Óvenjumikill munur á mánaðameðalhita

Margir hafa nefnt við ritstjóra hungurdiska hið óvenjulega meðalhitafall milli nóvember- og desembermánaða síðasta árs (2022). Sérlaga hlýtt var í nóvember en kalt í desember. Munur á milli meðalhita mánaðanna var allvíða um og yfir 10 stig, mestur þó á Þingvöllum. (9,0 stig í Reykjavík). 

Meðalhiti á Þingvöllum var +4,6 stig í nóvember, en -7,1 stig í desember. Þetta var næsthlýjasti nóvember sem vitað er um (heldur hlýrra var 1945). Desember er aftur á móti sá kaldasti sem vitað er um þar um slóðir. Munurinn á meðalhita mánaðanna tveggja nú var 11,7 stig. Sýnist í fljótu bragði (en þó ekki að alveg óathuguðu máli) að þetta sé mesta hitafall milli meðalhita tveggja mánaða á Íslandi. [Hiti féll um 10,2 stig við Mývatn á milli október og nóvember 1996].

Þetta slær þó ekki út mestu breytingu í hina áttina - meðalhiti í mars 1881 var -19,8 stig á Siglufirði, en +0,1 stig í apríl (munur 19,9 stig). Munurinn milli hita þessara mánaða var 16,3 stig í Stykkishólmi og 15,5 stig í Grímsey (áreiðanlegri meðaltöl heldur en þau frá Siglufirði).

Að meðaltali er munur á hita hlýjasta og kaldasta mánaðar ársins á Þingvöllum 14,8 stig, var mestur 1936, 20,2 stig, en minnstur 10,4 stig, 1972. Árið 2022 var hann 17,5 stig. Samfelldar mælingar á Þingvöllum og nágrenni ná aftur til sumarsins 1934.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Tómas Ibsen Halldórsson

Takk fyrir þessar upplýsingar Trausti. Fróðlegt væri að sjá sambærilegar upplýsingar fyrir árið 1918 ef þær eru til og liggja fyrir.

Tómas Ibsen Halldórsson, 14.1.2023 kl. 20:39

2 Smámynd: Trausti Jónsson

Tómas - mánaðameðalhiti allra mánaða 1918 má finna í viðhengi þessa pistils - samskonar pistlar (og viðhengi) eru til á hungurdiskum fyrir öll ár 1801 til 1924 og allmörg síðari ár einnig: Árið 1918 - hvernig var með veðrið eftir að frostunum lauk? - trj.blog.is

Einnig má lesa nokkuð um kuldana 1918 í þessum pistlum:

https://www.vedur.is/vedur/frodleikur/greinar/nr/1163

https://www.vedur.is/vedur/frodleikur/greinar/nr/1042

https://www.vedur.is/vedur/frodleikur/greinar/nr/1141

og 1917 í þessum:

https://trj.blog.is/blog/trj/entry/2208081/

https://trj.blog.is/blog/trj/entry/2214539/

https://trj.blog.is/blog/trj/entry/2193859/

Trausti Jónsson, 15.1.2023 kl. 00:46

3 Smámynd: Tómas Ibsen Halldórsson

Kærar þakkir fyrir þetta Trausti.

Tómas Ibsen Halldórsson, 15.1.2023 kl. 12:44

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veðurfræðingur og áhugamaður um veður.

Færsluflokkar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • w-blogg230424
  • Slide10
  • Slide8
  • Slide6
  • Slide5

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 270
  • Sl. sólarhring: 312
  • Sl. viku: 1844
  • Frá upphafi: 2350471

Annað

  • Innlit í dag: 196
  • Innlit sl. viku: 1645
  • Gestir í dag: 186
  • IP-tölur í dag: 185

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband