Spáð í ársmeðalhitann

Fyrir nokkrum dögum birtist hér á hungurdiskum pistill um hita íslenska ársins (frá fyrsta vetrardegi 2023 til síðasta vetrardags 2024). Í ljós kom að hann var í lægra lagi miðað við tískuna síðustu áratugi, sá lægsti frá því fyrir aldamót. Í framhaldi af því var ritstjórinn spurður hvort sama yrði með árið í heild.

Sannleikurinn er auðvitað sá að ekki er enn hægt að reikna meðalhita ársins alls - tveir mánuðir eru til loka þess. Alþjóðaveðurfræðistofnunin (WMO) hefur fyrir löngu tekið upp þann plagsið að gefa út yfirlýsingar um ársmeðalhitann löngu áður er árið er liðið. Ritstjóri hungurdiska er ekkert allt of hrifinn af slíku - en hefur samt stundum áður látið tilleiðast að gera ámóta reikninga. 

Þeir fara þannig fram að meðalhiti fyrstu tíu mánaðanna er reiknaður fyrir fjölda ára og borinn saman við endanlegan meðalhita sama árs. Svo er athugað hvernig fer allmennt fyrir áætlunum. 

Myndin hér að neðan sýnir mismun meðalhita ársins og meðalhita fyrstu tíu mánaða þess í byggðum landsins.

w-blogg311024b

Við leyfum okkur það óhóf að fara 200 ár aftur í tímann. Meðalmunurinn er um 0,7 stig. Meðalhiti fyrstu tíu mánaða þessa árs er 4,1 stig og líklegur ársmeðalhiti því 3,4 stig. En í raunveruleikanum eru nokkrar sveiflur frá ári til árs. Mestur var munurinn árið 1880. Það hafði verið sérlega hlýtt, en síðustu tveir mánuðir ársins voru alveg sérlega kaldir. Spá um meðalhita þess árs gerð í lok október hefði tekist mjög illa. Svipað má segja um fleiri ár, t.d. 1824 og 1841, en í þeim tilvikum lauk árinu á óvenjulegum kuldaköflum. Á síðari árum munar mest 1973 en margir muna enn þá miklu kulda sem gerði þá síðustu tvo mánuði ársins. 

Meðalhiti hefur alltaf lækkað frá 10-mánaða meðaltalinu yfir í ársmeðaltalið. Minnstu munaði þó haustið 2002, en þá voru nóvember og desember alveg sérlega hlýir. 

Við getum líka gert þetta á annan hátt. Reiknað línulega aðfallsjöfnu:

w-blogg311024a

Dreifiritið lítur svona út. Við sjáum að sambandið er harla gott. Örfá ár hanga neðan í aðalskýinu. Það eru þau sömu og við höfum nefnt. Lítilsháttar halli er á línunni. Séu fyrstu tíu mánuðirnir hlýir verður munurinn á ársmeðalhitanum og tíumánaðahitanum heldur meiri en þegar mjög kalt er. En munurinn er þó ekki mikill. Ef við reiknum út spá fyrir árið í ár með þessari aðferð verður niðurstaðan sú sama og áður, 3,4 stig. Við sjáum líka að þrátt fyrir að mörgum hafi þótt veður frekar kalt er meðaltalið í ár þó ofan meðaltal tímabilsins alls. Hefðu fyrstu tíu mánuðirnir verið óvenjuhlýir hefðum við samkvæmt þessum reikninum þurft að draga meira frá tíumánaðahitanum heldur en meðaltalið (0,7 stig). 

En hvað gerist svo? Það vitum við ekkert um. Verði nóvember og desember sérlega hlýir gæti ársmeðalhitinn hangið í 3,8 stigum eða svo. Það yrði þá kaldasta ár frá 2015. Standist spáin um 3,4 stig verður árið hins vegar það kaldasta síðan 1998. Verði nóvember og desember óvenjukaldir, verður árið e.t.v. það kaldasta frá 1995. En þá var meðalhiti á landsvísu ekki nema 2,8 stig. Til þess að hrapa um 1,3 stig eða meira frá tíumánaðahitanum nú þurfum við nóvember og desember eins og 1973 (eða nærri því). Einhvern veginn vonar ritstjórinn að svo verði ekki - en smekkur manna er misjafn eins og gengur.

Við reynum hins vegar að gleyma þessari spá eins fljótt og mögulegt er. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veðurfræðingur og áhugamaður um veður.

Færsluflokkar

Des. 2024
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30 31        

Nýjustu myndir

  • w-blogg211224b
  • w-blogg211224
  • w-blogg121224
  • w-blogg111224a
  • w-blogg101224b

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.12.): 16
  • Sl. sólarhring: 211
  • Sl. viku: 981
  • Frá upphafi: 2420865

Annað

  • Innlit í dag: 13
  • Innlit sl. viku: 862
  • Gestir í dag: 13
  • IP-tölur í dag: 13

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband