Staðan í apríl

Þá eru 20 dagar liðnir af aprílmánuði og rétt að taka stöðuna. Jákvæðu hitavikin hafa vaxið mjög undanfarna daga. Meðalhiti það sem af er mánuði er nú +5,0 stig í Reykjavík, +2,7 stigum ofan meðallags áranna 1961-1990, en +1,5 stigum ofan meðallags síðustu tíu ára. Hitinn er nú í 2. til 3. hæsta sæti (af 18.) á öldinni og í því 13. á 144-ára listanum. Á þeim langa lista sitja sömu dagar aprílmánaðar 1974 þegar meðalhitinn var +6,1 stig. Neðstir á lista eru þessir dagar 1876 þegar meðalhiti var -3,7 stig.

Á Akureyri er meðalhiti það sem af er apríl +3,1 stig, +0,9 stigum ofan meðallags síðustu tíu ára.

Að tiltölu hefur mánuðurinn hingað til verið hlýjastur á Patreksfirði og við Siglufjarðarveg, hiti +1,9 stigi ofan meðallags síðustu tíu ára, en kaldast að tiltölu hefur verið við Kárahnjúka, -0,5 stigum neðan meðallags sama tíma.

Úrkoma í Reykjavík hefur mælst 26,5 mm, (um 60 prósent meðalúrkomu), en 17,4 á Akureyri, ríflega þrír fjórðuhlutar meðalúrkomu þar á bæ.

Sólskinsstundir hafa mælst 83,3 í Reykjavík og má það heita í meðallagi.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veðurfræðingur og áhugamaður um veður.

Færsluflokkar

Júlí 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30 31      

Nýjustu myndir

  • w-blogg220724b
  • w-blogg220724a
  • w-blogg210724
  • Slide2
  • Slide1

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (27.7.): 17
  • Sl. sólarhring: 435
  • Sl. viku: 2733
  • Frá upphafi: 2378309

Annað

  • Innlit í dag: 14
  • Innlit sl. viku: 2421
  • Gestir í dag: 14
  • IP-tölur í dag: 14

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband