, 3 stig frost. 14. til 18. óstöðugt, með blæstri og regni, 2 til 5 stiga hiti. 19. mikil snjókoma allan daginn 0 stig. 20. bjart og logn, 3 stiga hiti. 22. til 24. sterkur blástur, stundum stormur, 4 stiga hiti. 24. til 29. næstum stöðugt logn, 6 stiga hiti. 30. blástur að deginum, logn undir kvöld, 3 stiga hiti. 31. logn og þoka, 1 stigs hiti.

Efnisleg og stytt mjög lausleg þýðing á efni tengt veðri í ferðaskýrslu Mohr um vorið: 

Um miðjan maí varð veður mildara, ís og snjór bráðnuðu hrátt og víða varð grænt. Mohr fór 29. maí með einu af verslunarskipunum frá Akureyri til Hríseyjar (Risöe). Þar hitti hann fyrir fyrsta vorskipið, þar sem kom til Akureyrar 1. apríl eftir erfiða ferð í ísnum við Langanes og víðar undan Norðurlandi. Svo kaldur hafði sjórinn verið að ís hafi hlaðist á reiða og stýrið hafi frosið fast nokkrum sinnum. Eftir að hafa athafnað sig á Akureyri hafi þeir siglt út úr firðinum snemma í maí, en hafi strax séð Grænlandsísinn sem hafði legið allt frá Langanesi til Horns. Skipið sigldi nokkra daga fyrir innan ísbrúnina í von um að finna leið út, en án árangurs. Þvert á móti hefði ísinn nokkrum sinnum þrengt að landi og skipstjórinn var feginn að hafa sloppið aftur inn til Hríseyjar, en var orðinn fárveikur af vökum og kulda og dó um borð á skipinu 4. júní. Þann 31. maí fór Mohr úr Hrísey yfir að Karlsá (utan við Dalvík). Þokuloft var, komnir nær hafísnum sem oftast er umkringdur þykkri þoku. Nokkuð stór ísjaki var strandaður undan landi og kelfdi þegar þeir sigldu hjá, með svo miklum brestum að það var eins og fjöllin væru að hrynja. Frá Karlsá var haldið út í Ólafsfjörð og síðan að Siglunesi. Undrast Mohr það hversu stilltur sjórinn var, eins og siglt væri á stöðuvatni. Þó ísinn væri í 5 danskra mílna fjarlægð (um 35 km) hefði hann samt áhrif á sjólagið. Hið milda og hlýja loft sem lengi hafi viðvarað inni í Eyjafirði var ekki merkjanlegt hér. Ísinn kastaði frá sér svo miklum kulda að meðan sól var lágt á lofti var jörð frosin og grýlukerti og ísskæni mynduðust alls staðar þar sem vatn lak eða rann. Mohr fór síðan aftur til Karlsár, síðan í hvítasunnumessu að Ufsum og síðan yfir á Grenivík. Þá segir hann að allan daginn hafi verið hafgola (sem hann nefnir svo og skýrir út orðið: „Vind fra Havet, der især um Foraaret blæser stærk med klar Luft visse Timer næsten daglig“.

Ýmislegt athyglisvert kemur fram í ferðalýsingunni: Hann skýrir út gerð svonefnds „bruðnings“ úr þorskhausum og uggum, sömuleiðis kæfugerð. Fjallar um ólæti svarfdælskra barna utan við kirkju á messutíma, segir frá tónlistariðkun við messuna og síðan lýsir hann siglingu inn Eyjafjörð. Harmar að menn fáist ekki til að nota áttavita hans í þoku (landar hans í Færeyjum geri það hins vegar með góðum árangri), en lýsir „fokkusiglingu“ í mjög hægum vindi (eftir að hafgolan datt niður).

[Sumar] Sumarið þótti flestum hagstætt. Þó gerði hret norðaustanlands í júnílok og sömuleiðis snjóaði í byggð í lok ágúst. 

Vatnsfjarðarannáll yngsti þaðan af [eftir fardaga] var sumarið rétt gott, grasvöxtur mikill yfir allt og heyjanýting góð, jafnvel þó sumarið væri öðru hverju vætusamt fram að höfuðdegi;

Úr Djáknaannálum: Sumar hlýtt, (s227) var þó stundum úrfelli af suðvestri. Gras tók helst að spretta með hvítasunnu [3. júní] og varð grasvöxtur einn hinn besti í manna minnum, nýttust líka hey víða vel. En ei gaf af regnum að heyja til muna upp frá því 20 vikur voru af sumri. Var sumar þetta af mörgum kallað Grassumarið mikla. Af ofurregnum skemmdust hey í görðum syðra.

Höskuldsstaðaannáll: Fleiri skip kom út á Akureyri um sumarið, víst 3 alls, tvö í Hofsós, eitt í Höfða, hvert lengi lá við Hrísey, umkringt af hafísi, hver ís kom fyrir sumarmál og umkringdi Strandir og allt Norðurland. [Enn er sagt frá sama skipi við Hrísey - það var þar alls ekki umkringt ís - en komst hvorki austur né vestur um] (s580) ... Fóru flestir að slá í 11. og 12. viku sumars. Nýttust hey sæmilega. Þó var stundum óþerrir af suðvestri, svo ei verkaðist allt sem best. ... Ísinn hraktist fram í Julium. (s581) Tilburður hryggilegur við Eyrarbakka í Septembri. Fórst þar í stórviðri póstduggan, sem út skyldi sigla, við Þorlákshöfn með sjö mönnum og þar til 12 menn á slúpum [bátum með sérstöku lagi] sem vildu lóssera hana inn, 19 menn alls (að fortalið var).... .

Íslands árbók: Gjörði þó um sumarið góðan grasvöxt með kyrrum og hlýviðrum og hagstæðri veðuráttu um allan heytímann ... (s101).

Espihólsannáll: Sumar hið æskilegasta. Heyskapur góður. Nýting eins. 

Viðaukar Espihólsannáls (1): Allramesta gæðasumar í Múlasýslu, ei einasta upp á landið, heldur og sjóinn ... (s228)

Espólín: XXVI Kap. XXIX. Kap. og var þá hið besta sumar, og góður heyskapur og nýting, en menn höfðu þó fækkað í landi þann árshring nær um þúsund. En þó hey yrði mikil, þóttu mönnum þau létt, þvíað eigi varð troðið fjórðungs þyngd í hálftunnu; varð gott haustið (s 30)

Júní (Mohr):

Frá 1. til 9. bjartviðri með blæstri um miðjan dag, undir kvöld og á nóttunni var logn, 7 stiga hiti. 10. til 12. lítill vindur með lítilsháttar regnskúrum, 6 til 9 stiga hiti. 13. og 14. þykkviðri með mikilli rigningu, 5 stiga hiti. 15. til 27. bjart og lengst af logn, frá 10 til 15 stiga hiti. 27. blástur með mikilli rigningu úr norðri, 4 stiga hiti. 28. og 29. lítilsháttar snjókoma, 3 stiga hiti. 30. logn og bjart, 9 stiga hiti. Síðari hluta mánaðarins var Mohr á ferð um Suður-Þingeyjarsýslu til Húsavíkur og síðan Mývatns.

Mohr getur þess að þegar hann var á Húsavík 29. júní hafi ísjaka rekið inn á leguna þar svo óttast var um skipin. Allt slapp þó vel til. 

Júlí (Mohr):
Þann 1. til 4. blástur, þykkviðri og snjókoma, 4 stiga hiti. 5. til 11. bjartviðri og log, frá 10 til 14 stiga hiti. 11. til 13. þykkviðri, dálítil rigning og blástur, 7 stiga hiti. 14. til 17. fagurt, hægt veður, 12 stiga hiti. 18. blástur og regn, 19. til 21. gott hægviðri, 10 stiga hiti. 22. og 23. þoka. 24. til 28. hægviðri og bjart, frá 8. til 12 stiga hiti. 29. blástur með regni, 6 stiga hiti. 30. og 31. fagurt veður. Mohr var fyrst við Mývatn en fór síðan austur á Hérað, á Eskifjörð og loks á Djúpavog. 

Ágúst (Mohr):
Þann 1. og 2. stormur og regn. 3. til 6. bjart og fagurt veður, síðasta daginn 17 stiga hiti (21°C). 7, til 10. gott veður, 11. þykk þoka. 12. til 18. hægviðri, stundum þoka, 10 til 14 stiga hiti. 19. blástur og mikil rigning, 6 stiga hiti, 20. til 28. fagurt veður, 29. og 30. sterkur blástur og regn. 31. gott veður.

Sveinn Pálsson:
28-8 Snjóaði fyrst i fjöll og byggð. 22-9 Stórviðri reif hey. 23-9 Kafald á norðan. 

[Haust og vetur til áramóta]. Nokkuð umhleypingasamt framan af, en síðan frosthart - en ekki sérlega illviðrasamt til landsins. Allmiklir skaðar urðu á sjó - eins og annálarnir rekja. 

Vatnsfjarðarannáll yngsti þaðan af fram yfir veturnætur óstöðugt, með hríðum, krapa- og kafaldahretum á milli; síðan gott til nýárs.

Viðvíkjandi almennilegu ástandi, þá jafnvel þó veturinn væri í betra lagi, gengu þó ei að síður yfir, þá á leið, stór harðindi og mesti bjargræðisskortur allvíða meðal manna af undanförnum bágindum og sumstaðar, einkum austan- og sunnanlands, ekki lítill mannfellir af hungri og öðru þar af leiðandi, sömuleiðis stórt peningahrun. Vorvertíðar- sumars- og haustfiskirí var yfir allt að heyra mikið gott, sem ásamt þeim góða heyfeng og hvalarekum í nokkrum stöðum gjörði þaðan af gott árferði. ... Póstduggan strandaði á Eyrarbakka um haustið; skrifað þar hefðu farist 18 manns með þeim, er fram til hennar fóru, ... (s400)

Úr Djáknaannálum: Haust óstöðugt framan af með miklum sunnanregnum, komu skörp frost eftir veturnætur, hlánaði aftur með jólaföstu; stillt síðan. 10 menn drukknuðu á Patreksfirði, 8 í Barðastrandasýslu... Í Sept. forgekk póstduggan, er hét Síld, fyrir Þorlákshafnarskeiði í stormi og stórsjó, drukknuðu þar 18 menn, 8 af duggunni og 10 íslenskir, sem fóru fram til að hjálpa henni í góða höfn, því þá að þessir voru (s230) upp á hana komnir, sleit hana upp og brotnaði. ... 14da sama mánaðar [nóvember] í snögglegu norðan áhlaupsveðri urðu 2 skiptapar nyrðra. (s231). 21ta Dec. varð skiptapi úr Keflavík undir Jökli á rúmsjó með 10 mönnum. ... Varð úti öndverðan vetur maður milli Rifs og Ólafsvíkur, ... og í Nóv. maður á Hnausamýrum í Breiðuvík, ... Jón Andrésson, múrsveitt, ... varð úti hjá Baulu í Norðurárdal. ... Ólafur bóndi Guðmundsson á Vindhæli á Skagaströnd missti um haustið sexæring, er brotnaði. Farmaskip amtmanns Ólafs, sem að kvöldi lá fermt við bryggju í Hafnarfirði, brotnaði um nóttina og tapaðist góssið. (s231)

Höskuldsstaðaannáll: Að kvöldi 14. Novembris undan Árbakka á Skagaströnd fórst fiskibátur við lendingu með fjórum mönnum ... . Sama dag forgekk skip við Reykjaströnd með 5 mönnum ... Bóndinn á Vindhæli, Ólafur, missti um haustið skip, sexæring, í sjóinn. Brotin bar upp í Selvík (s584). Haustið í betra lagi að veðuráttu og fiskafli á Skaga. Skorpa frá allraheilagramessu fram undir aðventu með sterkum frostum og nokkrum fjúkum. En góðviðri síðan í Decembri og fram um jól til Knúts [7. jan.]. (s585)

Espihólsannáll: Haust og vetur til nýárs í betra lagi. Hey reyndust um veturinn víða mjög létt og dáðlítil. (n)) --- Fáeinar manneskjur dóu af hor í Eyjafjarðar– og Skagafjarðarsýslum. (s168) ... Skiptapi verður með fjórum mönnum á Skaga, annar á Reykjaströnd ogso með fjórum mönnum sama daginn. Í Barðastrandarsýslu verða 2 skiptapar með 7 mönnum, og voru á öðru 4 bræður, duglegustu menn til lands og sjóar ... . Tveir skiptapar syðra, annar á Seltjarnarnesi, annar undir Vogastapa. Þann 21. Decembris týndist áttæringur í Keflavík undir Snæfellsjökli með 9 mönnum af holsjó undir segli. ... Einn skiptapi í Beruvík með Jökli. Týndust 2 menn, en 2 komust lífs af. 3 bátstapar með mönnum sunnan Snæfellsjökuls. Einn skiptapi á Breiðdal austur með fjórum mönnum. (s169)

Ketilsstaðaannáll:  ... á eftir fylgdi ein sérdeilis blíð sumartíð með góðum grasvexti og heynýtingum fyrir vestan, norðan og austan, en fyrir sunnan urðu töður manna fyrir nokkrum hrakningi. Harðindi, einkum á Suður- og Vesturlandi, allmikli manna á meðal, ... (s450) Einninn orsakaðist af þeim skemmdu heyjum frá því árið fyrir stórmikill peningafellir fyrir sunnan og vestan ... (s451) Fannst um vorið Höfðaskip strandað undir Smiðjuvíkurbjargi, sem nú kallast, í Almenningum á Ströndum. Strandaði póstjaktin fyrir sunnan. Á henni voru 7 menn sem allir drukknuðu, sömuleiðis 11 menn aðrir, er mót henni voru sendir til að hjálpa henni til hafnar, ... Hér að auk urðu fyrir sunnan og vestan 10 skiptapar, einn fyrir norðan á Skaga og einn í Breiðdal fyrir austan með fjórum mönnum, (s452)

September (Mohr):
Þann 1. blástur með éljum, 3 stiga hiti. 2. til 9. mest bjartur og hægur, 5 til 9 stiga hiti. 10. þykkviðri með blæstri og mikilli rigningu, 11. til 15. hægviðri og bjart, 5 til 8 stiga hiti. 16. til 24. blástur, stundum snjókoma og rigning, 1 til 5 stiga hiti. 24. til 30. hægur, bjartur með lítilsháttar næturfrosti, 1 til 5 stiga hiti.

Október (Mohr):
Þann 1. og 2. gott veður, 4. sterkur blástur og regnskúrir. 4. og 5. fagurt veður, 6. blástur og regn. 7. og 8. blástur, 9. og 10. stormur, 11. og 12. fagurt veður. 13. til 15. sterkur blástur með hryðjum.  

Sveinn Pálsson segir um nóvember:

Þennan allan mánuð hafa gengið mjög mikil frost, með austan átt. Snjólítið hér um sveit, utan hlánaði þann 28. og frysti svo aftur þann 30.

Hér lýkur umfjöllun hungurdiska um tíðarfar og veður á árinu 1781. Þakka Sigurði Þór Guðjónssyni fyrir mestallan innslátt annála og Hjördísi Guðmundsdóttur fyrir innslátt Árbóka Espólíns (stafsetningu hnikað hér - mistök við þá aðgerð sem og allan annan innslátt eru ritstjóra hungurdiska).

Við sjáum til hvernig eða hvort átjándualdarhjakki ritsjóra hungurdiska miðar eður ei. 


Af norðurslóðum

Síðari hluta aprílmánaðar dregur mjög úr styrk vestanvindabeltis háloftanna á norðurhveli jarðar. Kuldinn á heimskautasvæðunum heldur þó áfram að verja sig og í kringum hann helst vindstyrkur oft furðu öflugur allt fram á sumar. Við lentum eftirminnilega í slíku vorið 2018 þegar öflugur lægðagangur hélt áfram hér við land allan maímánuð í austurjaðri mikils kuldapolls vestan við Grænland. 

w-blogg220422a

Kortið sýnir spá evrópureiknimiðstöðvarinnar um hæð 500 hPa-flatarins og þykktina síðdegis á sunnudag, 24.apríl. Tvennt er sérlega áberandi á þessu korti. Annars vegar hinir öflugu kuldapollar við norðurskautið og vestan Grænlands, en hins vegar að svo mikið hefur slaknað á vestanáttinni yfir Norður-Atlantshafi og Evrópu að hún hefur skipt sér upp í fjölmargar litlar lokaðar lægðir. Leifar af vestanátt eru þó sunnan þessa svæðis og veldur m.a. hálfgerðu leiðindaveðri við vestanvert Miðjarðarhaf. Nyrst á þessu grautarsvæði er nokkuð öflug hæð nærri Íslandi - og njótum við auðvitað góðs af henni meðan hún endist.

Þetta er ekki óalgeng staða á þessum árstíma, en alltaf dálítið óþægileg. Í grunninn er ekki langt í gríðarmikinn kulda. Eins og spár eru þegar þetta er skrifað (föstudag 22. apríl) virðist sem stærri kuldapollurinn, sá við norðurskautið, muni ekki ógna okkur í bili. Spár gera þó frekast ráð fyrir því að hann ráðist á norðanverða Skandinavíu upp úr helginni. Gerist það frestast vorkoma á þeim slóðum um að minnsta kosti eina til tvær vikur og það mun snjóa allt til sjávarmáls í Norður-Noregi. 

Framhaldið er óljósara hér á landi. Spár gera sem stendur ráð fyrir því að kuldapollurinn vestan Grænlands muni um síðir ónáða okkur. Hvort úr verður leiðindahret eða ekki er hins vegar enn á huldu. Í dag giska flestar spár á að fyrsta vika maímánaðar verði mjög köld. 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veðurfræðingur og áhugamaður um veður.

Færsluflokkar

Júlí 2025
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31    

Nýjustu myndir

  • w-blogg110725c
  • w-blogg110725b
  • w-blogg110725a
  • Slide6
  • Slide5

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (13.7.): 57
  • Sl. sólarhring: 296
  • Sl. viku: 1983
  • Frá upphafi: 2484522

Annað

  • Innlit í dag: 52
  • Innlit sl. viku: 1789
  • Gestir í dag: 52
  • IP-tölur í dag: 52

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband