Sígild óróastaða

Árið 2022 hefur byrjað heldur órólega - fyrst með miklu hvassviðri á nýársdag - þó landið sunnan- og vestanvert slyppi við hríð (nema á fáeinum fjallvegum). Vindhraði náði stormstyrk á rúmlega 30 prósent veðurstöðva, sem telst allmikið og ársmet (10-mínútna meðalvindur) voru slegin á tveimur stöðvum þar sem athugað hefur verið lengi, á Bláfeldi þar sem vindur fór í 39,0 m/s og á Hafnarmelum (við Hafnará - ekki sama stöð og vegagerðarstöðin), þar sem vindur mældist 35,9 m/s og hviða fór í 54,8 m/s. Það er öflugasta janúarhviða sem mælst hefur þar. Janúarmet voru slegin á Bláfeldi, Ingólfshöfða, í Þykkvabæk, á Mörk á Landi, í Hjarðalandi, á Fagurhólsmýri, í Jökulhiemum og  við Setur. Athugum þó að ekki hefur verið litið á mælingarnar með villur í huga. 

Síðdegis í gær (2.janúar) og í dag (3.) hefur síðan mikið illviðri gengið yfir Austurland. Uppgjör um vindhraða liggur þó ekki fyrir enn. Mikill sjógangur var við höfnina á Borgarfirði eystra og eitthvað tjón af hans völdum. Stórstreymt er um þessar mundir. 

Ný kerfi stefna til landsins. Síðdegis á morgun (þriðjudag 4. janúar) er gert ráð fyrir því að staðan í háloftunum verði sú sem sjá má á kortinu hér að neðan.

w-blogg030122a

Jafnhæðarlínur 500 hPa-flatarins eru heildregnar, af þeim ráðum við vindstefnu og vindstyrk í miðju veðurahvolfi. Þykktin ers sýnd með litum. Hún mælir hita í neðri hluta veðrahvolfs, því meiri sem hún er því hlýrra er loftið. Ekki er hægt að kalla þessa stöðu annað en sígilda - hefur sést ótölulega oft áður. Að vísu eru smáatriðin aldrei alveg eins og þau skipta máli þegar brautir illviðra og afl þeirra ræðst. Ekki gott fyrir augu ein að greina þau, en reiknilíkönin eru nokkuð viss í sinni sök. 

Mikill kuldapollur er vestan Grænlands - hann er þó ekki alveg í fullum þroska miðað við það sem við oft sjáum á þessum árstíma. Nægilega öflugur þó til þess að kitla bylgju af hlýju lofti sem má sjá við Nýfundnaland svo mjög að úr á að verða lægð af dýptstu gerð. Flestar spár segja miðjuþrýsting hennar fara niður fyrir 930 hPa á fimmtudaginn - þá á lægðin að verða á Grænlandshafi - nokkuð fyrir vestan land. Örvar á myndinni sýna hinn mikla þykktarbratta (hitamun) í lægðinni nýju og einnig bendir ör á undanfarasunnanátt sem nefnd er hér að neðan. 

Hæðarhryggurinn yfir Íslandi er líka sígildur í þessari stöðu. Hann er á austurleið og fylgir honum allhvöss sunnanátt og slagviðri seint á aðfaranótt og fram eftir degi. Í stöðu sem þessari er þessi sunnanátt oft hvassari heldur en nú er spáð og hafur þá oft valdið foktjóni t.d. í Borgarnesi og á Snæfellsnesi - á undan aðalveðrinu sem fylgir svo lægðinni ógurlegu. Auðvitað er rétt að hafa gætur á þessari undanfarasunnanátt - þó reiknimiðstöðvar geri ekki mjög mikið úr henni. 

Gangi spárnar um djúpu lægðina eftir fylgja henni nokkrir vindstrengir. Landsynningsveður allmikið aðfaranótt fimmtudags - mjög hvasst og úrkoma mikil, einkum sunnan- og suðaustanlands - ekki ferðaveður. Síðan lægir lítilega - en sem stendur er mikil spurning hversu mikið verður hér úr aðalillviðrinu nærri lægðarmiðunni - í því sem kallað er snúður hennar. Kannski verður farið að draga úr því áður en það nær hingað - kannski nær versti strengurinn einfaldlega ekki til okkar.

Þeir sem eitthvað eiga undir veðri ættu að fylgjast sérlega vel með spám Veðurstofunnar - þar er vel fylgst með breytingum á spám og veðri og gefnar út viðvaranir eftir því sem við á. Takið mark á þeim. 

Rétt er að hafa einnig í huga að lægðum sem þessum fylgir há sjávarstaða og jafnvel mikið brim - jafnvel þó allra lægsti þrýstingurinn verði að líkindum fyrir vestan land. Gætið ykkur því sérstaklega við sjóinn. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Verður ekki bara að gefa tölvunum þumalinn upp fyrir spána (skrifað að morgni 6/1) virðist hafa gengið eftir að við svona rétt sluppum Íslendingar við verstu varíasjónir?

91 hnúta hviða á Reykjanesvita er nú samt sem áður ekki lítið!

Bjarni G. Bjarnason (IP-tala skráð) 6.1.2022 kl. 08:31

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veðurfræðingur og áhugamaður um veður.

Færsluflokkar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • w-blogg230424
  • Slide10
  • Slide8
  • Slide6
  • Slide5

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 200
  • Sl. sólarhring: 302
  • Sl. viku: 1774
  • Frá upphafi: 2350401

Annað

  • Innlit í dag: 130
  • Innlit sl. viku: 1579
  • Gestir í dag: 125
  • IP-tölur í dag: 124

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband