Enn af vetrarspá

Fyrir mánuđi síđan litum viđ á vetrarspá evrópureiknimiđstöđvarinnar um hćđarvik 500 hPa-flatarins í desember til febrúar. Dreifing vikanna segir eitthvađ um međalstyrk og stefnu háloftavinda í ţessum mánuđum. Nú er komin ný spá fyrir sömu mánuđi.

w-blogg131018i

Viđ sjáum sem fyrr hluta norđurhvels jarđar. Litafletirnir sýna vikin - gulir og brúnir litir eru svćđi ţar sem búist er viđ jákvćđum hćđarvikum, en á ţeim bláu eru vikin neikvćđ. Spáin er í raun mjög svipuđ og var fyrir mánuđi síđan - vikin heldur eindregnari ţó. Spáđ er öllu flatari hringrás heldur en ađ međaltali - vestanáttin viđ Ísland og fyrir sunnan ţađ öllu slakari en algengast er. Háţrýstisvćđi líka algengari norđurundan en vant er - og lćgđabrautir fremur suđlćgar - inn yfir Suđur-Evrópu fremur en yfir Ísland og Noregshaf. Helsta breytingin í legu vikanna frá fyrri spá er ađ austanáttin er heldur suđlćgari en var fyrir mánuđi.

En jafnvel ţó spáin rćtist er rétt ađ hafa í huga ađ hún tekur til ţriggja mánađa og sá tími felur ótalmargt. Kuldapollarnir stóru - ţeir sem viđ höfum hér til gamans nefnt Stóra-Bola og Síberíu-blesa verđa vćntanlega á sínum slóđum eins og venjulega, en rćtist ţessi spá eru samt meiri líkur en minni á ađ ţeir fái ađ takast meir en venjulega á viđ fyrirstöđur alls konar og hrekist oftar í suđlćgari stöđu en algengast er. 

Munum enn ađ árstíđaspár af ţessu tagi eru algjör tilraunastarfsemi og lítt martćkar, en merkilegt verđur ađ telja rćtist ţessi - sérstaklega vegna ţess ađ hér er veđjađ á allt annađ veđurlag en ríkt hefur ađ undanförnu. Háţrýstisvćđiđ í námunda viđ Skandinavíu heldur ađ vísu sínu í ţessari spá (og heldur betur en fyrir mánuđi), en vestan Grćnlands er spárástand gjörólíkt ţví sem veriđ hefur ríkjandi lengst af frá ţví í vor. Spurningin er ţá hvenćr skiptir? Verđum viđ vör viđ ţađ ţegar ađ ţví kemur - eđa lćđist ţađ bara ađ? Fjölviknaspá reiknimiđstöđvarinnar sem kom í hús í gćrkveldi er eitthvađ ađ tala um fjórđu eđa fimmtu viku héđan í frá - ţađ er ađ segja fyrrihluta nóvembermánađar.


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Athugasemdir

1 identicon

Froststillur hjá okkur íslendingum en vitlausar roklćgđir yfir Bretland Danmörk og suđurhluta Skandinavíu?

Bjarni Gunnlaugur (IP-tala skráđ) 13.10.2018 kl. 10:30

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Um bloggiđ

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veđurfrćđingur og áhugamađur um veđur.

Fćrsluflokkar

Júlí 2024
S M Ţ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30 31      

Nýjustu myndir

  • w-blogg220724b
  • w-blogg220724a
  • w-blogg210724
  • Slide2
  • Slide1

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (27.7.): 17
  • Sl. sólarhring: 427
  • Sl. viku: 2733
  • Frá upphafi: 2378309

Annađ

  • Innlit í dag: 14
  • Innlit sl. viku: 2421
  • Gestir í dag: 14
  • IP-tölur í dag: 14

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri fćrslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband