31.10.2024 | 17:15
Spáđ í ársmeđalhitann
Fyrir nokkrum dögum birtist hér á hungurdiskum pistill um hita íslenska ársins (frá fyrsta vetrardegi 2023 til síđasta vetrardags 2024). Í ljós kom ađ hann var í lćgra lagi miđađ viđ tískuna síđustu áratugi, sá lćgsti frá ţví fyrir aldamót. Í framhaldi af ţví var ritstjórinn spurđur hvort sama yrđi međ áriđ í heild.
Sannleikurinn er auđvitađ sá ađ ekki er enn hćgt ađ reikna međalhita ársins alls - tveir mánuđir eru til loka ţess. Alţjóđaveđurfrćđistofnunin (WMO) hefur fyrir löngu tekiđ upp ţann plagsiđ ađ gefa út yfirlýsingar um ársmeđalhitann löngu áđur er áriđ er liđiđ. Ritstjóri hungurdiska er ekkert allt of hrifinn af slíku - en hefur samt stundum áđur látiđ tilleiđast ađ gera ámóta reikninga.
Ţeir fara ţannig fram ađ međalhiti fyrstu tíu mánađanna er reiknađur fyrir fjölda ára og borinn saman viđ endanlegan međalhita sama árs. Svo er athugađ hvernig fer allmennt fyrir áćtlunum.
Myndin hér ađ neđan sýnir mismun međalhita ársins og međalhita fyrstu tíu mánađa ţess í byggđum landsins.
Viđ leyfum okkur ţađ óhóf ađ fara 200 ár aftur í tímann. Međalmunurinn er um 0,7 stig. Međalhiti fyrstu tíu mánađa ţessa árs er 4,1 stig og líklegur ársmeđalhiti ţví 3,4 stig. En í raunveruleikanum eru nokkrar sveiflur frá ári til árs. Mestur var munurinn áriđ 1880. Ţađ hafđi veriđ sérlega hlýtt, en síđustu tveir mánuđir ársins voru alveg sérlega kaldir. Spá um međalhita ţess árs gerđ í lok október hefđi tekist mjög illa. Svipađ má segja um fleiri ár, t.d. 1824 og 1841, en í ţeim tilvikum lauk árinu á óvenjulegum kuldaköflum. Á síđari árum munar mest 1973 en margir muna enn ţá miklu kulda sem gerđi ţá síđustu tvo mánuđi ársins.
Međalhiti hefur alltaf lćkkađ frá 10-mánađa međaltalinu yfir í ársmeđaltaliđ. Minnstu munađi ţó haustiđ 2002, en ţá voru nóvember og desember alveg sérlega hlýir.
Viđ getum líka gert ţetta á annan hátt. Reiknađ línulega ađfallsjöfnu:
Dreifiritiđ lítur svona út. Viđ sjáum ađ sambandiđ er harla gott. Örfá ár hanga neđan í ađalskýinu. Ţađ eru ţau sömu og viđ höfum nefnt. Lítilsháttar halli er á línunni. Séu fyrstu tíu mánuđirnir hlýir verđur munurinn á ársmeđalhitanum og tíumánađahitanum heldur meiri en ţegar mjög kalt er. En munurinn er ţó ekki mikill. Ef viđ reiknum út spá fyrir áriđ í ár međ ţessari ađferđ verđur niđurstađan sú sama og áđur, 3,4 stig. Viđ sjáum líka ađ ţrátt fyrir ađ mörgum hafi ţótt veđur frekar kalt er međaltaliđ í ár ţó ofan međaltal tímabilsins alls. Hefđu fyrstu tíu mánuđirnir veriđ óvenjuhlýir hefđum viđ samkvćmt ţessum reikninum ţurft ađ draga meira frá tíumánađahitanum heldur en međaltaliđ (0,7 stig).
En hvađ gerist svo? Ţađ vitum viđ ekkert um. Verđi nóvember og desember sérlega hlýir gćti ársmeđalhitinn hangiđ í 3,8 stigum eđa svo. Ţađ yrđi ţá kaldasta ár frá 2015. Standist spáin um 3,4 stig verđur áriđ hins vegar ţađ kaldasta síđan 1998. Verđi nóvember og desember óvenjukaldir, verđur áriđ e.t.v. ţađ kaldasta frá 1995. En ţá var međalhiti á landsvísu ekki nema 2,8 stig. Til ţess ađ hrapa um 1,3 stig eđa meira frá tíumánađahitanum nú ţurfum viđ nóvember og desember eins og 1973 (eđa nćrri ţví). Einhvern veginn vonar ritstjórinn ađ svo verđi ekki - en smekkur manna er misjafn eins og gengur.
Viđ reynum hins vegar ađ gleyma ţessari spá eins fljótt og mögulegt er.
Flokkur: Vísindi og frćđi | Facebook
Um bloggiđ
Hungurdiskar
Fćrsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (10.11.): 12
- Sl. sólarhring: 310
- Sl. viku: 1624
- Frá upphafi: 2408638
Annađ
- Innlit í dag: 11
- Innlit sl. viku: 1463
- Gestir í dag: 11
- IP-tölur í dag: 10
Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri fćrslur
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
Bćta viđ athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.