Hálfur júní

Hálfur júní. Meðalhiti í Reykjavík er 8,9 stig, -0,4 stigum neðan meðallags sömu daga áranna 1991 til 2020 og -0,6 stigum neðan meðaltals síðustu tíu ára. Hitinn raðast í 16. hlýjasta sæti (af 23) á öldinni. Fyrri hluti júní var hlýjastur árið 2002, meðalhiti þá 12,0 stig, kaldastur á öldinni var hann 2001, meðalhiti 7,6 stig. Á langa listanum er hitinn í 56. sæti (af 151). Hlýjast var 2002, en kaldast var 1885, meðalhiti þá aðeins 5,8 stig.

Á Akureyri er meðalhiti fyrri hluta mánaðarins 12,5 stig, +3,6 stigum ofan meðallags 1991 til 2020 og +2,8 ofan meðallags síðustu tíu ára. Þetta er langhlýjasti fyrri hluti júní á Akureyri að minnsta kosti frá 1936.

Hita hefur sem kunnugt er verið mjög misskipt á landinu. Á öllu norðan- og austanverðu landinu er þetta hlýjasta júníbyrjun á öldinni, frá Ströndum og Norðurlandi vestra austur og suður um til Suðausturlands. Þetta er næsthlýjasta júníbyrjun á Miðhálendinu. Við Faxaflóa og á Suðurlandi er hitinn í 16. hlýjasta sæti aldarinnar, því 11. við Breiðafjörð og 7. á Vestfjörðum.

Miðað við síðustu 10 ár er jákvætt hitavik mest við Eyjabakka, +5,4 stig, en neikvæðast hefur vikið verið á Bláfeldi á Snæfellsnesi, -1,2 stig.

Úrkoma hefur mælst 27,4 mm í Reykjavík, um 50 prósent umfram meðallag. Á Akureyri hafa aðeins mælst 0,4 mm, en við vitum um nokkra júnífyrrihluta þegar engin úrkoma hefur mælst þar, síðast 1971.

Sólskinsstundir hafa mælst 53,6 í Reykjavík, um 44 færri en í meðalári. Þetta er í minna lagi, en stundirnar hafa þó alloft mælst færri sömu daga. Á Akureyri hafa mælst 129 stundir.

Loftþrýstingur hefur verið óvenjuhár, 1021,3 hPa í Reykjavík. Þetta er sjöundihæsti meðalþrýstingur þessa tíma árs síðustu 202 árin.

Kl. 11 í morgun (16.júní) fór hiti á Egilsstaðaflugvelli í 26,4 stig, hæsti hiti ársins á landinu til þessa.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veðurfræðingur og áhugamaður um veður.

Færsluflokkar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • w-blogg230424
  • Slide10
  • Slide8
  • Slide6
  • Slide5

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.4.): 82
  • Sl. sólarhring: 82
  • Sl. viku: 1680
  • Frá upphafi: 2350957

Annað

  • Innlit í dag: 72
  • Innlit sl. viku: 1469
  • Gestir í dag: 61
  • IP-tölur í dag: 61

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband