9.12.2018 | 22:23
Upp á við (eða hvað?)
Við skulum nú velta okkur aðeins upp úr sólarhringsmeðalhita desembermánaðar í Reykjavík, en ekki má þó taka þessa umfjöllun mjög alvarlega því á henni eru ákveðnir annmarkar þar sem nokkuð gisk þarf til að finna hita hvers sólarhrings á fyrri hluta þess tímabils sem litið er á - við treystum því hins vegar að tilviljun sjái til þess að giskið sé ekki kerfisbundið rangt - þó rangt sé giskað á hita einstakra daga (- jæja). En aðallega til skemmtunar fyrir nördin sum sé.
En lítum fyrst á tíðnirit.
Hér má sjá hvernig sólarhringsmeðalhitinn dreifist. Blái ferillinn á myndinni sýnir allt tímabilið frá 1872 til 2017, tæplega fjögur þúsund og fimm hundruð daga alls. Dreifingin er ekki alveg samhverf um meðaltalið - mjög kaldir dagar eru fleiri en þeir mjög hlýju - þeir sem eru kaldara megin við miðju dreifast á 17 stig, en þeir hlýrra megin á aðeins ellefu. Um 80 prósent daga er meðalhitinn á bilinu -5,0 til +4,9 stig - og um 20 prósent daga á bilinu -1,0 til +0,9 stig. Frostmarkssækinn staður Reykjavík í desembermánuði (og reyndar allan veturinn).
Græni ferillinn sýnir sams konar talningu á árunum 1872 til 1900 en sá rauði á við fyrstu 17 ár þessarar aldar. Það hefur verið mun hlýrra nú upp á síðkastið heldur en var á fyrra skeiðinu. Nú er sólarhringsmeðalhiti ofan við 5 stig um það bil sjötta hvern dag í desember, en á því skeiði 19. aldar sem við sjáum hér var hitinn svo hár aðeins einn dag af hverjum 25 eða svo. Þetta munar miklu. Meðalhiti í desember er líka mun hærri, var -1,3 stig, en hefur á þessari öld verið +1,0 stig. Á fyrra skeiðinu var sólarhringsmeðalhitinn neðan við -9 stig um það bil 20. hvern dag eða 1 sinni til 2 í hverjum desembermánuði. Á þessari öld hafa slíkir dagar aðeins verið tveir í desember.
En - nú spyrja sumir: Hvað með hlýindaskeiðið mikla á 20.öld - hvernig var með það. Á árunum 1926 til 1965 var meðalhiti í desember +0,7 stig, aðeins 0,3 stigum lægri en á þessari öld.
Síðari myndin ber saman hita þessara tveggja hlýskeiða.
Lárétti ásinn sýnir hita - eins og á fyrri myndinni, en súlurnar eru mismunur tíðni sólarhringshitans á þessum tveimur hlýskeiðum. Séu gildi jákvæð hafa þau verið algengari á þessari öld heldur en á fyrra hlýskeiði. Skiptingin er nokkuð undarleg. Dagar þegar sólarhringsmeðalhiti er yfir 5 stig hafa verið algengari nú en þá - eins og áður sagði er nú sjötti hver dagur svo hlýr, en á árunum 1926 til 1965 var tíundi hver dagur hlýr. Dagar með hita um og rétt yfir frostmarki eru færri nú en var - en aftur á móti er -2 til -4 stiga frost nokkuð algengara - og dagar þegar sólarhringsmeðalhiti er lægri en -7 stig eru helmingi færri nú en var á fyrra hlýskeiðinu. - Lóðréttu línurnar á myndinni sýna meðalhita tímabilanna tveggja (rétt eins og á fyrri mynd).
Hlýjastur desemberdaga (hæstur sólarhringsmeðalhiti) í Reykjavík 1871 til 2017 er sá 14. árið 1997, þá var meðalhitinn 10,2 stig, næsthlýjastur var sá 10. árið 2001.
Kaldastur var annar í jólum árið 1880, þá var sólarhringsmeðalhitinn -16,3 stig. Sá kaldasti í minni núlifandi manna er í 6.sæti á listanum með -14,1 stig. Það var sá 28. árið 1961. Kaldastur á þessari öld var sá 5. árið 2013, meðalhiti -10,6 stig, næstkaldast var á þorláksmessu árið 2004, meðalhiti -9,5 stig.
Flokkur: Vísindi og fræði | Breytt s.d. kl. 22:27 | Facebook
Um bloggið
Hungurdiskar
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.3.): 14
- Sl. sólarhring: 229
- Sl. viku: 1890
- Frá upphafi: 2454558
Annað
- Innlit í dag: 12
- Innlit sl. viku: 1721
- Gestir í dag: 12
- IP-tölur í dag: 12
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Mars 2025
- Febrúar 2025
- Janúar 2025
- Desember 2024
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.