Vel eđa illa?

Stundum er árferđi ţannig ađ lítiđ verđur úr öllu veđri - sama hversu illa ţađ lítur út - illviđra og öfgaspár rćtast nćr aldrei. Ţannig hefur ţađ nú veriđ lengi. En stundum á hiđ gagnstćđa viđ - illt verđur úr flestu, og verđur jafnvel verra en spáđ er. Ţannig stendur á ţegar ţetta er skrifađ (seint á föstudagskvöldi 18.október) ađ reiknađar spár virđast sammála um ađ í nćstu viku gangi mjög snarpt kuldakast yfir landiđ. Spárnar hafa reyndar heldur linast á hvassviđrinu frá ţví ađ kastiđ kom fyrst fram - dćmigert fyrir góđa árferđiđ, en enn hafa ţćr ekki linast á kuldanum. Ritstjóranum finnst samt ekki ólíklegt ađ ţćr geri ţađ líka ţegar nćr dregur. 

En viđ lítum lauslega á stöđuna.

w-blogg191019a

Kortiđ er úr ranni evrópureiknimiđstöđvarinnar og gildir síđdegis á sunnudag 20.október. Jafnhćđarlínur 500 hPa-flatarins eru heildregnar. Af ţeim ráđum viđ vindátt og vindstyrk í rúmlega 5 km hćđ, en ţykktin er sýnd í lit. Ţykktin mćlir hita í neđri hluta veđrahvolfs, ţví minni sem hún er ţví kaldara er loftiđ. Gulu litirnir sýna ađ mjög hlýtt loft úr suđri leitar til norđurs á Grćnlandshaf, en kalt loft kemur úr norđvestri og síđar norđri. Ţessir andstćđu loftstraumar mćtast í námunda viđ landiđ.

Í illu ári myndi illa fara, mikil lćgđadýpkun, mikill vindur, mikil úrkoma (rigning og síđar snjór), en í góđu árferđi hittir ekkert í, hlýtt loft og kalt fara á mis. Síđari möguleikinn virđist sá sem tískan fylgir nú (en viđ erum samt aldrei alveg viss) - en lćgđin veldur samt norđanátt og ískalt heimskautaloft steypist til suđurs yfir landiđ seint á mánudag - og svo áfram nćstu daga. 

Kuldinn á ađ ná hámarki á miđvikudag og fimmtudag. Kortiđ hér ađ neđan sýnir spána fyrir miđvikudagskvöld.

w-blogg191019b

Litirnir sýna hita í 850 hPa-fletinum, -12 til -15 stig yfir landinu. Ekki alveg met í október, en býsna kalt samt. Ţađ er 5080 metra jafnţykktarlínan sem liggur yfir landiđ ţvert. Ţađ er ekki oft sem ţykktin er svona lítil yfir landinu í október. Ritstjóranum sýnist í fljótu bragđi ađ fara ţurfi aftur til 1971 til ađ finna jafnlága októbertölu yfir Keflavíkurflugvelli. 

En svona kuldaspár hafa oft sést án ţess ađ raunveruleikinn hafi tekiđ mark á ţeim. Hvort svo fer nú vitum viđ ekki - og svo er ţví líka spáđ ađ ţetta gangi fljótt yfir. Spár á spár ofan - alltaf einhver skemmtan.   


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Athugasemdir

1 identicon

Kannski er bót í máli ađ ţótt dćgurspárnar bregđist sjá veđurspámenn ţeim mun betur fram í tímann sem ţeir gćgjast lengra: Sýringur tér svíđa, sígur fold í mar .. leikur hár hiti viđ himin sjálfan. 

Baldur Gunnarsson (IP-tala skráđ) 20.10.2019 kl. 17:09

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Um bloggiđ

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veđurfrćđingur og áhugamađur um veđur.

Fćrsluflokkar

Apríl 2024
S M Ţ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • w-blogg230424
  • Slide10
  • Slide8
  • Slide6
  • Slide5

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 131
  • Sl. sólarhring: 267
  • Sl. viku: 1705
  • Frá upphafi: 2350332

Annađ

  • Innlit í dag: 77
  • Innlit sl. viku: 1526
  • Gestir í dag: 74
  • IP-tölur í dag: 73

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri fćrslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband