Júlí kaldari heldur en júní

Međalhiti í júlí er hćrri heldur en í júní. Á landsvísu eru tölurnar ţannig á árabilinu 1931-2020 ađ međalhiti júnímánađar er 8,4 stig, en 10,1 í júlí. Munar hér 1,7 stigum. Í Reykjavík er munurinn líka 1,7 stig, en 1,4 á Akureyri. 

Nýliđinn júní var mjög hlýr, sérstaklega um landiđ norđan- og austanvert ţar sem hann var sums stađar sá hlýjasti sem vitađ er um. Júlí var ţar hins vegar heldur kaldur. Báđir mánuđir voru nćr međallagi um landiđ sunnan- og vestanvert. Ţessi stóra sveifla á Norđur- og Austurlandi varđ til ţess ađ landsmeđalhiti (í byggđ) var lćgri í júlí heldur en júní. Á ţeim tíma sem sćmilega áreiđanleg landsmeđaltöl eru til (frá 1874) hefur júlí ekki veriđ kaldari en júní nema 5 sinnum áđur (í sjötta sinn nú) - og ţađ hefur ekki gerst síđan sumariđ 1970. Munurinn núna var -0,4 stig, en var öllu meiri 1970, -1,1 stig. Hin tilvikin eru 1963 (-0,2 stig), 1909 (-0,6 stig), 1906 (-0,3 stig) og 1887 (-0,4 stig). 

Júlí í ár var +1,8 stigum hlýrri en júní í Reykjavík, svipađ og er í međalári. Ţađ gerđist síđast 2002 ađ júlí var kaldari en júní í Reykjavík, munađi -0,3 stigum, en síđan ţarf ađ fara aftur til 1898 til ađ finna ámóta. Á Akureyri var júlí mun kaldari heldur en júní, munađi -2,8 stigum. Sé flett upp í fortíđinni kemur í ljós ađ ţađ er miklu algengara ađ júlí sé kaldari heldur en júní á Akureyri heldur en í Reykjavík, ekki ţarf ađ leita lengra aftur en til 2020 til ađ finna nćsta tilvik á undan, ţá munađi -1,0 stigi og 5 tilvik til viđbótar eru á ţessari öld. Mestur varđ munurinn á Akureyri 1970, ţá var júlí -3,0 stigum kaldari heldur en júní. 

En eins og fram kom í nýútkomnu yfirliti Veđurstofunnar var munurinn á hita mánađanna tveggja enn meiri austanlands, á Egilsstöđum var munurinn -4,1 stig. Í framhaldi af ţví má spyrja hvort hann hafi jafnvel veriđ enn meiri á öđrum stöđvum. Jú, hann er sá sami eđa sjónarmun meiri á sjálfvirku stöđinni á Ţórudal, -4,1 (-4,14 reiknum viđ tvo aukastafi). Á vegagerđarstöđinni á Vatnsskarđi eystra er hann -5,1 stig og -4,2 stig á Jökuldal (stöđ Vegagerđarinnar) og sama á Vopnafjarđarheiđi. 

Ţetta eru býsna stórar tölur og viđ ítarlega leit kemur í ljós ađ ţćr hafa ekkert orđiđ stćrri milli ţessara tveggja mánađa. Nćstir koma áđurnefndir júní og júlí 1970. Ţá var júlí -4,0 stigum kaldari heldur en júní á Grímsstöđum á Fjöllum (og eins og áđur sagđi var kólnunin á landsvísu meiri ţá heldur en nú). Tölurnar nú - fyrir einstakar veđurstöđvar - eru hins vegar met. Sama var uppi á teningnum milli nóvember og desembermánađa. Ţá kólnađi mjög. Um ţađ fjölluđu hungurdiskar í stuttum pistli í janúar - geta lesendur rifjađ ţađ upp.

Ţetta má rifja upp fyrir okkur ţá stađreynd ađ lítiđ samband er á milli hita (og veđurlags) einstakra mánađa hér á landi. Ţeir eru harla frjálsir úr viđjum fortíđar - kannski ekki ţó alveg. 

w-blogg030823a

Ásýnd töflunnar er mjög ólík ţeirri sem júnítaflan sýndi okkur - hún var rauđleit (hlý), en ţessi misblá. Landsmeđalhiti var nú 9,6 stig, -0,7 stigum neđan međallags 1991 til 2020 og -0,8 neđan međallags síđustu tíu ára (en í međallagi 1951-90). Hiti var í međallagi viđ Faxaflóa og á Suđurlandi, en annars neđan viđ ţađ. Á svćđinu frá Ströndum og Norđurlandi vestra austur um til Austfjarđa var ţetta nćstkaldasti júlímánuđur aldarinnar. Nokkru hlýrri ţó heldur en sá kaldastir, 2015. 

Um ágúst vitum viđ lítiđ. Evrópureiknimiđstöđin telur ađ fyrri hluti hans verđi kaldur, en vill lítiđ tjá sig um ţann síđari. 

Eins og fram kom í yfirliti Veđurstofunnar var júlímánuđur óvenjuţurr á Suđur- og Vesturlandi. Einn hinn ţurrasti sem viđ ţekkjum. Gríđarlegur viđsnúningur varđ á háloftakerfum, eftir stöđugar suđvestanáttir nćstu tveggja mánađa á undan skipti algjörlega yfir, vindur varđ norđlćgur og norđaustlćgur. Hćđ fyrir vestan land kom í stađ lćgđar á ţeim slóđum. Ţađ skipti úr fádćma sólarleysi yfir í dćmafátt sólskin. Sumardagar í Reykjavík (samkvćmt skilgreiningu ritstjóra hungurdiska) eru orđnir 24 - farnir ađ nálgast međaltal ţessarar aldar (31) og sumareinkunnin á sćmilegu róli - góđur ágúst gćti komiđ henni nćrri međallagi aldarinnar - ţrátt fyrir sérlega slaka júníeinkunn. 


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Um bloggiđ

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veđurfrćđingur og áhugamađur um veđur.

Fćrsluflokkar

Maí 2024
S M Ţ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • Slide10
  • Slide9
  • Slide8
  • Slide7
  • Slide6

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (15.5.): 54
  • Sl. sólarhring: 97
  • Sl. viku: 776
  • Frá upphafi: 2353901

Annađ

  • Innlit í dag: 44
  • Innlit sl. viku: 674
  • Gestir í dag: 41
  • IP-tölur í dag: 40

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri fćrslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband