25.3.2017 | 02:04
Mikil hlýindi (austurundan)
Hingað til hefur hiti í mars verið ekki svo fjarri meðallagi lengst af. Nú virðast heldur meiri hlýindi framundan. - Sýnd veiði en ekki gefin auðvitað því spár eru bara spár.
Kortið ætti að vera kunnuglegt fastagestum hungurdiska. Það gildir síðdegis á sunnudag (26. mars) og sýnir hæð 500 hPa-flatarins á norðurhveli jarðar (heildregnar línur) og þykktina (litir). Þykktin sýnir hita í neðri hluta veðrahvolfs. Gulu og brúnu litina teljum við helst til sumarhita og nær hann á sunnudaginn langt norður fyrir venjulega stöðu fyrir austan land. Jafnvel hægt að tala um hitabylgju yfir Noregi og Danmörku.
Fjöll í Noregi gætu dregið eitthvað af hlýindunum niður til byggða, en líklegra er að þau svífi yfir hinni flötu Danmörku. Danska veðurstofan er þó að tala um 10 til 13 stiga hita þar um slóðir.
Þó mestu hlýindin séu hér fyrir austan okkur má vera að tveggjastafatölur verði á mælum nyrðra og eystra - en trauðlega efni í hitamet.
Svo er gert ráð fyrir að hlýindi ríki áfram í háloftum á þessum slóðum - og jafnvel hér á landi líka.
Hér má sjá tíudagaspá evrópureiknimiðstöðvarinnar. Jafnhæðarlínur eru heildregnar. Af þeim má ráða að áttin verður suðvestlæg - með hæðarsveigju (hlýindalegt). Jafnþykktarlínur eru hér strikaðar (sjást betur sé myndin stækkuð). Þær eru nokkuð þéttar (eins og jafnhæðarlínurnar) - það þýðir að kalt loft liggur líklega inn undir það hlýja - við slíkar aðstæður ofmetur þykktin hitann við jörð.
Litirnir sýna þykktarvikin - miðað við tímabilið 1981 til 2010. Bleikrauði liturinn sýnir svæði þar sem þykktarvikið er meira en 100 metrar. Þar er hiti meira en 5 stigum ofan meðallags í neðri hluta veðrahvolfs. - Kannski náum við 2 til 3 stiga viki niðri í mannheimum? - Það er býsna mikið í tíu daga.
En það verður stutt í kalda loftið norðurundan og sjálfsagt mun það sleikja landið suma dagana.
Flokkur: Vísindi og fræði | Facebook
Um bloggið
Hungurdiskar
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (17.11.): 205
- Sl. sólarhring: 283
- Sl. viku: 2719
- Frá upphafi: 2411639
Annað
- Innlit í dag: 194
- Innlit sl. viku: 2347
- Gestir í dag: 185
- IP-tölur í dag: 184
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
Athugasemdir
Norska veðurstofan (YR) spáir nú aðeins hita þessa helgina og svo kólnandi strax á mánudag - og frekar köldu veðri út vikuna. Hitinn fari mest í 7 stig í borginni en verði yfirleitt á bilinu 2-4 stig. Það telst varla til mikilla hlýinda.
Hins vegar er verið að spá hægviðri flesta dagana sem ætti að vera fagnaðarefni eftir stormana undanfarið.
Torfi Stefánsson (IP-tala skráð) 25.3.2017 kl. 09:09
Meðalhiti í mars í Reykjavík er um 1 stig og sé sólarhringsmeðalhiti 4 stig er hann 3 stig yfir meðallagi - það telst hlýtt - . En eins og segir í pislinum eru hlýindin mest austurundan - og kalda loftið aldrei langt undan.
Trausti Jónsson, 25.3.2017 kl. 11:34
Hjá Veðurstofunni er einnig spáð svölu veðri í vikunni - um allt land! Hlýindin austurundan ná þannig ekki til landsins.
Torfi Stefánsson (IP-tala skráð) 26.3.2017 kl. 06:32
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.