5.9.2017 | 00:20
Meira af hitametinu á Egilsstöðum
Við lítum nú aðeins á nýja septemberhitametið sem sett var á Egilsstöðum á föstudag (þann 1.). Eins og áður er komið fram sló það út eldra met sem sett var á Dalatanga þann 12. árið 1949.
Þann dag fór hiti mjög víða yfir 20 stig um landið norðaustan- og austanvert, en hámarksskotið á Dalatanga virðist ekki hafa staðið mjög lengi því hiti á athugunartímum var lengst af á bilinu 13 til 15 stig, en þó 19,0 stig kl.18. Ekki er þó sérstök ástæða til að efast svo mjög um réttmæti hámarksins því hiti var meiri en 20 stig á Seyðisfirði allan daginn, frá morgni til kvölds og var hæst lesinn 24,0 stig kl.14 (15 að okkar tíma). Enginn hámarksmælir var á staðnum þannig að við vitum ekki hvort hitinn þar fór hærra. Við flettingar í 20.aldarendurgreiningunni bandarísku kemur í ljós að þessi dagur 12.september 1949 á næsthæsta septemberþykkt safnsins, 5600 m - nokkuð sem gerir metið líka trúverðugt.
En að mælingunni á Egilsstöðum.
Blái ferillinn sýnir hæsta mínútuhita hvera 10-mínútna sólarhringsins - þar á meðal þann hæsta, 26,4 stig sem mældist skömmu fyrir kl.16. Hiti hafði farið niður í 2,9 stig (lægsta lágmark) kl.5 um morguninn þannig að sveiflan var mjög stór. Hitinn var ofan við 20 stig frá því um kl. 12:30 til klukkan 17:40. Efir kl. 19 var hann kominn niður í um 15 til 16 stig og hélst á því bili fram yfir miðnætti.
Rauði ferillinn á myndinni sýnir daggarmarkið. Við sjáum að það féll nokkuð um miðjan daginn sem bendir til þess að þurrara loft (og hlýrra) að ofan hafi blandast niður í það sem neðar var. Sólarylur hefur sjálfsagt hjálpað til að ná þeirri blöndun. Rakastig (grænn ferill - kvarði til hægri) fór þá niður í 25 prósent - svipað og þegar kalt og þurrt marsloft að utan er hitað upp innanhúss.
Blái ferillinn á síðari myndinni er sá sami og á fyrri mynd, en rauður ferill sýnir nú hita uppi á Gagnheiði, í 950 metra hæð yfir sjávarmáli. Um morguninn var þar hlýrra en niðri á Egilsstöðum og dægursveiflan miklu minni. Hámarkshitinn fór þó í 15,7 stig, rúmri hálfri klukkustund síðar en hitinn varð hæstur á Egilsstöðum.
Græni ferillinn sýnir mismun hita stöðvanna. Athugið að kvarðinn sem markar hann er lengst til hægri á myndinni og er hliðraður miðað við þann til vinstri sem sýnir hita stöðvanna. Hitamunurinn var mestur rétt um 12 stig - sem er ívið meira en búast mætti við af hæðarmun þeirra eingöngu. Minna má á að hiti á fjallstindum er gjarnan eins lágur og hann getur orðið miðað við umhverfi í sömu hæð - alla vega ef vind hreyfir. Hiti í 950 metra hæð beint yfir Egilsstöðum gæti hafa verið tæplega 17 stig þegar best lét.
Þó meir en 15 stiga hiti sé sjaldséður á Gagnheiði í september var hér ekki um met að ræða þar því 17,6 stig mældust 13. september árið 2009. Þá var hámarkið á Egilsstöðum ekki nema 19,6 stig - hefði kannski átt að vera 28 (við bestu blöndunaraðstæður eins og nú)? En það varð ekki. Hins vegar fór hiti í meir en 20 stig á allmörgum stöðvum þennan dag.
Flokkur: Vísindi og fræði | Breytt s.d. kl. 14:45 | Facebook
Um bloggið
Hungurdiskar
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (13.11.): 196
- Sl. sólarhring: 439
- Sl. viku: 2350
- Frá upphafi: 2409994
Annað
- Innlit í dag: 164
- Innlit sl. viku: 2100
- Gestir í dag: 161
- IP-tölur í dag: 157
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
Athugasemdir
Sæll Trausti. Eru veðurfræðingar ekki að bera saman epli og appelsínur með samanburði á gömlu kvikasilfursmælum og nýjum sjálfvirkum rafrænum mælum? Það kemur greinilega fram á meðfylgjandi myndriti að 26,4°C hitaskotið stendur í skamman tíma og spurning hvort kvikasilfursmælir hefði sýnt sama hita.
Að auki má benda á vísindagreinar/fyrirlestra sem sýna að nýir sjálfvirkir rafrænir hitamælar mæla í flestum tilfellum allt að 3°C hærri hita en gömlu kvikasilfursmælarnir.
Snúast hitamælingar Veðurstofunnar ekki lengur um hlutlaus vísindi?
Hilmar Hafsteinsson (IP-tala skráð) 6.9.2017 kl. 21:52
Rétt er að það er mikil skammsýni að leggja hefðbundnar mælingar með kvikasilfursmælum alfarið af - sérstaklega á stöðum þar sem enn eru ekki vandræði með að fá athugunarmenn. Þannig var afleitt að það skuli hafa verið gert í Reykjavík. Breyting á mæliaðferðum skapar alltaf einhverja ósamfellu í athugunarröðum. Fljótlega (vonandi í september) mun Veðurstofan gefa út ritgerð þar sem sjálfvirkar og hefðbundnar mælingar eru bornar saman á stöðum þar sem báðir hættir hafa verið uppi um hríð. Munur á meðalhita ársins er reyndar sáralítill, en sums staðar kemur fram reglubundinn meðalhitamunur í einstökum almanaksmánuðum - ástæður geta verið margþættar og eru þær helstu raktar í skýrslunni. Þær raðir sem mest truflast af breytingunni varða hámarkshita sólarhringsins (og ystu útgildi hans). Hér á landi er sá hámarkshiti ekkert notaður við reikninga á meðalhita (gagnstætt því sem er sums staðar annars staðar í heiminum). Athuganir framleiðanda sjálfvirku hitamælistöðvanna (og annarra) benda til þess að í glampandi sólskini og algjöru logni (og þá er átt við algjört logn) geti verið þónokkur munur á hámarki nýju stöðvanna og þeirra gömlu, allt að 2 til 3 stig þegar mest er. Hér á landi er hins vegar ekki algengt að saman fari algjört logn og glampandi sólskin þannig að þessi mikli munur mun vera sjaldgæfur hér á landi - en ber auðvitað við. Sjálvirku mælarnir hafa hins vegar verið bornir beint saman við kvikailfursmæla og hugbúnaði þeirra fylgir reikningsleg tregða sem sett er á mælinguna þannig að þeir hermi kvikasilfursmæla sem best. Það er þannig mismunandi umbúnaður sem skapar þann mun sem er. Gömlu skýlin eru tregari heldur en hólkarnir utan um nýju mælana. Hiti nýju mælanna hækkar ívið hraðar að morgni sólardaga heldur en sams konar skynjara sem komið er fyrir í skýli - en fellur líka ívið hraðar á kvöldin. Þar sem sjálfvirkir skynjarar hafa verið í skýlunum sjálfum ásamat kvikasilfursmælum er munur nánast enginn.
En hámarkshitamælingar hafa alltaf verið vandkvæðum bundnar og lítt hefur verið á raðir slíkra mælinga að treysta - á tímabilinu 1943 til 1964 var veggskýlum hægt og bítandi skipt út fyrir fríttstandandi skýli. Við þá aðgerð varð víða brot í mælingum - sérstaklega hámarksmælingum. Mörg vandamál fylgdu veggskýlunum, sérstaklega var erfitt að staðla umhverfi þeirra. Samanburðarmælingar sem gerðar voru við skiptin á nokkrum stöðvum sýndu þessi vandamál glögglega. Þau tengdust einkum hámarksmælingunum sem og hitamælingum sem gerðar voru kringum hádegið og síðdegis. Þess vegna var ákveðið að breyta aðferðum við reikning á meðalhita þannig að 1956 hætt var að nota mælingar í kringum hádegið nema þar sem athugað var á 3 stunda fresti allan sólarhringinn auk þess sem sett voru upp stöðluð skýli á öllum stöðvum. Bætti þetta mjög meðalhitareikninga - en samræmingar var auðvitað þörf aftur í tímann og hefur verið unnið að henni síðan.
Sem stendur er ekki ástæða til að hafa mjög miklar áhyggjur af mælingum sjálfvirku stöðvanna - við sem unnið höfum með gögn beggja gerða stöðva vitum nokkurn veginn um kosti þeirra og galla. Breytingar eru því miður oft óhjákvæmilegar - algjörlega óhjákvæmilegar - en óheppilegt er þegar breytingar eru gerðar í fljótræði eða af ástæðulausu.
Nýtt septemberhitamet á Egilsstöðum kann að vera eitthvað álitamál - en sama á líka við um eldra met. Svo vill þó til að í september 1949 var rétt nýbúið að skipta um skýli á Dalatanga
Trausti Jónsson, 7.9.2017 kl. 00:36
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.