Sumardagafjöldi í Reykjavík

Nú lítum viđ á sumardagafjölda í Reykjavík ţađ sem af er sumri. Vegna tölvuvandrćđa á Veđurstofu verđum viđ ađ láta ađra umfjöllun um uppgjör ágústmánađar og sumarsins bíđa ţar til eftir helgina. Skilgreiningu sumardags má finna eldri pistlum.

w-blogg010918a

Myndin sýnir sumardagafjölda hvers árs í Reykjavík frá 1949 til 2018. Ţađ verđur ađ taka fram ađ ađ međaltali eru tveir sumardagar í september - ţannig ađ formlega séđ er ţetta uppgjör ekki endanlegt. En satt best ađ segja er útkoman heldur hrakleg miđađ viđ ţađ sem algengast hefur veriđ á ţessari öld. Sumardagar teljast 12 til ţessa í sumar, enginn í júní, fjórir í júlí og átta í ágúst. Međaltal aldarinnar er 34 dagar á ári. Aftur á móti kemur í ljós ađ međalsumardagafjöldi á árunum 1961-1990 var ekki nema 13 - ţannig ađ miđađ viđ ţá tíma telst núlíđandi sumar í međallagi. 

Bćtist enginn dagur viđ í september (eđa október) er sumardagafjöldinn sá minnsti síđan 1995. 

Vestanáttin hefur veriđ međ stríđara móti í háloftunum í sumar. Viđ lítum á međaltöl hennar.

w-blogg010918b

Háloftaathuganir ná reyndar ekki nema aftur til 1949, en viđ látum endurgreiningar giska á stöđuna áratugina ţrjá ţar á undan. Kvörđum hefur veriđ snúiđ viđ - ţá sjáum viđ betur samrćmi viđ hina myndina. Súlurnar liggja ţví neđar á myndinni eftir ţví sem vestanáttin er meiri. Hún var mest sumariđ 1983 - ţá voru sumardagar líka fćstir í Reykjavík. Vestanáttin var sterk 1995 - ţá voru sumardagar í Reykjavík ađeins 5. Viđ sjáum líka ađ vestanáttin var líka fremur sterk bćđi sumariđ 2013 og í sumar, 2018, en samt ekki mjög langt ofan međallags 1961-1990. 

Vestanátt háloftanna hefur nefnilega veriđ alveg sérlega slök hér viđ land lengst af á ţessari öld. Ađ tengja „óvenjumikla“ vestanátt sumarsins í sumar veđurfarsbreytingum er ţví harla vafasamt - ef viđ sjáum yfirhöfuđ einhverja hneigđ í ţessu línuriti er ţađ helst í (sumar-)slaka vestanáttarinnar á undanförnum 15 árum. - En sjálfsagt er máliđ flóknara en ţađ. 

Mest austanáttarsumra er 1950 - skriđusumariđ mikla á Austurlandi. 

Sumardagar á Akureyri eru nú orđnir 38, 8 fćrri en ađ međaltali á öldinni til ţessa - en venjulega bćtast nokkrir viđ í september ţannig ađ enn er góđur möguleiki á ađ međaltali verđi náđ ţar. 


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Athugasemdir

1 identicon

Takk kćrlega fyrir ţennan fróđleik Trausti. Ţetta međ sumardagafjöldann er skemmtileg nálgun á sumariđ. Ţarna líka er hćgt ađ sjá svart á hvítu, eđa á mynd réttara sagt, nákvćmlega eins og manni hefur fundist. Hef talađ viđ marga sem fluttu á suđvesturhorniđ um og eftir aldamótn og töluđu um hve miklu betri sumrin vćru í Reykjavík heldur en á Norđurlandi. Jú, jú, ţetta var rétt ţ.e.a.s. sumrin eftir aldamótin sem voru óvanalega góđ á ţeim slóđum og mörg hver mun betri en ţau norđlensku. En ef lengra aftur er fariđ sést líka vel hve ţessi góđu sumur eftir aldamótin skera sig úr. Kannski er samjöfnuđur viđ einhver sumur á fjórđa áratugnum. Ţegar ég er ađ alast upp og fór ađ hafa eitthvert smávit (etv svona um og eftir 1980) var oft talađ um rigningarnar á suđurlandi og hve miklu sólríkara og ţurrara vćri á Norđurlandi. Norđlensku sumrin voru mörg hver ágćt en jú heldur betur misjöfn og muna flestir, sem á annađborđ lifđu ţađ, sumrin 1979 og ađ ég held 1983 (sem skora einnig mjög lítiđ í Reykjavík) sem voru algjör ógeđ međ stanslausri norđanátt og köldu veđri. 

Hjlti Ţórđarson (IP-tala skráđ) 2.9.2018 kl. 16:31

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Um bloggiđ

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veđurfrćđingur og áhugamađur um veđur.

Fćrsluflokkar

Apríl 2024
S M Ţ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • w-blogg230424
  • Slide10
  • Slide8
  • Slide6
  • Slide5

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.4.): 195
  • Sl. sólarhring: 373
  • Sl. viku: 2020
  • Frá upphafi: 2350756

Annađ

  • Innlit í dag: 178
  • Innlit sl. viku: 1806
  • Gestir í dag: 174
  • IP-tölur í dag: 174

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri fćrslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband