Októberhiti (á landsvísu)

Í ţessum pistli er fjallađ um októberhita - á landsvísu (og einstökum spásvćđum). Međalhiti í byggđum landsins reiknast 4,2 stig, -0,3 stigum neđan viđ međallag síđustu tíu októbermánađa. Eins og sumir muna var alveg sérlega hlýtt í október 2016 og 2017. Myndin sýnir međalhita í október síđustu 200 árin tćp - tölur fyrir 1875 ađ vísu býsna óvissar (gráar súlur).

w-blogg311019a

Viđ sjáum ađ hitinn í október 2019 telst ekki til tíđinda á neinn hátt, hann er lítillega hćrri en í október í fyrra, en annars svipađur ţví sem veriđ hefur á öldinni - ađ undanskildum ţeim tveimur mánuđum sem áđur var minnst á. Grćna línan sýnir 10-árakeđjur - tíuárameđaltaliđ nú er svipađ og ţađ var hćst um miđja síđustu öld, en hefur ţó ekki alveg „toppađ“ ţađ - hvađ sem síđar verđur. Nú eru 11 ár síđan kalt var síđast í október (2008) og nćrri fjörutíu ár síđan mjög kalt hefur veriđ (1980 og 1981). 

Ţađ er svo annađ mál ađ bakviđ ţetta hófsama međaltal leynast nokkuđ miklar hitasveiflur, einn dagur (23.) var mjög kaldur og allmargir hlýir blíđudagar auđvelduđu lífiđ og styttu veturinn. Ţann 24. var sett nýtt októberlágmarkshitamet í 500 hPa-fletinum yfir Keflavíkurflugvelli, -43,2 stig, gamla metiđ -42,4 stig var sett 11.október 1971. Met voru ekki sett í öđrum hćđum. Sú er skođun ritstjóra hungurdiska ađ ástćđan sé líklega hár sjávarhiti norđan viđ land (ađrir kunna ađ vera á annarri skođun). Sami dagur reyndist líka (nokkuđ óvćnt) hvassasti dagur ársins (hingađ til) á landinu í heild - en stormur var ţó ekki sérlega víđa. Sýnir e.t.v. hvađ áriđ hefur almennt veriđ illviđrasnautt.

w-blogg31019a

Hér má sjá ađ hiti í mánuđinum rađast í međalţriđjung (í hlýjasta ţriđjungi teljast efstu 6 sćtin og ţau köldustu 6 í ţeim neđstu (14. til 19.)). Hlýjast ađ tiltölu hefur veriđ viđ Faxaflóa og Breiđafjörđ, en kaldast á Austurlandi ađ Glettingi og á Austfjörđum. 

Áriđ - ţađ sem af er - er í svipađri stöđu.

w-blogg31019b

Ađ tiltölu hefur veriđ hlýjast viđ Faxaflóa, +0,4 stigum ofan viđ međallag síđustu tíu ára og ţar nćr áriđ upp í hlýja ţriđjunginn - er í 5. hlýjasta sćti. Áriđ hefur veriđ kaldast ađ tiltölu á Austurlandi ađ Glettingi, hiti ţar -0,3 stigum neđan međalhita síđustu tíu ára. 

Nú er ađ sjá hvernig síđustu tveir mánuđir ársins standa sig. Breytileiki hita í nóvember og desember er mikill frá ári til árs og munar um öfgar á hvorn veg sem er í röđun sem ţessari. Harla ólíklegt er ţó ađ áriđ verđi methlýtt. 


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Um bloggiđ

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veđurfrćđingur og áhugamađur um veđur.

Fćrsluflokkar

Mars 2024
S M Ţ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Nýjustu myndir

  • w-blogg200324b
  • w-blogg200324a
  • Slide10
  • Slide9
  • Slide8

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 36
  • Sl. sólarhring: 71
  • Sl. viku: 434
  • Frá upphafi: 2343347

Annađ

  • Innlit í dag: 30
  • Innlit sl. viku: 390
  • Gestir í dag: 28
  • IP-tölur í dag: 27

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri fćrslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband