Veðurstofusumarið

Nú er veðurstofusumrinu nærri lokið. Það tekur yfir mánuðina júní til september. Eins og venjulega lítum við nú á meðalhita þess á landsvísu í samanburði við fyrri ár.

w-blogg290922b

Meðalhiti sumarsins reiknast 9,2 stig. Það er í kaldara lagi miðað við það sem algengast hefur verið síðustu áratugi, en hefði samt talist hlýtt á „kalda“ tímabilinu 1965 til 1995. Á landsvísu var sumarið 2014 það hlýjasta á þessari öld. Fáein enn hlýrri sumur komu á fyrra hlýskeiði, en munurinn samt sá að þá virðist breytileiki frá ári til árs hafa verið öllu meiri en að undanförnu. Við sjáum að fjölmörg sumur voru þá kaldari en það sem nú er (nær) liðið.

Á kalda tímanum, sem að sumarlagi byrjaði reyndar fyrir 1965, var hiti almennt svipaður og var á árunum 1890 fram til 1920 (þá komu reyndar fáein enn kaldari sumur í röð). Eitt sumar, 1880, sker sig mjög úr á þeim tíma 19. aldar sem við höfum áreiðanlegar heimildir um. Það var sérlega hlýtt - en sagði ekki fyrir um hinn ofurkalda vetur sem í hönd fór, 1880 til 1881. Með sumrinu 1882 var töldu menn að fullhefnt væri fyrir blíðuna 1880.

Fyrri hluti myndarinnar, fyrir 1874, byggir á mælingum mjög fárra veðurstöðva og óstöðluðum aðstæðum sem við vitum lítið um. Við tökum því hóflegt mark á, en getum þó séð greinilegan mun ára og jafnvel lengri tímabila.

Fyrsta sumar núverandi hlýskeiðs virðist hafa verið 1996. Það var ekki síst sérlega hlýr september sem kom því í það sæti. Næstu tvö sumur á eftir, 1997 og 1998, féllu nær hinu venjulega ástandi kuldaskeiðsins, en síðan hlýnaði verulega, sérstaklega eftir 2001. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ben.Ax. (Benedikt  Jóhannes Axelsson)

Sæll. 
Ég var kennari í 40 ár og finnst mér í minningunni að maí og september hafi oft verið sólríkustu mánuðir ársins.
Er eitthvað til í þessu?

Ben.Ax. (Benedikt Jóhannes Axelsson), 1.10.2022 kl. 18:51

2 Smámynd: Trausti Jónsson

Maí er alloft sólríkasti mánuður ársins - en september ekki - sólargangur er þá orðinn mun styttri. Á síðustu 100 árum hefur maí 31 sinni verið sólríkasti mánuður ársins, en september aldrei, mars hins vegar einu sinni, apríl 10 sinnum, júní 24 sinnum, júlí 21 sinni og ágúst 13 sinnum. September gæti hitt í þetta eins og mars - en aðeins eftir sérlega sólarlausa tíð fram að því. 

Trausti Jónsson, 2.10.2022 kl. 03:13

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veðurfræðingur og áhugamaður um veður.

Færsluflokkar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • w-blogg230424
  • Slide10
  • Slide8
  • Slide6
  • Slide5

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.4.): 196
  • Sl. sólarhring: 367
  • Sl. viku: 2021
  • Frá upphafi: 2350757

Annað

  • Innlit í dag: 179
  • Innlit sl. viku: 1807
  • Gestir í dag: 175
  • IP-tölur í dag: 175

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband