Fyrstu 10 dagar septembermánaðar

Fyrstu 10 dagar september hafa verið hlýir um meginhluta landsins. Meðalhiti í Reykjavík er 10,9 stig og er það 1,2 stigum ofan meðallags áranna 1991 til 2020 og síðustu tíu ára einnig. Þetta er fjórðahlýjasta septemberbyrjun á þessari öld (af 22). Hlýjast var árið 2010, þá var meðalhiti sömu daga 13,8 stig, kaldastir voru þessir sömu dagar árið 2012, meðalhiti 8,1 stig. Á langa listanum er hitinn nú í 13. hlýjasta sæti (af 148). Kaldastir voru þessir sömu dagar árið 1977, meðalhiti þá 5,7 stig.
 
Á Akureyri er meðalhiti fyrstu tíu daga mánaðarins 9,9 stig, +0,3 stigum ofan meðallags 1991 til 2020, en -0,1 stigi neðan meðallags síðustu tíu ára.
 
Að tiltölu hefur verið hlýjast á Miðhálendinu*, þar er þetta næsthlýjasta septemberbyrjun aldarinnar. Kaldast að tiltölu hefur verið við Breiðafjörð og á Ströndum og Norðurlandi vestra. Þar er þetta tíundahlýjasta septemberbyrjun á öldinni.
 
Á einstökum veðurstöðvum er jákvætt vik mest í Sandbúðum, þar er hiti 4,5 stigum ofan meðallags síðustu tíu ára. Neikvætt vik er mest á Skagatá, þar sem hiti er -1,0 stigum undir meðallagi síðustu tíu ára.
 
Úrkoma hefur mælst 40,5 mm í Reykjavík, um 60 prósent umfram meðallag. Á Akureyri hefur úrkoman mælst aðeins 0,8 mm, ekki algengt, en þó hefur það komið fyrir að engin úrkoma hefur mælst á Akureyri fyrstu 10 daga septembermánaðar (1958 og 1946).
 
Sólskinsstundir hafa mælst 68,9 í Reykjavík, 28 stundum umfram meðallag og hefur aðeins 8 sinnum mælst meiri sömu daga síðust 100 árin rúm. Á Akureyri hafa sólskinsstundirnar mælst 26,9, átta stundum færri en að meðallagi.
 
Loftþrýstingur hefur verið með hærra móti, hefur aðeins 9 sinnum verið meiri sömu daga síðustu 200 ár, síðast 1991.
 
*við ritum hér stóran staf vegna þess að hér er um nafn á spásvæði Veðurstofunnar að ræða. 
 

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þorsteinn Briem

Sem sagt, um 60% meiri rigning og 40% meira sólskin hér í Reykjavík en í meðalári. cool

Þorsteinn Briem, 11.9.2022 kl. 16:21

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veðurfræðingur og áhugamaður um veður.

Færsluflokkar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • w-blogg160524a
  • w-blogg160524i
  • Slide10
  • Slide9
  • Slide8

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.5.): 71
  • Sl. sólarhring: 108
  • Sl. viku: 1151
  • Frá upphafi: 2354676

Annað

  • Innlit í dag: 64
  • Innlit sl. viku: 1032
  • Gestir í dag: 62
  • IP-tölur í dag: 59

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband