Sundurlausar júlítölur (hćsti júlímeđalhiti)

Viđ höfum stundum litiđ á sundurlausar metatölur fyrir einstaka mánuđi. Hér er eitthvađ af slíku fyrir júlímánuđ - kannski fyrsti kafli af fleirum. Ţó enn sé möguleiki á ţví ađ júlí 2019 verđi sá hlýjasti í sögunni í Reykjavík (eđa jafni eldri hćstu tölur) er varla hugsanlegt ađ einhver landsmet verđi slegin, hvorki í flokki landsmeđalhita, né hćsta mánađarmeđalhita á veđurstöđ. Júlí 1933 verđur enn sá hlýjasti á landsvísu (ađ minnsta kosti eitt ár í viđbót), međalhiti ţá var 12,0 stig. Ţađ má kannski gagnrýna reikniađferđirnar - talan er grunsamlega há - en viđ bíđum međ ađ breyta henni ţar til allt hefur veriđ reiknađ aftur (sem nćsta kynslóđ reiknifíkla gerir). Sömuleiđis verđur međalhitinn á Egilsstöđum í júlí 1955 enn sá hćsti á nokkurri veđurstöđ í júlí, 13,7 stig. Fyrst var byrjađ ađ mćla á Egilsstöđum 1943 (ţegar Flugfélag Íslands hóf flug til ţangađ), en allt ţar til í október 1954 voru mćlingar ţar í skötulíki og birtust t.d. ekki í Veđráttunni tímariti Veđurstofunnar.

egilsstadir_1954-10-24

Til „gamans“ er hér mynd af skýlinu á Egilsstöđum  - úr safni Veđurstofunnar - myndina tók Flosi Hrafn Sigurđsson. Ţađ var í notkun á árunum 1945 til 1954 - vonandi eitthvađ betur útlítandi framan af - og rétt ađ taka fram ađ hurđin hefur sennilega oftast veriđ lokuđ. Ţá leysti ţađ af skýli sem Geirmundur Árnason veđurfrćđingur lýsir svo í eftirlitsskýrslu sem dagsett er 8.ágúst 1945: „Áhaldakassinn hafđi veriđ settur upp viđ eldhúsdyr ... og vissi á móti suđri. Hurđin á kassanum hafđi fokiđ af í aftakaveđri og týnst eđa eyđilagst og hafđi ekkert veriđ ađ gert, svo ađ sól skein beint á hitamćlana“.

En ţetta var allt lagfćrt í október 1954 og upp frá ţeim degi skulum viđ trúa athugunum frá Egilsstöđum - ţar međ ţeim sem gerđar voru sumariđ 1955 - ţá rigndi sem kunnugt er stöđugt á landinu sunnan- og vestanverđu - međ sífelldum hvassviđrum ţar ađ auki - en austanlands var eindćma hlýtt. Međalhiti júlímánađar var ţá 13,6 stig á Hallormsstađ og á Skriđuklaustri - ómarktćkt lćgri en Egilsstađametiđ. Međalhiti í júlí 1880 reiknast líka 13,7 stig á Valţjófsstađ í Fljótsdal. Nokkur óvissa er í ţeirri tölu - en hún er samt ţessi. Veđurnörd vita ađ ágústtalan á Valţjófsstađ 1880 er sú hćsta sem vitađ er um í nokkrum almanaksmánuđi hér á landi, 14,0 stig. Međalhiti í júlí hefur nokkrum sinnum til viđbótar reiknast 13,6 stig í júlí, á Írafossi 1991, Hćli í Hreppum 1939, í Möđrudal 1894 (vafasamt) og 1926. Hćsta júlímeđaltaliđ á höfuđborgarsvćđinu er 13,5 stig á Rafmagnsstöđinni viđ Elliđaár 1944 - kannski rétt ađ athuga ţá tölu betur. Svo má nefna skrýtna tölu vestan frá Hesteyri í Jökulfjörđum, 13,5 stig í júlí 1936 - óvíst hvort viđ trúum henni. Fleiri stöđvar eiga 13,5 stig. Viđ skulum hér nefna 13,4 stig í Birkihlíđ í Skriđdal 1991 - ţví miđur eru athuganir frá Hallormsstađ úr sama mánuđi ekki á lager ritstjóra hungurdiska (hugsanlega til samt). Ţađ er yfirleitt nokkru hlýrra í júlí á Hallormsstađ heldur en uppi í Skriđdalnum - ef viđ förum ađ reikna út og suđur fáum viđ ađ međaltaliđ á Hallormsstađ hafi veriđ 14,0 stig - en var „ţví miđur“ ekki „nema“ 12,9 stig á Egilsstöđum - og ţađ dregur heldur úr líkum á ţví ađ mćlingar á Hallormsstađ hefđu í raun gefiđ okkur 14 stigin 1991. 

Hćsta júlítalan á Akureyri er 13,3 stig - ţađ var 1933 - og ţá var međalhiti í Reykjahlíđ viđ Mývatn 13,5 stig. Međalhitinn á Nefbjarnarstöđum á Úthérađi var 12,5 stig í júlí 1933, 0,3 stigum hćrri en á ţeim slóđum í júlí 1955 - kannski var međalhiti ţá 14 stig á Egilsstöđum eđa á Hallormsstađ? Ţađ er sárt ađ mćlingar vanti ţađan - ć, já. Mćlingar voru ekki heldur gerđar á Eiđum ţetta merkilega sumar.  


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Um bloggiđ

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veđurfrćđingur og áhugamađur um veđur.

Fćrsluflokkar

Apríl 2024
S M Ţ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • w-blogg160424b
  • w-blogg160424a
  • w-blogg120424c
  • w-blogg120424b
  • w-blogg120424a

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.4.): 118
  • Sl. sólarhring: 199
  • Sl. viku: 2360
  • Frá upphafi: 2348587

Annađ

  • Innlit í dag: 104
  • Innlit sl. viku: 2067
  • Gestir í dag: 94
  • IP-tölur í dag: 94

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri fćrslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband