Aðeins meira af apríl

Hinn hái loftþrýstingur í apríl telst til tíðinda í apríl (en er væntanlega hrein og klár tilviljun rétt eins og summa lottótalna slær við og við met). En það var ekki bara hæð yfir Grænlandi heldur líka vestur af Bretlandseyjum - og þetta þrýstimet því í eins konar söðulpunkti á milli hæðanna.

w-blogg030521a

Jafnþrýstilínur eru heildregnar, en vik eru sýnd í lit, þau jákvæðu rauðbrún, en þau neikvæðu bláleit. Norðlægar áttir voru ríkjandi fyrir austan þetta mikla háþrýstisvæði. Kalt var víða í Skandinavíu - ekki þó eins í Finnlandi og vestar. Sömuleiðis var kalt á Bretlandi - sem og víða á meginlandi Evrópu.

w-blogg030521b

Hér má sjá (sé myndin stækkuð) hæð 500 hPa-flatarins (heildregnar línur), þykkt (daufar strikalínur) og þykktarvik, bæði í nýliðnum apríl (efst til vinstri) sem og í þeim þremur aprílmánuðum öðrum sem „skyldastir“ eru honum í háloftunum, apríl 1956, 1973 og 1977. Þykktin mælir hita í neðri hluta veðrahvolfs, því meiri sem hún er því hlýrra er loftið. Mesta jákvæða vikið í nýliðnum apríl var við strönd Labrador, um 90 metrar. Þar var hiti í neðri hluta veðrahvolfs um 4,5 stigum ofan meðallags áranna 1981 til 2010, en neikvæða vikið var mest í grennd við Danmörku, um 50 metrar - eða -2,5 stig undir meðallagi.

Vestanáttin í háloftunum var nokkuð stríð og átti sér dálítinn norðlægan þátt. Það er líka einkenni þessara fjögurra mánaða að hlýrra var fyrir vestan land heldur en austan þess. Slíkt er ekki mjög algengt. Staðan árið 1956 var einna líkust stöðunni nú, hæðarhryggurinn í við snarpari 1973 og í apríl 1977 var heldur kaldara en nú. 

Það sést ekki vel á myndinni, en í öllum mánuðunum fjórum hagaði þannig til að ívið hlýrra var fyrir vestan land heldur en austan við (lesist af legu daufu strikalínanna), öfugt við það sem algengast er. 

Á fáeinum veðurstöðvum á Austurlandi var apríl kaldari heldur en mars og á enn færri var hann kaldari heldur en febrúar líka. Hann náði því þó hvergi að verða kaldasti mánuður vetrarins - eins og komið hefur fyrir. Einu sinni áður á þessari öld hefur apríl orðið kaldari en bæði febrúar og mars á fleiri en 8 veðurstöðvum - það var 2012, næst þar áður árið 1991. Það er dálítið skemmtilegt að á árunum 1948 til 1959 (12 ár) var apríl í 5 skipti kaldari en bæði febrúar og mars á meirihluta stöðva - klasamyndunar gætir í veðrinu (ólíkt lottóinu). 

Hiti í apríl var neðan meðallags um land allt. Að tiltölu var hlýjast á Vestfjörðum, þar raðast meðalhitinn í 12.hlýjasta sæti (af 21) á öldinni, en kaldast að tiltölu var á Suðausturlandi þar sem hitinn var í 17.hlýjasta sæti. Það er misjafnt hver er kaldasti apríl á öldinni. Það er 2006 við Faxaflóa, Breiðafjörð og á Vestfjörðum, 2001 á Ströndum og Norðurlandi vestra, 2010 á Norðausturlandi, á Suðausturlandi og á Miðhálendinu, 2008 á Austurlandi að Glettingi, 2012 á Austfjörðum og 2015 á Suðurlandi. Á landinu í heild var svo kaldast í apríl 2013 (þó var sá mánuður hvergi kaldastur á einstöku spásvæði). E.t.v. bendir þetta til þess að við eigum enn eftir að fá afgerandi kaldan apríl á þessari öld - hann hlýtur að bíða færis - eða er það ekki? 

Við þökkum Bolla P. fyrir kortagerðina. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veðurfræðingur og áhugamaður um veður.

Færsluflokkar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • w-blogg230424
  • Slide10
  • Slide8
  • Slide6
  • Slide5

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 341
  • Sl. sólarhring: 355
  • Sl. viku: 1915
  • Frá upphafi: 2350542

Annað

  • Innlit í dag: 258
  • Innlit sl. viku: 1707
  • Gestir í dag: 244
  • IP-tölur í dag: 244

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband