Breyttir tímar

Ţegar ritstjóri hungurdiska leit á veđurkortin í dag (hann gerir ţađ nćrri ţví alltaf) komu honum (rétt einu sinni) í hug ţćr miklu breytingar sem orđiđ hafa í veđurspám frá ţví um 1980 - ţegar hann sjálfur var á spávaktinni. Reynt var (međ mjög misjöfnum áragri) ađ gera tveggja daga spár - en mestur hluti tímans fór í spár sem ađeins giltu sólarhring fram í tímann. Tölvuspár voru ađ vísu farnar ađ berast til landsins á ţessum árum, en mađur varđ sjálfur ađ teikna ţćr margar upp úr tölum sem komu frá útlöndum í sérstökum skeytum. Spár komu líka á „fax-i“ frá bresku og bandarísku veđurstofunum - stundum ágćtar auđvitađ - en oft ekki. Gríđarlegt stökk fram á viđ varđ síđan haustiđ 1982 ţegar spár fóru ađ berast frá evrópureiknimiđstöđinni og skömmu síđar uppfćrđu bćđi breska og bandaríska veđurstofan líkön sín svo um munađi - ţá bćttist annar sólarhringurinn viđ svo marktćkt gćti talist - og sá ţriđji birtist viđ sjóndeildarhring - ţađ voru framfaratímar.

En fyrir ţann tíma ríkti nćr alltaf mikil óvissa ţegar lćgđir nálguđust landiđ. Skýjakerfin sáust á óskýrum gervihnattamyndum (ţćr komu 2 til 5 sinnum á dag - ef tćkiđ var ekki bilađ). 

w-blogg130122a

Myndin er frá ţví í dag, fimmtudaginn 13. janúar. Hér má sjá mikiđ skýjabelti - verđur til í tengslum viđ háloftavindröst - sýnir okkur hvernig hún liggur. Neđarlega á myndinni má sjá lćgđ - hún stefnir í átt til landsins. Hér hefđi ritstjórinn hiklaust sett bćđi hita- og kuldaskil - og afmarkađ mjög stóran hlýjan geira. Hann hefđi hins vegar varla getađ ákvarđađ áframhaldandi ţróun hans međ vissu. Ţađ hlaut ađ verđa nokkuđ ágiskunarkennt. Hversu langt norđur komast hitaskilin? Fylgir ţeim mikil snjókoma? Rignir síđan mikiđ - og hvar ţá? Nćr lćgđin ađ dýpka? Er hún e.t.v. illrar ćttar og dýpkar hún ofsalega? Fleiri upplýsingar lágu ţó fyrir.

w-blogg130122b

Háloftaathuganir bárust nokkuđ greiđlega til landsins - alveg vestan frá vestasta hluta Kanada og austur til Finnlands. Eitt verkefnanna á vaktinni var ađ teikna ţrjú háloftakort tvisvar á sólarhring, fyrir 700, 500 og 300 hPa ţrýstifletina. Jafnhćđarlínur voru dregnar á öll ţessi kort. Jafnhitalínur líka á 700 og 500 hPa kortin, en vindrastir á 300 hPa - svipađ og sýnt er á ţessu korti sem gildir kl.18 í dag (fimmtudaginn 13. janúar). Á kortinu sjá vön augu ađ ekki er líklegt ađ lćgđin fari í einhvern ofurvöxt - en háloftavindar eru stríđir og lítiđ má út af bera. 

w-blogg130122c

Á ţessu korti má sjá sjávarmálsţrýsting kl.18 í dag (heildregnar línur) og ţriggja stunda ţrýstibreytingu (í lit). Um 1980 barst hingađ slatti af skeytum frá farskipum á leiđ um Atlantshafiđ - verulegt gagn var af ţeim. Ţau gerđu mögulegt ađ greina ţrýstisviđiđ og leita ţrýstikerfi uppi. Auk farskipanna voru nokkur „veđurskip“ á föstum stöđum. Um 1980 voru veđurskipin Alfa, Bravó og Indía horfin, Bravó alveg, en í stađ Alfa var veđurdufl sem loftskeytamenn Veđurstofunnar fylgdust međ hljóđmerkjum frá. Alltaf spennandi ađ fylgjast međ ţeim skeytum. Ţegar veđurskipin Indía og Júlía voru lögđ af, kom skipiđ Líma í ţeirra stađ - sunnar en Indía hafđi veriđ. Charlie og Metró voru enn á sínum stađ eftir 1980. Sérlega vel var fylgst međ skeytum frá Charlie - ţađan komu margar illskeyttustu lćgđirnar. 

Hefđi ţessi stađa sést 1980 - og lćgđin fundist - hefđi tekiđ viđ spennandi tími - engar fréttir af henni nćst ţar til ţrýstingur fćri ađ falla á Suđvesturlandi á undan lćgđinni. Hversu ört yrđi ţađ ţrýstifall? Lítiđ ađ gera nema bíđa ţess sem verđa vildi - og vera fljótur ađ breyta spánni ef lćgđin fćri eitthvađ öđru vísi en ráđ var fyrir gert. 

Á móti allri ţessari óvissu kom ađ kröfur til „óskeikulleika“ veđurfrćđinga voru hóflegar. Alltaf var skrifuđ spá - nokkuđ hiklaust og án teljandi samviskubits - ţrátt fyrir ađ margar ţeirra ţyrfti ađ éta međ húđ og hári - strax nokkrum klukkustundum síđar. En ţví er samt ekki ađ neita ađ ţessar misheppnuđu spár voru harla ţurrar undir tönn - en ţćr vel heppnuđu ađ sama skapi ljúffengar - og raunverulegur ánćgjuauki. 

Ţó margt sé orđiđ léttara eru nákvćmniskröfur miklu meiri, mun fleiri dagar undir og hlutskipti spáveđurfrćđingsins ábyggilega ţannig ekkert léttara en var fyrir 40 árum. Ritstjóri hungurdiska vildi alla vega ekki skipta - en ţakkar bara auđmjúkur ţví ágćta fólki sem nú stendur vaktina - og ţeim sem hafa unniđ alla ţá vinnu sem ađ baki nútímaveđurspám liggur. Veđurfrćđingar ársins 1980 stóđu líka talsvert betur ađ vígi heldur en ţeir sem voru í spám fjörutíu árum áđur, áriđ 1940 - svo ekki sé talađ um nćstu 40 ár ţar á undan - ađ ekkert var nema hyggjuvitiđ eitt - misjafnt ađ vanda.  


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Um bloggiđ

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veđurfrćđingur og áhugamađur um veđur.

Fćrsluflokkar

Apríl 2024
S M Ţ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • w-blogg230424
  • Slide10
  • Slide8
  • Slide6
  • Slide5

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 214
  • Sl. sólarhring: 306
  • Sl. viku: 1788
  • Frá upphafi: 2350415

Annađ

  • Innlit í dag: 144
  • Innlit sl. viku: 1593
  • Gestir í dag: 139
  • IP-tölur í dag: 138

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri fćrslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband