Dögg

Lítum á dögg og daggarmyndun í tilefni þess að sumri tekur að halla. Rifjum fyrst upp hvað daggarmark er. Einnig er minnst á hrím. 

Daggarmark er sá hiti sem loft hefur þegar það hefur verið kælt niður til þéttingar (við óbreyttan þrýsting). Eina leiðin til að breyta daggarmarki lofts (án þrýstibreytinga) er með rakaíbætingu eða rakabrottnámi. Við getum bæði flutt loft til, kælt það eða hitað án þess að daggarmarkið breytist. Ef breyting verður á daggarmarki þýðir það að annað hvort hefur vatnsgufa bæst í loftið (daggarmarkið hækkar), vatnsgufa þést úr því (daggarmarkið lækkar) eða þá að nýtt loft annars staðar að er komið til sögunnar. 

Svo kemur að dögginni:

Ef loft kólnar niður að daggarmarki þéttist vatnsgufan næst jörðu sem dögg. Mismunandi yfirborð kólnar mismikið, það fer eftir lögun (áferð) þess og því hversu mikilli varmarýmd það hefur aðgang að. Jarðvegsyfirborð kólnar að öðru jöfnu minna en efsti hluti gróðurs vegna þess að varmaleiðni frá jarðvegi rétt undir yfirborðinu er nægileg til að hita verði haldið lengur uppi, en gróður er aftur á móti að mestu einangraður frá jörð af lofti sem umhverfis hann er. Á móti kemur að gróður verndar síðan jörðina og neðstu gróðurlög með því að taka á sig megnið af (geislunar-) kælingunni. Hiti við jörð (undir gróðrinum) er þannig stundum nokkrum stigum hærri en við yfirborð gróðursins sem þekur það. Dögg myndast því fremur á gróðri en á nakinni jörð og fremur efst á plöntunum en neðst á þeim.

Yfirborð bíla kólnar sérstaklega mikið vegna þess að „blikkið“ er þunnt og heildarvarmarýmd í því lítil. Dögg (og ís) getur því myndast á bílum áður en hún myndast á jörð eða gróðri. 

Dögg á gróðri myndast bæði úr vatnsgufu sem er í loftinu ofan við og raka úr yfirborðinu. Vegna þess að hiti getur haldist ofan daggarmarks niðri í gróðrinum heldur vatn áfram að gufa þar upp þó þétting eigi sér stað við yfirborðið. En vatnsgufan berst smám saman upp á við og hittir fyrir kaldasta lagið við efri mörk gróðursins. Sé logn eða því sem næst í 2 m hæð berst lítið af raka að ofan og döggin er að mestu mynduð úr vatni sem er að gufa upp úr jörðinni eða neðstu hlutum gróðursins. Raki að ofan er hins vegar ráðandi sé vindur á bilinu 1-3 m/s. Sé vindur enn meiri er blöndun oftast orðin það góð að þurrara og hlýrra loft að ofan verður til þess að hiti helst ofan daggarmarks. Í logni er loftið kaldast næst jörðu og rakastigið því hæst þar.

Daggarmyndunarskilyrði eru því best ef heiðskírt er (hámarksútgeislun) og ef loftið er rakt þegar við sólarlag. Daggarmarkið myndar ákveðna hindrun gegn frekari kólnun því þéttingin skilar umtalsverðum varma til umhverfisins og vinnur þannig gegn því að loftið kólni enn frekar.

Frosthættu á sumrin og snemmhausts er hægt að meta að nokkru leyti af daggarmarkinu, sé það vel ofan frostmarks er ólíklegt að næturfrost verði (ef rólegt aðstreymi af þurru lofti er ekki í gangi). Hægt er að hækka daggarmark lofts næst jörðu með vökvun og draga þannig úr líkum á næturfrosti og stundum er reykur líka notaður í sama skyni. Hann getur dregið í sig varmageisla og þar með fært virkasta útgeislunarflötinn frá jörðu að efra borði reykjarins. Þar með vinnst smátími fyrir plönturnar niðri í reyknum. Báðar aðferðir eru nothæfar til að forðast gróðurskemmdir þegar ljóst er að frosthætta er aðeins lítinn hluta næturinnar.

Vatn á gróðri að morgunlagi er ekki endilega dögg eða af völdum rigningar. Gróðurinn getur hafa safnað á sig örsmáum dropum þegar vindur leikur um hann í þoku. Vatnið getur líka átt uppruna sinn inni í plöntunni vegna þess að á nóttunni eru ræturnar hlýrri en blöðin. Þetta vatn þéttist þegar plantan andar (rétt eins og gufa birtist við vit okkar í kulda). Þessir „öndunardropar” eru venjulega fáir en stórir, venjulega talsvert stærri en daggardroparnir (meir en 2 mm, dæmigerður daggardropi er innan við 1 mm í þvermál).

Í frosti frjósa daggardropar skömmu eftir að þeir myndast, síðan þéttist vatnsgufan í ís utan á þeim ískristöllum sem fyrir eru. Ískristallar þessir eru oftast mjög óreglulegir, með holrúmum og loftbólum og eru því hvítir. Stundum gerist það að eftir að dögg hefur fallið í hita ofan frostmarks að meir kólnar og daggardroparnir frjósa, tæknilega er munur á slíku hrími og því venjulega. Einnig er að morgni dags hægt er að rugla saman dögg annars vegar og bráðnu hrími hins vegar.

Dögg og hrím myndast langoftast vegna útgeislunarkólnunar. Fyrir kemur þó að þau myndast vegna þess að tiltölulega hlýtt loft streymir yfir kalt land. Þegar saman fara útgeislun og aðstreymi af röku, hlýrra lofti getur daggarmyndun orðið umtalsverð. Á strandsvæðum fáeinna eyðimarka er dögg sem mynduð er á þennan hátt umtalsverður hluti ársúrkomunnar og gerir gæfumuninn fyrir lífkerfi þessara svæða (t.d. strönd Máritaníu og Namíbíu).

Ís á jörðu getur að sjálfsögðu einnig myndast við það að vatn eða krapi frýs eða vegna samþjöppunar snævar vegna umferðar eða traðks. Einnig myndast ís á jörð í frostrigningu og sem slyddu- eða skýjaísing.

--- 

Textinn er fenginn úr hinni dularfullu veðurbók trj sem reynst hefur útgefendum landsins ofviða að eiga við. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Margir mundu glaðir vilja eiga hana í bókahillum sínum. Dregið hefur úr bóklestri og söfnun bóka,en sú ástríða mun vakna á ný. 

Helga Kristjánsdóttir, 24.8.2017 kl. 00:39

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veðurfræðingur og áhugamaður um veður.

Færsluflokkar

Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Nýjustu myndir

  • w-blogg121124a
  • w-blogg101124c
  • w-blogg101124b
  • w-blogg101124a
  • w-blogg081124d

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (14.11.): 267
  • Sl. sólarhring: 325
  • Sl. viku: 2529
  • Frá upphafi: 2410518

Annað

  • Innlit í dag: 210
  • Innlit sl. viku: 2241
  • Gestir í dag: 193
  • IP-tölur í dag: 184

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband