Fyrstu 20 dagar febrúarmánaðar

Fyrstu 20 dagar febrúar voru kaldir. Meðalhiti í Reykjavík var -1,9 stig, -2,6 stigum neðan meðallags sömu daga áranna 1991 til 2000, en -3,2 stig neðan meðallags síðustu tíu ára og það næstkaldasta á öldinni. Kaldara var sömu daga árið 2002, meðalhiti þá -2,3 stig. Hlýjastir á öldinni voru þessir sömu dagar árið 2017, meðalhiti +4,1 stig. Á langa listanum er hiti nú í 120 sæti (af 150). Hlýjastir voru sömu dagar 1965, meðalhiti +4,8 stig, en kaldastir voru þeir 1892, meðalhiti -4,8 stig.
 
Á Akureyri er meðalhiti nú -3,7 stig, -3,2 stig neðan meðallags 1991 til 2020 og -3,7 stig neðan meðallags síðustu tíu ára. Lítillega kaldara var á Akureyri sömu daga árið 2009.
 
Á spásvæðunum er þetta næstkaldasti febrúar aldarinnar við Faxaflóa, Breiðafjörð og á Vestfjörðum, en annars sá kaldasti. Vik frá meðallagi síðustu tíu ára er minnst á Gjögurflugvelli, -2,2 stig, en mest í Veiðivatnahrauni, -5,4 stig.
 
Úrkoma hefur mælst 53,3 mm í Reykjavík og er það um fimmtung undir meðallagi. Á Akureyri hefur úrkoma mælst 68,6 mm og er það langt í tvöföld meðalúrkoma.
 
Sólskinsstundir hafa mælst 47,4 í Reykjavík, um 9 fleiri en í meðalári, en 21,3 á Akureyri og er það í meðallagi.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Þórhallsson

Upp með LÍNURITIN.

Jón Þórhallsson, 21.2.2022 kl. 13:32

2 Smámynd: Trausti Jónsson

Línurit?

Trausti Jónsson, 21.2.2022 kl. 13:42

3 Smámynd: Jón Þórhallsson

Veðurstofan mætti fjarnan koma sér upp nákvæmlega eins heimasíðu-forriti eins og hér er sýnt með ÍSLENSKU umhverfi: 

https://www.yr.no/nb/værvarsel/graf/2-2627309/Island/Norðurland%20Vestra/Sveitarfélagið%20Skagafjörður/Sauðárkrókur

Jón Þórhallsson, 21.2.2022 kl. 18:39

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veðurfræðingur og áhugamaður um veður.

Færsluflokkar

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Nýjustu myndir

  • w-blogg200324b
  • w-blogg200324a
  • Slide10
  • Slide9
  • Slide8

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 19
  • Sl. sólarhring: 64
  • Sl. viku: 417
  • Frá upphafi: 2343330

Annað

  • Innlit í dag: 15
  • Innlit sl. viku: 375
  • Gestir í dag: 14
  • IP-tölur í dag: 14

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband