1.8.2019 | 21:44
Meira um júlí
Þó hlýtt hafi verið í júlí var hitafar á landinu ekki óvenjulegt nema um landið suðvestanvert. Eins og fram hefur komið í fréttum var þetta hlýjasti júlímánuður mælisögunnar í Reykjavík, sá 11.hlýjasti (af 174) í Stykkishólmi, og 22.hlýjasti á Stórhöfða - á Austurlandi var hann í miðjum leik, í 33.sæti af 65 á Egilsstöðum. Á Hveravöllum var hiti mánaðarins hins vegar í 3.hlýjasta sæti (af 55) og telst í 3. til 4. sæti (af 140) í Árnesi. Meðalhiti í byggðum landsins reiknast 11,2 stig, 1,6 stig ofan meðallags júlímánaðar á árunum 1961-1990 og 0,6 stig ofan meðallags síðustu tíu ára. Ritstjóri hungurdiska hefur ekki enn reiknað þykktina yfir Keflavíkurflugvelli - en hún segir til um það hversu hlýtt hefur verið í neðri hluta veðrahvolfs. Í endurgreiningum reiknimiðstöðva lendir hún hins vegar í kringum 15.sæti síðustu 70 árin. Hér er því ekki um einstök hlýindi á landsvísu að ræða - vindáttir hafa verið íbúum á Suðvesturlandi hagstæðar.
Það sjáum við líka á þrýstivikakorti evrópureiknimiðstöðvarinnar. Bolli Pálmason fær að vanda bestu þakkir fyrir kortagerðina.
Jafnþrýstilínur (við sjávarmál) eru heildregnar, af þeim ráðum við ríkjandi vindáttir, en þrýstivik eru sýnd með litum, þau jákvæðu eru bleikleit, en þau neikvæðu blá. Norðaustanáttin greinilega talsvert sterkari en venjulega í júlí - hæðin yfir Grænlandi í öflugra lagi. Miðað við þessi vik getur komið á óvart að ekki skuli hafa verið kaldara norðaustan- og austanlands en raun ber vitni. Lauslegur samanburður (án ábyrgðar og nákvæmra útreikninga) virðist benda til þess að hiti hafi verið 1-2 stigum hærri en venjulega í þessari stöðu - og munar um minna. Meðalhiti á Egilsstöðum var 10,6 stig nú, kannski hefði hann átt að vera um 9 stig.
Að einhverju leyti má finna ástæður hlýindanna suðvestanlands og þess að hiti var ofan væntinga norðaustanlands í háloftunum.
Hér má sjá stöðuna í 500 hPa, meðalhæð og vik. Hæðin yfir Grænlandi var sum sé af hlýju gerðinni að þessu sinni. Gríðarmikil jákvæð vik við Grænland norðaustanvert - og vestanátt mun veikari en venjulega yfir Íslandi - algjör áttleysa raunar. Það segir e.t.v. ekki mikið en síðustu 70 ár hefur vestanáttin aðeins 9 sinnum áður verið jafnveik í júlí og nú, þar af 6 sinnum á síðustu 13 árum, en aðeins þrisvar 57 árin þar á undan - allt auðvitað gæðamánuðir á Suðvesturlandi - sístur þó júlí 1988. Aftur á móti mikill skítur oftast eystra. Fyrir veðurnördin skal hinna getið líka: 1950, 1960, 2007, 2008, 2009, 2010, 2015, 2016 - auk júlí nú.
Það er um það talað að umframhlýnun á norðurslóðum valdi veikingu á vestanvindabeltinu - ekki síst að sumarlagi. Þó þær vangaveltur séu á veikum grunni er því ekki að neita að hin endurtekni slaki í vestanáttinni í júlí hér við land á þessari öld ýtir frekar undir grun um að eitthvað kunni að vera til í þessu. - En rétt eins má búast við að hér sé aðeins um tilviljanakennda tískubólu að ræða. Vestanáttin var í allgóðu lagi í júlí í fyrra.
Flokkur: Vísindi og fræði | Breytt s.d. kl. 23:18 | Facebook
Um bloggið
Hungurdiskar
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (26.12.): 429
- Sl. sólarhring: 550
- Sl. viku: 2128
- Frá upphafi: 2422591
Annað
- Innlit í dag: 405
- Innlit sl. viku: 1957
- Gestir í dag: 397
- IP-tölur í dag: 392
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Desember 2024
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.