18.3.2018 | 22:56
Evrópskur austankuldi - tvö dæmi frá stríðsárunum
Austankuldi hrjáir hluta Evrópu þessa dagana. En eins og oft hefur verið talað um hér á hungurdiskum áður er það langt í frá nýtt fyrirbrigði. Meginlöndin eru kaldari en höfin á vetrum og austanáttin því kaldari en vestanáttin í Evrópu lengst af vetrar. Þessu er öfugt farið að sumarlagi - þá er austanátt hlýrri á meginlandinu heldur en svalinn vestan af sjónum. Má segja að sumar sé gengið í garð í Evrópu þegar austanvindur verður hlýrri en sá úr vestri.
Það er hins vegar mjög breytilegt frá ári til árs og jafnvel frá einum áratug til annars hversu algeng austanátt er að vetrarlagi á meginlandinu. Evrópa er í vestanvindabelti lofthjúpsins og vestanáttin þá hin eðlilega ríkjandi vindátt og vestanvindabeltið raunar mun öflugra á vetrum heldur en að sumarlagi. En landa- og fjallgarðaskipan truflar bylgjuganginn - og bítur þar hvert í annars hala.
Miklir kuldar í Ameríku - sem t.d. geta stafað af hlýindum á Kyrrahafi snúa vestanvindunum norður á bóginn yfir Atlantshafi og þeir eru því iðnari en venjulega við að flytja varma norður á heimskautaslóðir og Evrópa gleymist - Síberíukuldi á því greiðari leið vestur um heldur en venjulega. - Reyndar er erfitt að fullyrða um það hvað veldur hverju í þessu flókna kerfi.
En á árum síðari heimstyrjaldarinnar hittist þannig á að austankuldinn átti greiða leið til vesturs þrjá vetur í röð, 1940, 1941 og 1942. Í gömlum hungurdiskapistli, 18. janúar 2011, var gerður samanburður á hita hér á landi og á Álandseyjum á 5. áratugnum. Allir þessir vetur þrír verða að teljast hagstæðir hér á landi þó auðvitað væri alls ekki um samfellda blíðu að ræða - frekar en venjulega.
En við skulum til gamans líta á tvö veðurkort frá þessum tíma, annað frá 18. janúar 1940, en hitt frá 25. janúar 1942. Kortin eru fengin úr þýskri kennslubók í veðurfræði, útgefinni 1948. Höfundur hennar, Richard Scherhag, varð síðar mjög þekktur fyrir brautryðjendarannsóknir á veðurfræði heiðhvolfsins, heimsþekkur á sínu sviði.
Fyrra kortið sýnir stöðuna 15. janúar 1940 og þar með einhverja öflugustu hæð sem nokkru sinni hefur sést yfir Grænlandi - svo virðist sem hæðin teygi sig um allt heimskautasvæðið. Bandaríska endurgreiningin nær hæðinni ekki alveg, alla vega er þrýstingur þar ekki 1064,8 hPa í Myggbukta á Norðaustur-Grænlandi, en sagt er að það sé hæsti þrýstingur sem mælst hefur í því landi (sagt án ábyrgðar). Í janúar 1940 flæddu veðurskeyti enn frjálst frá Íslandi og Grænlandi til Þýskalands - en Bretland er autt frá þeim séð - og eins var vetrarstríðið á fullu í Finnlandi - hvort það hefur algjörlega teppt veðurskeyti þennan daga veit ritstjóri hungurdiska ekki.
En gríðarlega öflug skil eru á milli austankuldans og vestanloftsins við Eystrasalt, sýnist vera -17 stiga frost í Riga í Lettlandi, en +1 stigs hiti í Memel - sem nú er í Litháen.
Síðara kortið sýnir minna svæði - en nær lengra suður.
Aldeilis kaldur dagur við Eystrasalt og langt suður um Evrópu og ekki bara kalt heldur er víða hvasst líka. Þjóðverjar virðast hafa fengið veðurskeyti víðast úr Evrópu - nema Bretlandi (og ekki heldur frá Íslandi) - enda réðu þeir flestu. Skipaskeytin gætu verið frá herskipum eða jafnvel kafbátum. Þarna er hitamunurinn hvað mestur í Hollandi, austanhvassviðri eða stormur, snjókoma og -10 stiga frost norðan skilanna, en vestanstinningskaldi eða allhvass vindur og +3 stiga hiti sunnan þeirra - skammt á milli.
Scherhag er þarna í texta að vísa til mikils kuldapolls en miðja hans gekk þessa daga vestur eftir Eystrasalti með einhverri lægstu þykkt sem mælst hefur á þeim slóðum. [Rétt að taka fram að þykktartölur sem tilfærðar eru í bókinni eru of lágar miðað við þann kvarða sem við nú notum (og hefur verið notaður á alþjóðavísu frá 1949)].
Flokkur: Vísindi og fræði | Facebook
Um bloggið
Hungurdiskar
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (26.3.): 5
- Sl. sólarhring: 105
- Sl. viku: 1339
- Frá upphafi: 2455665
Annað
- Innlit í dag: 5
- Innlit sl. viku: 1199
- Gestir í dag: 5
- IP-tölur í dag: 5
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Mars 2025
- Febrúar 2025
- Janúar 2025
- Desember 2024
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.