Smávegis af maí

Það hefur farið vel með veður í maí. Nokkuð kalt var um tíma framan af mánuðinum en síðan hefur hiti aðallega verið vel yfir meðallagi. Nokkur landshlutamunur er þó á hitanum.

w-blogg310522a

Taflan sýnir röðun meðalhita á spásvæðunum, miðað við aðra maímánuði aldarinnar. Á Suðurlandi er þetta fjórðihlýjasti maímánuður aldarinnar - (þar sem mánuðurinn er ekki alveg búinn þegar þetta er skrifað gæti hliðrast til um sæti til eða frá). Svipuð staða er við Faxaflóa, á Suðausturlandi og á Miðhálendinu, nyrðra er hitinn víðast hvar í kringum meðallagið, nema á Ströndum og Norðurlandi vestra þar sem hitinn raðast í 14. hlýjasta sætið (9. kaldasta). 

w-blogg310522b

Myndin sýnir reiknaðan meðalhita í byggðum landsins (mjög óáreiðanlegt fyrir 1874). Þegar til lengri tíma er litið hefur hlýnað í maí eins og í öðrum mánuðum ársins. En eins og fjallað var um í gömlum hungurdiskapistli (26.janúar 2017], sker maí sig nokkuð úr fyrir það að hann hefur kólnað frá því var á árunum 1930-40 - nokkuð sér á parti með slíkt. Maí nú í ár (2022) er töluvert hlýrri en sá í fyrra - þá var stöðug norðaustanátt ríkjandi með sólskinsstundameti í Reykjavík. Allt er miklu hóflegra nú. 

Vorið (apríl og maí) hefur líka verið hagstætt, meðalhiti í byggðum landsins er 4,0 stig, rétt ofan meðallags áranna 1991 til 2020 og +0,8 stigum ofan meðallags áranna 1961-1990. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veðurfræðingur og áhugamaður um veður.

Færsluflokkar

Júlí 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30 31      

Nýjustu myndir

  • w-blogg220724b
  • w-blogg220724a
  • w-blogg210724
  • Slide2
  • Slide1

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (27.7.): 17
  • Sl. sólarhring: 427
  • Sl. viku: 2733
  • Frá upphafi: 2378309

Annað

  • Innlit í dag: 14
  • Innlit sl. viku: 2421
  • Gestir í dag: 14
  • IP-tölur í dag: 14

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband