Ekki svo kalt - en samt

Þeir sem nenna fara nú á minniháttar spákortafyllerí með ritstjóra hungurdiska. „Drykkjarföng“ eru fáeinar afurðir harmonie-líkansins (þess afbrigðis sem kallað er iga - eftir Íslandi og Grænlandi og tölva dönsku veðurstofunnar í kjallaranum á Bústaðavegi 7 reiknar). Öll kortin gilda um hádegi á morgun, föstudaginn 19. janúar.

w-blogg180118a

Hér má sjá spá um hita á landinu og yfir sjónum umhverfis það og gildir eins og áður sagði um hádegi föstudag 19. janúar. Litir sýna hitann, þeir gulu og brúnu ofan frostmarks, en þeir bláu frost. Við -11 stiga frost er skipt yfir í fjólublátt og við -22 stig í grænt. 

Eini græni bletturinn er ekki fjarri Veiðivötnum. Hér er margt sem má smjatta á. Sjáið til dæmis bláa hringinn í kringum fjólubláa bungu Hofsjökuls - og aftur fjólubláan kraga þar utan við. Þarna streymir loft niður eftir jöklinum og hlýnar um 1°C á hverja 100 metra í fallinu. Ámóta „hlý“ rönd liggur meðfram vesturjaðri Vatnajökuls - þetta loft leitar á kalda loftið sem liggur yfir flatara hálendinu - en vindurinn sem því fylgir er ekki nægilega sterkur til að hreinsa það burt. Sama sjáum við í kringum Öræfajökul - þar nær hiti meira að segja upp í frostmark í röndinni. 

Annað atriði sem vert er að taka eftir er hvernig kuldinn frá landinu streymir út frá Suðurlandsundirlendinu, köld tunga nær talsvert út á Selvogsbanka - sama á sér stað út af Mýrum og Borgarfirði - þar er spáð frosti talsvert út á Faxaflóa - en svo tekst sjónum loks að blanda upp. Enn er svipuð staða undan Mýrdalssandi og Meðallandi. 

Fyrir norðan er hins vegar engan landvind að sjá - þrýstivindur stendur þar á land og sér um að halda landloftinu í skefjum. 

w-blogg180118b

Hér má sjá vindaspá fyrir Suðvesturland. Borgarfjarðarstrengurinn er greinilegur á Faxaflóa - hann er ekki alltaf sama eðlis - stundum er hann áberandi knúinn af þrýstivindi og nær þá norðan af heiðum, niður láglendið og á haf út. Var hann áður fyrr nefndur eftir veðurstöðinni í Síðumúla í Hvítársíðu - vindhraði þar var vísir á vind í flóanum. Hér má ef vel er að gáð sjá vind falla niður Síðufjallið (þar er örmjó blá ræma) - en í miðju Borgarfjarðarhéraði er hægur vindur - trúlega liggur þar kalt loft.

Það kalda loft sáum við reyndar á fyrsta kortinu - ef við reynum að rýna í það sýnist vera spáð -14 til -16 stiga frosti í námunda við Stafholtsey - en ekki nema -4 stigum uppi við hálsana - þar sem loftið er á niðurleið. 

Á Suðurlandi liggur strengur niður Landsveit - sennilega herðir landslag eitthvað á honum - auk áhrifa þyngdaraflsins. Á leið þessa strengs til sjávar hægir hann aðeins á sér þar sem hann breiðir úr sér en herðir á aftur yfir sjónum þar sem viðnám er minna. 

w-blogg180118c

Á Suðausturlandi fellur vindur niður af Vatnajökli. Það er ekki oft sem þyngdaraflið fær að njóta sín sem aflgjafi vinds - enda eins gott - ekki þarf nema andartaksyfirsjón flotkrafta til að ná upp feykilegum vindstyrk. - Hér skal sérstaklega bent á að vindörvarnar beinast út frá Öræfajökli - vindur er austanstæður í hlíðum hans að vestan, en á verulegan vestanþátt í austurhlíðinni. Það sem kemur niður austurhlíðina sameinast vindi ofan af Breiðamerkurjökli og nær nokkuð á haf út. Það sem fer niður vesturhlíðina virðist lenda ofan á köldu lofti yfir Skeiðarársandi - flýtur yfir.

w-blogg180118d

En loftið hreyfist ekki aðeins lárétt heldur líka lóðrétt. Þetta kort sýnir lóðréttan vindhraða í 925 hPa hæð yfir landinu - það er í um 600 metra hæð.Gulir og rauðir litir sýna niðurstreymi, en grænir og bláir uppstreymi. Lóðréttur vindur er að jafnaði miklu, miklu minni en sá lárétti - nema þar sem annað hvort fjallabylgjur, fallvindar eða skúraklakkar af einhverju tagi koma við sögu. 

Brúnir litir einkenna fallvinda þá sem leka niður af jöklunum. Víðast hvar er fallhraði þeirra 0,2 til 1,0 m/s. Þeir sem best sjá (og stækka kortið) munu finna töluna 2,6 m/s í vesturhlíð Öræfajökuls. Það er sterkur fallvindur - sérstaklega þegar lárétti vindurinn er ekki nema 10 til 12 m/s. Sums staðar fylgjast brúnir og grænir borðar að - þannig er því t.d. varið við Hafnarfjall og Skarðsheiði. Velta má vöngum yfir ástæðunni - trúlega er um fjallabylgju að ræða (sem ritstjórinn vill reyndar líka kalla flotbylgju) - en við látum það vera hér að fimbulfamba um hana.

w-blogg180118e

Næsta kort sýnir skynvarmaflæði við yfirborð. Þegar kalt loft snertir hlýrra yfirborð hitnar það og svo öfugt sé loftið hlýrra en yfirborðið. Hér sýna rauðir og brúnir litir jákvætt flæði - yfirborðið hitar loftið. Mælt er í wöttum á fermetra. Á Selvogsbanka er orkuflæðið undan ströndinni milli 100 og 200 W. Tvær (gamaldags) 100 kerta perur á hvern fermetra - það vill til að varmarýmd hafsins er mikil og af töluverðu að taka. Veturinn í heild tekur þó í. Á Faxaflóa má líka sjá áhrif kuldans sem streymir úr Borgarfirði. 

Stærstu jákvæðu gildin á kortinu eru þó úti af Vestfjörðum þar sem við sjáum hvað gerist þegar heimskautaloft að norðan kemst út á hlýjan sjó. Skynvarmaflæðið ræðst ekki aðeins af hitamun heldur líka vindhraða. 

Grænu litirnir sýna hvar landið er kaldara heldur en loftið - það á við um mestallt land - þegar líður á febrúar förum við að sjá blett og blett þar sem sólin hefur náð að hita land svo síðdegis að það nær aftur að hita loftið - það eru fyrstu merki komandi vors - „vermisteinninn kemur í jörðina“ - eins og sagt var hér áður fyrr. 

En er kalt eða ekki svo kalt? Jú, það er verið að spá meir en -10 stiga frosti víða um land. Vissulega er það kalt - en er það staðbundinn útgeislunarvandi eða er það loft sem um landið leikur kalt? 

 w-blogg180118f

Til að fræðast um það lítum við á tvö kort. Það fyrra er þykktarkort evrópureiknimiðstöðvarinnar (heildregnar línur) - en litirnir sýna hita í 850 hPa-fletinum. Þykktin yfir landinu er í kringum 5160 metrar. Meðaltal janúarmánaðar er ekki fjarri 5240 metrum. Við erum því um 80 metrum undir meðaltali. Neðri hluti veðrahvolfs er því um fjórum stigum kaldari en meðallag. Þessi sáraeinfalda reikniregla (20 metrar = 1 stig) á vel við þegar hiti í öllum neðri hluta veðrahvolfs er metinn - en síður ef við reynum að teygja okkur til jarðar. Þá er hentugra að margfalda með 0,4. Gerum við það fáum við út mínus þriggja stiga vik. 

Hitinn „ætti“ því að vera í kringum -3 stig við strendur landsins. Hitakortið sýndi okkur að það er hlýrra en það yfir sjónum (hann kyndir vel) - en víðast hvar kaldara inn til landsins. Harmonie-líkanið getur sagt okkur hver hitinn í sýndarheimi þess er í 100 metra hæð yfir yfirborði. Með því að reikna mismun þess hita og hitans í 2 metra hæð getum við séð öll hitahvörf sem eru grynnri en það - en síður þau sem þykkari eru.

Síðasta kort á þessu fylleríi sýnir þennan mun. 

w-blogg180118g

Guli liturinn sýnir svæði þar sem 2 metra hitinn er hærri en sá í 100 metra hæð - en á bláu svæðunum er kaldara niður við jörð. Þar er hitahvörf að finna. Yfir Vestfjörðum, Norðaustur- og Austurlandi virðist loft vera sæmilega blandað - en víða um landið sunnan- og vestanvert munar miklu á hita í hæðunum tveimur. 

„Bakvið fjöll“ un landið suðvestanvert er munurinn allt upp í -15 stig, t.d. í grennd við Þingvelli þar sem finna mátti töluna -20 stig á fyrra korti. Á Sandskeiði ofan Reykjavíkur og þar í grennd má sjá töluna -12 stig. Áberandi dökkbláir blettir eru líka í Borgarfirði, en austanfjalls er eitthvað betri blöndun - hitahvörfin gætu þar verið eitthvað „útsmurðari“ á þeim svæðum þar sem munurinn er mestur - enda er vindur heldur meiri. 

Allt saman mjög fróðleg kort - hönnuð af Bolla Pálmasyni sem við að sjálfsögðu þökkum. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veðurfræðingur og áhugamaður um veður.

Færsluflokkar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • Slide10
  • Slide8
  • Slide6
  • Slide5
  • Slide4

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.4.): 31
  • Sl. sólarhring: 154
  • Sl. viku: 1655
  • Frá upphafi: 2349615

Annað

  • Innlit í dag: 30
  • Innlit sl. viku: 1501
  • Gestir í dag: 30
  • IP-tölur í dag: 29

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband