Enn af spáóróa (skemmtideildin međ sýningu)

Nú í kvöld (miđvikudag 27.desember) býđur skemmtideild evrópureiknimiđstöđvarinnar upp á atriđi sem vonandi tekur ekki upp á ţví ađ raungerast - fjórir dagar eru enn í ţađ. Annars hefur tölvuspám fariđ svo fram á síđustu tímum ađ mađur veit svosem aldrei hvađ er skemmtun og hvađ er fúlasta alvara. 

Tvisvar á dag reiknar miđstöđin 51 spárunu frá sama athugunartíma, hringlar lítillega í greiningunni og athugar hvađ kemur út. Ein spá er alveg hringllaus - sú sem viđ nćr undantekningalaust notum hér á hungurdiskum. Ađ auki er reiknimiđstöđin ţar ađ auki ađ fikta viđ gervigreindarspár sem eru reyndar byggđar á greiningu og eldri gögnum hennar. 

Lítum nú á úrkomuspá fyrir Reykjavík nćstu tíu daga, frá hádegi í dag (27.desember) til 6.janúar. 

w-blogg271223a

Á efri hluta myndarinnar má sjá úrkomuspárit fyrir ţessa daga. Sýnir úrkomu á 6 klst fresti, Kvarđinn lengst til vinstri sýnir magn í mm. Fyrir neđan er skýringarmynd. Á bakviđ hverja súlu (strik) á lárétta ásnum eru 51 spá. Búinn er til listi yfir 6 klukkustunda úrkomu allra spánna á hverjum spátíma og rađađ upp eftir magni. Síđan er taliđ ofan frá - mesta úrkoman fyrst, síđan koll af kolli, fimm úrkomumestu spárnar eru merktar sem strik. Magniđ ţegar sjötta spáin bćtist viđ breytir strikinu úr svörtu í blátt, ţegar svo 13 spár eru komnar inn á listann breikkar strikiđ og ţegar helmingur spánna er kominn er sett strik í bláa litinn.

Svo vill til ađ flestar spárnar eru ađ spá lítilli úrkomu í ţessu tilviki, helmingsstrikiđ rétt sést birtast í kringum 1 mm ađfaranótt gamlársdags - annars er úrkoma langoftast engin - nema í um 5 spám. 

Svo vill hins vegar til ađ „ađalspáin“ - sú óhringlađa - er í ţessum úrkomugćfa flokki. Hún er sýnd sérstaklega međ blárri línu sem reikar um myndina. Og ţađ ótrúlega er ađ hún er ađ sýna samtals meir en 50 mm úrkomu í Reykjavík síđdegis á gamlaársdag og fram undir hádegi á nýársdag. Ef úr yrđi myndi nćr allt falla sem snjór. 

Kortiđ sýnir hvađ um er ađ rćđa. Örmjótt, nćrri kyrrstćtt úrkomubelti yfir Suđvesturlandi. Meir en 45 spár sýna hins vegar nćr enga úrkomu - viđ vitum ekki hvort úrkomusvćđiđ er í ţeim spám eđa hvort ţađ er ţar - en lendir bara annars stađar. 

Ţar sem ţessi spá er međ talsverđum ólíkindum er ákveđin tregđa međ ađ trúa henni - en hún er alla vega gott skemmtiatriđi í fásinninu. 

Bandaríska spáin er sem stendur ţurr í Reykjavík á gamlárskvöld - ţótt lćgđardrög séu ţar á sveimi - eins og veriđ hefur í flestum spám undanfarna daga. . 


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Um bloggiđ

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veđurfrćđingur og áhugamađur um veđur.

Fćrsluflokkar

Júlí 2024
S M Ţ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30 31      

Nýjustu myndir

  • w-blogg220724b
  • w-blogg220724a
  • w-blogg210724
  • Slide2
  • Slide1

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (27.7.): 17
  • Sl. sólarhring: 427
  • Sl. viku: 2733
  • Frá upphafi: 2378309

Annađ

  • Innlit í dag: 14
  • Innlit sl. viku: 2421
  • Gestir í dag: 14
  • IP-tölur í dag: 14

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri fćrslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband