Vorskref

Nú líður senn að jafndægrum á vori. Þá fer að hlýna að mun á meginlöndum í syðsta hluta tempraða beltisins - en á sama tíma gefur kuldinn á norðurslóðum lítt eftir - og sömuleiðis er hafið lengur að taka við vorinu heldur en þau svæði þar sem fast er undir fótum.

w-blogg120318a

Jafnhæðarlínur 500 hPa-flatarins eru heildregnar á þessu korti, því þéttari sem þær eru því stríðari er vindurinn. Litir sýna þykktina, en hún mælir hita í neðri hluta veðrahvolfs - því meiri sem hún er því hlýrra er loftið. Spáin gildir síðdegis á miðvikudag, 14. mars.

Einhvern veginn virðist það græna - sem getur á þessum árstíma vel staðið fyrir einskonar vor - hafa heldur breitt úr sér miðað við það sem var fyrir ekki svo löngu. - En langt er enn í efnismikla gula sumarliti. Og hinn fjólublái litur vetrarkuldapollanna er enn býsnaútbreiddur á norðurslóðum. 

En blái liturinn er hér að hrekjast frá Íslandi undan grænum - í bili að minnsta kosti og boðar slíkt heldur hlýrri tíð á meðan. 

Það þýðir þó ekkert enn að vænta vors í alvöru - í stöku ári getur það að vísu komið snemma, en eins og sjá má er líka mjög stutt í mikinn kulda og hann getur vel tekið upp á því að ryðjast til suðurs í mjóum skyndisóknum. 

Almenna reglan er sú að þegar meginlöndin hlýna - en hafið tregðast við - verður meðalvindátt í háloftum yfir okkur vestlægari - febrúar og fyrri hluti marsmánaðar eiga sunnanáttahámark, styrkurinn breytist hins vegar lítið fyrr en í kringum sumardaginn fyrsta að skyndilega dregur úr. 

Meðalhiti hér á landi er svipaður allan veturinn - allt frá miðjum desember þar til um mánaðamót mars/apríl. Mars að vísu um hálfu stigi hlýrri að meðaltali en janúar og febrúar. Á landsvísu er hann þó kaldasti mánuður ársins um það bil fimmta hvert ár.

Í marslok fer að muna svo um sól að bæði land og loft fara að hitna. Á landsvísu er meðalhiti í apríl um 2 stigum hærri en í mars, og í maí er hann 3,5 stigum hærri en í apríl. Svo munar um 3 stigum á maí og júní og tæpum tveimur á júní og júlí. Að meðaltali er hlýjast á milli 20. júlí og 10. ágúst. Vorið birtist að jafnaði fyrst undir Eyjafjöllum, gægist síðan fyrir hornið vestur á Rangárvelli - og stekkur síðan yfir á höfuðborgarsvæðið - aðrir landshlutar þurfa oftast að bíða lengur - en fá þó stundum hlýjustu dagana - en aðeins einn eða fáa í senn. 

Hvernig til tekst í vor vitum við auðvitað ekkert um. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Takk fyrir þetta. Sýnist að á mínum slóðum á Norðurlandi sé mars sá kaldasti 4 hvert ár á þessari öld. Þó hann sé oftar kaldastur heldur en janúar þá er meðalhitinn einhverri hálfri gráðu hærri i mars. Sl 20 virðist janúar vera stabílli þ.e. minni munur á þeim hlýjasta og kaldasta (3,4 gráður í jan á móti  7,1 gráðu í mars). Það kemur á óvart eða kannski ekki. Sennilega er ekki neitt sem kemur á óvart í veðrinu.

Hjalti Þórðarson (IP-tala skráð) 13.3.2018 kl. 11:16

2 Smámynd: Valdimar Samúelsson

Trausti þakka fyrir allt þitt innlegg og alltaf gaman að fylgjast með. Mig dettur í hug spurning vegna frétta sem ég heyrði aðeins en náði henni ekki alveg. Hún var sú að nú eða mun nú fara fram alþjóða ? veðurfars-rannsókna á norðurhveli jarðar og sagt að einhvað kæmi veðurstafa Íslands inn í dæmið. Ef þú veist einhvað gætir þú komið mer á sporið Kv V  

Valdimar Samúelsson, 14.3.2018 kl. 12:52

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veðurfræðingur og áhugamaður um veður.

Færsluflokkar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • w-blogg230424
  • Slide10
  • Slide8
  • Slide6
  • Slide5

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (24.4.): 39
  • Sl. sólarhring: 236
  • Sl. viku: 1355
  • Frá upphafi: 2349824

Annað

  • Innlit í dag: 29
  • Innlit sl. viku: 1232
  • Gestir í dag: 29
  • IP-tölur í dag: 28

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband