Tíu ár

Nú hefur blogg hungurdiska þraukað í tíu ár. Fyrsta færslan birtist 19.ágúst 2010. Pistlarnir eru að sögn teljara orðnir 2677. Hin síðari ár hefur birtingatíðni verið heldur minni en framan af - og ekki eru pistlarnir allir efnismiklir. Mjög margt er ósagt - svo margt að ritstjóranum óar við og alveg ljóst að aldrei kemur það allt fram - ekki einu sinni það sem liggur innan seilingar. Um þessar mundir er tímafrekust samantekt ritstjórans á fréttum af veðri og tíð áranna 1749 til 1924. Miðar því nokkuð, birt hafa verið yfirlit um 80 ár af 176 - stutt í að helmingur þeirra hafi verið „lagður að velli“. Það verður bara að koma í ljós hvort verkefninu lýkur - eða hversu lengi verður áfram haldið.  

Nota hér tækifærið og þakka jákvæðar undirtektir lesenda - sem enn virðast furðumargir. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þakklátur lesandinn ég þakka þér fyrir þessi ár, og hvet þig samtímis áfram til þinna óviðjafnanlegu veðurrannsóknar-dáða, hugleiðinga og skrifa, Trausti.

Hlakka einkum til vetrarskrifa þinna og þar með til komandi vetrar.

Bestu kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 19.8.2020 kl. 22:08

2 Smámynd: Þórhallur Pálsson

Hafi þú kæra þökk fyrir alla þína pistla !
Ég hef orðið margs fróðari við lesturinn, þó það hendi að mig bresti skilning á sumu.

Þórhallur Pálsson, 19.8.2020 kl. 22:58

3 Smámynd: Þorsteinn Briem

Mjög áhugaverðir pistlar og til hamingju með áfangann! cool

Þorsteinn Briem, 19.8.2020 kl. 23:27

4 identicon

Til hamingju með úthaldið, og bestu þakkir fyrir allan fróðleikinn! 

Finnbogi Óskarsson (IP-tala skráð) 20.8.2020 kl. 09:23

5 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Þakka af alhug allt sem þú skrifar um veðurfar,þótt skilji ekki allar lýsingar háloftanna en er þó farin að þekkja Bola í sjón,til hamingju með áfangann.

Helga Kristjánsdóttir, 20.8.2020 kl. 23:47

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veðurfræðingur og áhugamaður um veður.

Færsluflokkar

Júlí 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30 31      

Nýjustu myndir

  • w-blogg220724b
  • w-blogg220724a
  • w-blogg210724
  • Slide2
  • Slide1

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (27.7.): 17
  • Sl. sólarhring: 426
  • Sl. viku: 2733
  • Frá upphafi: 2378309

Annað

  • Innlit í dag: 14
  • Innlit sl. viku: 2421
  • Gestir í dag: 14
  • IP-tölur í dag: 14

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband