Hlýtt og kalt tímabil

Ritstjóri hungurdiska fylgist oftast nær með hitafari á landinu frá degi til dags og ber saman við meðaltöl fyrri tíma. Venjulegustu samanburðartímabilin sem hann notar eru annars vegar gamla viðmiðunartímabilið 1961 til 1990 en hins vegar meðaltal síðustu tíu ára (hver sem þau annars eru á hverjum tíma). Eins og öll veðurnörd vita er eldra tímabilið talsvert kaldara en það nýja, það munar 1,15 stigum á ársmeðalhita þessara tveggja tímabila í Reykjavík. 

Í daglegum samanburði (eða þegar mánuðir eða hlutar þeirra eru bornir saman) er því langalgengast að nútíminn sé mun hlýrri miðað við eldra tímabilið heldur en það yngra. 

Annað er uppi á teningnum einmitt þessa dagana. Hiti fyrstu 7 daga desembermánaðar nú er 0,4 stigum ofan meðallags áranna 1961 til 1990, en 1,5 stigum yfir meðallagi síðustu tíu ára. Þetta þýðir að fyrsta vika desember hefur síðustu tíu ár verið 1,1 stigi kaldari en hún var á köldu árunum 1961 til 1990. 

Eðlilegt er í framhaldinu að spyrja hversu margir almanaksdagar séu þannig vaxnir að þeir hafi verið að jafnaði kaldari síðustu tíu árin en var á kalda skeiðinu. Auðvelt er að svara því. Í Reykjavík eru þeir 48. Einn í janúar, 7 í febrúar, 7 í mars, 4 í apríl, 8 í maí, - enginn í júní til september, 11 í október, 3 í nóvember og 7 í desember. 

Lengsta samfellda röð slíkra daga er frá 29. nóvember til 7. desember - 9 dagar. Við sjáum á þessu hlutfalli daga [48:317] hvað hlýindi síðustu tíu ára eru afgerandi. 

En - nú spyrja sumir væntanlega hvernig er með samanburð við hlýja tímabilið 1931 til 1960 - hvernig stendur það sig í ámóta keppni við síðustu tíu ár?

Jú, við fáum út hlutfallið [111:254] - ekki alveg eins hagstætt hlýindum síðustu tíu ára, en samt afgerandi. 

Því miður vantar dálítið af dægurmeðaltölum í Reykjavík fyrir 1920, en tuttugu ára tímabilið 1881 til 1900 er þó nokkurn veginn heilt. „Hlutfallið“ milli nútímans og þeirra köldu ára er [12:351] - tólf almanaksdagar voru að meðaltali hlýrri í Reykjavík en meðaltal sömu daga síðustu tíu ára, þar á meðal 18. til 21. október og 23. til 25. desember. 

Hvaða almanaksdagar koma við sögu er væntanlega algjörlega tilviljanakennt - en hlutfallstölurnar segja hins vegar nokkra sögu. - En á næsta ári verður eitt ár dottið út úr því sem nú eru síðustu tíu ár - og annað komið í staðinn. - Svo styttist í nýtt 30-ára samanburðartímabil, 1991 til 2020. Hvernig skyldu árin 2021 til 2030 koma út í samanburði við það?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Þetta hlýtur nú að vera einhver vitleysa hjá þér Trausti, miðað við kuldann undanfarið. Hitinn (kuldinn) er eflaust undir meðaltali en ekki yfir því.
Svo er auðvitað athyglisvert að fyrstu 7 dagar desembermánaðar í fyrra var meðalhitinn í borginni 7,3 stig (í +) en er varla mikið yfir frostmarki það sem af er mánuðinum nú (kannski +0,4 stig?). Þetta er um 7 stiga munur!
Svo bætist þessi nýliðna nótt við, sem er líklega sú kaldasta á höfuðborgarsvæðinu á árinu ...
Það stefnir þannig í mikinn frostavetur. Kannski verður talað um frostaveturinn mikla 2018, rétt eins og gert er enn með veturinn 1918.

Torfi Stefánsson (IP-tala skráð) 8.12.2017 kl. 08:52

2 Smámynd: Trausti Jónsson

Hiti fyrstu 7 daga desember er yfir meðallagi hér í Reykjavík, hvort sem miðað er við síðustu tíu ár eða árin 1961-1990. Um það fjallar pistillinn. Gærdagurinn (7.) var að vísu kaldur og líklega mun dagurinn í dag koma hita fyrstu átta dagana niður í meðallag 1961-1990 og kannski síðustu tíu ára líka.

Trausti Jónsson, 8.12.2017 kl. 13:47

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veðurfræðingur og áhugamaður um veður.

Færsluflokkar

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Nýjustu myndir

  • w-blogg200324b
  • w-blogg200324a
  • Slide10
  • Slide9
  • Slide8

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 58
  • Sl. sólarhring: 58
  • Sl. viku: 549
  • Frá upphafi: 2343311

Annað

  • Innlit í dag: 53
  • Innlit sl. viku: 499
  • Gestir í dag: 45
  • IP-tölur í dag: 40

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband