Umskipti

Nú verða umskipti í veðurlagi á Norður-Atlantshafi - við vitum þó alls ekki enn hvort aðeins er um tímabundna hagræðingu að ræða - eða eitthvað varanlegra. Meðalkortin hér að neðan sýna þetta allvel. Kortið til vinstri er raunveruleiki síðustu tíu daga - en það til hægri er spá evrópureiknimiðstöðvarinnar um næstu tíu daga - ekki endilega víst að hún rætist.

w-blogg190124a

Til að koma kortunum fyrir á sömu mynd hafur þeim verið þjappað - útlínur landa og hafs því ekki alveg þær sömu og venjulega. En Ísland er samt á miðjum kortum. Á þátíðarkortinu (því til vinstri) má sjá gríðarleg hlýindi á Vestur-Grænlandi og þar vestan við. Þeir sem fylgjast með fréttum frá Grænlandi og Nunavut í Kanada hafa séð myndir af hálku og hláku, slíkt er óvenjulegt í Nunavut - en heldur algengara á Grænlandi. Litirnir sýna þykktarvikin, hámarkið við Baffinsland er mest um 225 metrar - það er um +11°C hitaviki í neðri hluta veðrahvolfs - ekki víst að vikin við jörð séu alveg jafnmikil. Kalt hefur hins vegar verið fyrir austan okkur og allra síðustu dagana hefur kuldanum slegið í átt til okkar og frostið farið niður í um -25 stig þar sem mest hefur verið. Hæðarhryggur hefur verið fyrir vestan okkur, áttin norðvestlæg í háloftunum og veður langoftast skaplegt.

Næstu tíu daga á að verða mikil breyting. Kuldapollurinn Stóri-Boli á loksins að lifna og nálgast sínar heimaslóðir norður af Kanada. Vikin sem honum fylgja eru mest á Vestur-Grænlandi - um -7°C - það er mikið í tíu daga. Hér verður hiti hins vegar nærri meðallagi eða lítillega undir því - sé að marka spána - en hlýtt fyrir austan okkur. Mikil viðbrigði á báðar hliðar - meiri en hér á landi.

Hvaða afleiðingar þetta hefur fyrir veðurlagið er heldur óljósara, en þessa tíu daga eiga fjölmargar mjög djúpar lægðir að fara austur og norðaustur um Atlantshaf. Sú fyrsta nálgast landið þegar þetta er skrifað (föstudagskvöldið 19.janúar), en verður farin að grynnast. Næstu tvær meginlægðir virðast stefna til Bretlandseyja eða á Suður-Noreg og munu valda þar miklu illviðri, bæði hvössum vindi og úrkomu næstu daga. Eins og spár eru núna munu næstu lægðir þar á eftir miða betur á okkur, en sem stendur er óvissa mikil um það hvort þær fari yfir landið, austan við eða vestan við. Fari þar austan við eru hríðarveður líkleg - fari þær yfir landið skiptast á rigning og hríð, en fari þar vestan við skiptist á rigning og útsynningséljagangur. 

Alla vega virðist sem veðurfræðingar á vakt komi til með að hafa nóg að sýsla á næstunni (þeir hafa það að vísu oftast). Hér á hungurdiskum hvetjum við þá sem eiga eitthvað undir veðri til að fylgjast vel með því sem Veðurstofan og aðrir til þess bærir aðilar hafa um málið að segja - ritstjóri hungurdiska horfir hins vegar mest til fortíðar - eins og venjulega. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veðurfræðingur og áhugamaður um veður.

Færsluflokkar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • w-blogg230424
  • Slide10
  • Slide8
  • Slide6
  • Slide5

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (30.4.): 13
  • Sl. sólarhring: 111
  • Sl. viku: 1291
  • Frá upphafi: 2351076

Annað

  • Innlit í dag: 12
  • Innlit sl. viku: 1112
  • Gestir í dag: 11
  • IP-tölur í dag: 11

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband