Hálfur maí

Meðalhiti fyrri hluta maímánaðar er 4,1 stig í Reykjavík, -1,8 stigum neðan meðallags sömu daga árin 1991 til 2020 og líka síðustu tíu ára og í 19.hlýjasta sæti (af 21.) á þessari öld (kaldara var 2003 (3,9 stig) og 2015, 2,8 stig), hlýjast var 2008, meðalhiti 8,3 stig. Á langa listanum er hitinn í 111.sæti (af 145). Kaldastir voru sömu dagar 1979 - meðalhiti þá +0,3 stig, en hlýjastir voru þeir 1960, meðalhiti 9,4 stig.

Á Akureyri er meðalhitinn 2,2 stig, -3,0 neðan meðallag 1991 til 2020 og -2,7 neðan meðallags síðustu tíu ára.

Víðast hvar á landinu er þetta næstkaldasti fyrri hluti maí á öldinni, nokkru kaldara var á sama tíma 2015. Að tiltölu hefur verið hlýjast í Bláfjöllum, hiti þar -1,4 neðan meðallags síðustu tíu ára, en kaldast hefur verið á Fjarðarheiði, og við Kárahnjúka hiti -4,2 stig neðan meðallags.

Úrkoma hefur verið lítil, í Reykjavík hafa aðeins mælst 2,1 mm, en hefur nokkrum sinnum verið minni. Á Akureyri hafa aðeins mælst 2,6 mm - en þar hefur líka verið þurrara nokkrum sinnum.

Sólskinsstundir í Reykjavík eru óvenjumargar, 196,4 hafa mælst til þessa, meira en áður. Næstmest mældist 1958, 190,0 stundir. Hefði sami mælir verið notaður þá er líklegt að fleiri stundir eða jafnmargar hefðu mælst og nú (um þetta vandamál er fjallað í sérstökum pistli).

Loftþrýstingur hefur enn verið hár - en er þó sem fyrr ekki nærri meti.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Nístingskuldi upp á hvern dag með norðan golu og stundum stífri gerir veruna utandyra ekki bærilega nema helst sunnan undir vegg. Á Akureyri er hitinn lengra neðan meðallagi en fyrir sunnan. Hvar fer þessi fyrri hluti maí á langa listann á þeim bæ? 

Hjalti Þórðarson (IP-tala skráð) 21.5.2021 kl. 11:05

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veðurfræðingur og áhugamaður um veður.

Færsluflokkar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • w-blogg160424b
  • w-blogg160424a
  • w-blogg120424c
  • w-blogg120424b
  • w-blogg120424a

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.4.): 121
  • Sl. sólarhring: 190
  • Sl. viku: 2363
  • Frá upphafi: 2348590

Annað

  • Innlit í dag: 107
  • Innlit sl. viku: 2070
  • Gestir í dag: 97
  • IP-tölur í dag: 97

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband