Vetur eða vor framundan?

Við skulum til gamans líta á klasaspá evrópureiknimiðstöðvarinnar fyrir næstu viku (mánudaginn 17. apríl til sunnudags 23. apríl). Í klasanum er 51 spáruna og kortið sýnir meðaltal þeirra.

w-blogg140417a

Jafnhæðarlínur 500 hPa-flagarins eru heildregnar. Jafnþykktarlínur eru strikaðar (sjást illa nema myndin sé stækkuð) og þykktarvik eru sýnd í lit. Þykktin mælir hita í neðri hluta veðrahvolfs, því meiri sem hún er því hlýrra er loftið. Vik hennar frá meðallagi sýna því hitavik. Það er mikil sunnanátt suðvestur í hafi og hita þar spáð meir en 5 stigum ofan meðallags í næstu viku. 

Mjög kalt er hins vegar bæði í austri og vestri. Ísland er svona mitt á milli - kannski hlýtt suma dagana, en kalt aðra. 

Þetta er almennt fremur óþægileg (sumir myndu segja spennandi) staða. Óþægindin felast í því að hún hótar leiðinlegum vorhretum. Spenningurinn felst í því hvort þau raungerast - það er ekki alveg víst. 

Nýjasta tíu daga spá reiknimiðstöðvarinnar sýnist vera í hretagír - en sú bandaríska síður (en er aftur á móti með leiðinlegri sunnan- og suðvestanáttir). En þetta breytist frá einu rennsli til annars (eins og venjulega). 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Langtímaspáin er ekki góð en hún nær nú fram yfir næstu helgi (tíu daga spáin). Frostnætur flesta daga og kalt yfir hádaginn.

Þetta minnir nú frekar á vetur en vor og spurning hvort að apríl sé einfaldlega ekki vetrarmánuður. Hann er sá mánuður sem minnst hefur hlýnað að meðaltali síðan hlýindin hófust um 2000. Og sá eini (?) sem enn er kaldari en sami mánuður á hlýskeiðinu 1931-61. 
Tala má um hlýjan apríl er meðalhitinn fer yfir 5 stig í mánuðinum en kaldan ef hann er undir 3 stigum. Miðað við langttímaspána stefnir allt í kaldan apríl, þ.e. undir þremur stigum.

Það er nokkuð merkilegt að síðustu ár hafa skipst á kaldir og hlýir aprílmánuðir en varla nokkrir þar á milli. Kaldir virðast raðast á oddatölu: 2013 (1,9 stig), 2015 (2,4 stig) og nú 2017.

Reyndar gætu kuldarnir í apríl síðan 2009 bent til þess að hlýskeiðinu sé að ljúka, a.m.k. að það sé að draga úr mestu hlýnuninni. 

Torfi Stefánsson (IP-tala skráð) 14.4.2017 kl. 18:09

2 identicon

Við getum þakkað fyrir að kólnaði á dögunum enda stefndi gróður og annað í tóma vitleysu eins og heyrði einn bónda segja. Þó apríl hafi kannski ekki hlýnað mikið, eins og þú segir Torfi, þá finnst mér eins og margir aprílmánuðir undanfarinna ára hafi verið veðragóðir amk á mínum slóðum á Norðurlandi. Leiðinleg hret hafa frekar komið fyrstu dagana í maí eða um miðjan maí (t.d. kuldaógeðið 2006). Þess ber reyndar að geta að auðvitað verður maður mun meira var við hretin í maí frekar en hretin í apríl.

Alveg sama hvernig veðrið er í apríl þá finnst mér hann alltaf vera vormánuður, þó ekki sé annað en birtan. 

Hjalti Þórðarson (IP-tala skráð) 15.4.2017 kl. 08:36

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veðurfræðingur og áhugamaður um veður.

Færsluflokkar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • w-blogg230424
  • Slide10
  • Slide8
  • Slide6
  • Slide5

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.4.): 21
  • Sl. sólarhring: 371
  • Sl. viku: 1846
  • Frá upphafi: 2350582

Annað

  • Innlit í dag: 21
  • Innlit sl. viku: 1649
  • Gestir í dag: 21
  • IP-tölur í dag: 21

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband