Sólarleysi

Í lok dags í gær (mánudag) voru algjörlega sólarlausir dagar orðnir 6 í mánuðinum í Reykjavík. Óvenjulegast er að þessir dagar eru allir í röð. Og þegar þetta er skrifað lítur ekki sérlega vel út með sólskin í dag (þriðjudag) - þó stöku spá geri að vísu ráð fyrir einhverri glennu í kvöld. Ekki er vitað til þess að 6 (og því síður 7) sólarlausir dagar hafi áður komið í röð í júní í Reykjavík. Einu sinni er vitað um sjö algjörlega sólarlausa daga í röð í Reykjavík í júlí, það var rigningasumarið mikla 1984 og eins komu sjö sólarlausir dagar í röð í ágúst 1999. 

Sé litið á júnímánuð í heild voru sólarlausir dagar (margir stakir) flestir 1933, tíu talsins. Júnímánuður nú hefur auðvitað ekki enn náð þeirri tölu - hvað sem verður. Í júlí 1984 voru sólarlausu dagarnir 17, og 13 voru þeir í ágúst rigningasumarið mikla 1955, 11 í annars ágætum ágústmánuði 1957, daufum júlí 1959,  ágúst 1981 og í rigninga- og kuldaágústmánuði 1983. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veðurfræðingur og áhugamaður um veður.

Færsluflokkar

Maí 2025
S M Þ M F F L
        1 2 3
4 5 6 7 8 9 10
11 12 13 14 15 16 17
18 19 20 21 22 23 24
25 26 27 28 29 30 31

Nýjustu myndir

  • w-blogg260525a
  • w-blogg250525a
  • w-blogg250525a
  • w-blogg180525a
  • w-blogg120525a

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (30.5.): 45
  • Sl. sólarhring: 133
  • Sl. viku: 1459
  • Frá upphafi: 2471907

Annað

  • Innlit í dag: 37
  • Innlit sl. viku: 1358
  • Gestir í dag: 36
  • IP-tölur í dag: 36

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband