Miður vetur - hvernig stendur hitinn?

Á bóndadaginn - fyrsta dag þorra - er miður vetur samkvæmt gamla íslenska tímatalinu. Til gamans lítum við á hvernig hita hefur verið háttað í höfuðborginni fyrstu þrjá vetrarmánuðina. Þeir eru - eins og allir vita - gormánuður, ýlir og mörsugur. 

w-blogg200118aa

Hér höfum við reiknað út meðalhita þessara mánaða þriggja saman í Reykjavík aftur til 1872. Því miður vantar meðaltöl fáeinna daga inn í á árunum 1904 til 1907 og 1917 til 1920 - og sleppum við þeim því hér. 

Lóðrétti ásinn vísar á meðalhitann, en sá lárétti sýnir tíma. Súlurnar svo einstök ár og rauða línan 10-árakeðju. Ártölin eru sett við síðara ártal hvers vetrar, þannig að 2018 á við tímann frá fyrsta vetrardegi haustið 2017 og nær til fimmtudags fyrir bóndadag. Ártalið 1982 á á sama hátt við fyrri hluta vetrar 1981 til 1982 og svo framvegis. 

Meðalhiti þessa tíma nú reiknast 0,6 stig, heldur kaldara en algengast hefur verið undanfarin ár, en sama og 2010/11. Við þurfum að fara aftur til 2004/05 til að finna lægri tölu en nú, 0,2 stig.

Fyrri hluti vetrar var áberandi kaldur á árunum 1973/74 til 1983/84 en rétti mjög úr kútnum frá og með 1987/88. Langhlýjastur var fyrri hluti vetrar 1945/46, en kaldastur 1880/81. Athuga þó að hér vantar 1917/18 sem einnig var mjög kaldur. 

Af þessari mynd sést greinilega að þó nú sé nokkuð talað um að kalt hafi verið, hefur ekki verið um neina alvörukulda að ræða í lengra samhengi. Þeir koma kannski síðar. 

Leitni er ákveðin upp á við, 1,0 stig á öld að jafnaði.  


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veðurfræðingur og áhugamaður um veður.

Færsluflokkar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • w-blogg230424
  • Slide10
  • Slide8
  • Slide6
  • Slide5

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 16
  • Sl. sólarhring: 351
  • Sl. viku: 1590
  • Frá upphafi: 2350217

Annað

  • Innlit í dag: 14
  • Innlit sl. viku: 1463
  • Gestir í dag: 14
  • IP-tölur í dag: 14

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband