Fyrstu 10 dagar desembermánaðar

Meðalhiti í Reykjavík fyrstu 10 daga desember er -0,1 stig, -1,0 stigi neðan meðallags áranna 1991-2020 og -0,2 stigum neðan meðallags sömu daga síðustu tíu árin. Hitinn er í 14.hlýjasta sæti (af 21) sömu daga á öldinni. Hlýjastir voru þessir dagar árið 2016, meðalhiti þá var +7,1 stig, en kaldastir voru þeir árið 2011, meðalhiti -4,8 stig. Á langa listanum er hitinn nú í 92. hlýjasta sæti (af 146). Kaldastir voru þessir sömu dagar árið 1887, meðalhiti þá -7,2 stig.
 
Á Akureyri er meðalhiti fyrstu 10 desemberdagana -1,9 stig, -1,5 stigum neðan meðallags áranna 1991-2020, en í meðallagi síðustu 10 ára.
 
Að tiltölu hefur verið kaldast á Austurlandi að Glettingi. Þar raðast hitinn í 18.hlýjasta sæti aldarinnar (4.kaldasta), en hlýjast hefur verið við Faxaflóa þar sem hiti raðast í 11.hlýjasta sætið.
 
Á einstökum veðurstöðvum er jákvætt vik (miðað við síðustu 10 ár) mest í Mikladal í Patreksfirði, +1,4 stig, en neikvætt mest í Möðrudal, -2,2 stig.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veðurfræðingur og áhugamaður um veður.

Færsluflokkar

Mars 2025
S M Þ M F F L
            1
2 3 4 5 6 7 8
9 10 11 12 13 14 15
16 17 18 19 20 21 22
23 24 25 26 27 28 29
30 31          

Nýjustu myndir

  • w-blogg230325a
  • Slide15
  • Slide14
  • Slide13
  • Slide12

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.3.): 6
  • Sl. sólarhring: 106
  • Sl. viku: 1340
  • Frá upphafi: 2455666

Annað

  • Innlit í dag: 6
  • Innlit sl. viku: 1200
  • Gestir í dag: 6
  • IP-tölur í dag: 6

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband