Riðalauf

Í dag, miðvikudaginn 15. febrúar 2023, fer smálægð hratt til norðausturs ekki langt undan Suðausturlandi. Ekki eru spár alveg sammála um hversu nærri landi lægðin fer. Satt best að segja eru gamlir ryðkláfar (eins og ritstjóri hungurdiska) hálfgapandi yfir því að tölvuspár skuli yfirleitt ná að fanga lægðir sem þessar - og það jafnvel með margra daga fyrirvara (öðruvísi mér áður brá). Lægðin varð eiginlega ekki til fyrr en síðdegis í gær - nánast út úr engu.

w-blogg150223a

Hitamyndin hér að ofan er tekin kl.1 í nótt. Gul ör bendir á Ísland. Yfir landinu og fyrir vestan og suðvestan það eru allmiklir éljaklakkar. Rauð ör bendir á smálægðina. Í erlendum fræðaskrifum eru lægðir af þessu tagi kallaðar „baroclinic leaf“ - upp á ritstjórnaríslensku „riðalauf“. Þau verða til í óstöðugu lofti (aðallega þó á jaðarsvæðum þess) þar sem lítilsháttar, en óstöðugt misgengi verður á milli hæðar- og þykktarflata - á sama hátt og myndar fjölmargar stórar (riða-)lægðir sem þá eru oftast tengdar heimskautaröstinni eða skylduliði hennar. Freistast má til að teikna bæði hita-, kulda- og/eða samskil í svona lægðir - og jafnvel finna „afturbeygð skil“, stingrastir eða hvað þetta heitir allt saman (og við hljótum að hafa á hreinu). Gangi svona kerfi inn í stærri - t.d. elti kuldaskil stórrar lægðar uppi verður það til sem á útlensku er nefnt „instant occlusion“ - einhvers konar skyndilægðagrautur (þjált íslenskt heiti hefur ekki fundist - þrátt fyrir ákafa leit í frumskógi ónefna - en vonandi kemur að því).

w-blogg150223b

En á hádegi (miðvikudag 15. febrúar) á lægðin að vera suður af Ingólfshöfða, ekki langt norður af þeim stað sem veðurskipið Indía var á æskuárum ritstjórans, og stefnir í norðaustur eða norðnorðaustur. Úrkomusvæðið (grænt og blátt) vestan við lægðina stefnir í átt að Suðausturlandi. Við athugum að kort sem þessi sýna uppsafnaða úrkomu - hún myndar því í þessu tilviki rönd í hreyfistefnu mestu úrkomuákefðar, úrkomunni er í raun lokið að mestu syðst í röndinni þegar kortið „gildir“. Gömul lægð er svo fyrir vestan land, full löngunnar til að taka þátt í leiknum, en er orðin of svifasein. Í henni er þó töluverður éljabakki sem ætti að falla inn á landið þegar litla lægðin er gengin hjá. Sem stendur gera spár ekki mjög mikið úr þessum bakka. 

w-blogg150223c

Kortið af ofan gildir líka á hádegi og sýnir um það bil sama svæði og hitt (örlítið minna). Litir sýna vindhraða, en örvar vindstefnu. Við sjáum hér vel vindstrenginn snarpa sunnan lægðarmiðjunnar litlu. Þar er mesti 10-mínútna vindur nærri 28 m/s og hviður upp í 35 m/s. Í bakkanum vestan við land er gert ráð fyrir 18 til 20 m/s þar sem mest er (alveg nóg til að mann þurfa að taka tillit til við sum verk). 

Staða sem þessi var auðvitað afskaplega varasöm á árum áður. Freistandi var að fara á sjó á smábátum eða helda í ferðalög gangandi milli landshluta. Þótt eins konar blikubakki fylgi riðalaufum er hann miklu fyrirferðarminni heldur en þeir sem fylgja þeim stóru og tíminn frá því menn verða hans varir og illviðri skellur á er þess vegna miklu styttri. Sömuleiðis er éljabakki eins og sá sem hér má sjá fyrir vestan land mjög varasamur smábátum og vana menn eða heppna þarf til að sleppa hjá áföllum. Brot geta myndast á sjó - og brim ýfst upp við lendingar. En nú eru fáir smábátar á sjó - og veðurpár miklum mun öruggari en var - fyrir aðeins 20 til 25 árum. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veðurfræðingur og áhugamaður um veður.

Færsluflokkar

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Nýjustu myndir

  • w-blogg200324b
  • w-blogg200324a
  • Slide10
  • Slide9
  • Slide8

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 16
  • Sl. sólarhring: 66
  • Sl. viku: 507
  • Frá upphafi: 2343269

Annað

  • Innlit í dag: 13
  • Innlit sl. viku: 459
  • Gestir í dag: 13
  • IP-tölur í dag: 12

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband