Fyrstu tíu dagar febrúarmánaðar

Hiti er ekki fjarri meðallagi fyrstu 10 daga febrúarmánaðar, +0,1 stig í Reykjavík. Það er +0,2 stigum ofan meðallags áranna 1991 til 2020, en -0,5 stigum neðan meðallags síðustu tíu ára. Hitinn í Reykjavík raðast í 11. hlýjasta sæti (af 23) á öldinni. Á langa listanum er hitinn í 60. sæti af 151.

Á Akureyri er meðalhiti 0,0 stig, +1,4 stigum ofan meðallags 1991-2020, en +0,9 stigum ofan meðallags síðustu tíu ára.

Hiti á spásvæðunum raðast í 9. til 12. sæti á öldinni, einna kaldast að tiltölu við Breiðafjörð. Jákvætt hitavik (miðað við síðustu tíu ár) er mest á Sauðárkróksflugvelli, +1,6 stig, en neikvæðast í Ólafsvík, -1,8 stig (en það er trúlega rangt - athugum það nánar).

Úrkoma í Reykjavík hefur mælst 76 mm og er það meir en tvöföld meðalúrkoma sömu daga og sú mesta þessa daga á öldinni. Meiri úrkoma hefur þó þrisvar mælst meiri þessa daga, síðast 1991. Á Akureyri hefur úrkoman mælst 32 mm og er það um 60 prósent umfram meðallag.

Sólskinsstundir hafa mælst 6 í Reykjavík - með minna móti, en 1965 og 1971 mældust sólskinsstundir færri en ein sömu almanaksdaga. Á Akureyri hafa til þessa mælst 7,2 sólskinsstundir í mánuðinum.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veðurfræðingur og áhugamaður um veður.

Færsluflokkar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • w-blogg160424b
  • w-blogg160424a
  • w-blogg120424c
  • w-blogg120424b
  • w-blogg120424a

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 4
  • Sl. sólarhring: 154
  • Sl. viku: 1753
  • Frá upphafi: 2348631

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 1534
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband