12.2.2017 | 23:11
Nýtt febrúarlandshitamet?
Í dag (sunnudaginn 12. febrúar) var óvenjuhlýtt loft yfir landinu miðað við árstíma. Á hádegi var frostmark í 3500 metra hæð yfir Egilsstöðum - samkvæmt mælingu háloftakanna og í 3330 metra hæð yfir Keflavíkurflugvelli. - Þetta eru ábyggilega febrúarmet.
Hlýindanna varð víða vart á veðurstöðvum og voru febrúarstöðvamet sett allvíða - sjá helstu tíðindi aftast í pistlinum. Einkennilegt er þó (og þó ekki svo einkennilegt) að hæstu tölurnar tvær komu af fjöllum. Önnur úr stöð á Brúðardal (á raflínuleið milli Fljótsdals og Reyðarfjarðar). Stöðin er í 300 metra hæð. Þar mældist hiti hæstur 17,8 stig. - Náði ekki Íslandsmeti, en samt trúleg tala.
En hámarksmælir á Eyjabökkum - í 650 metra hæð yfir sjó fór í 19,1 stig - en aðeins í 2 mínútur - laust fyrir kl. 14.
Á að trúa þessu?
Myndin sýnir hámarkshitamælingar á 10-mínútna fresti á Eyjabökkum í dag (súlur). Mesta vindhviða á 10-mínútna fresti er einnig sýnd (rauð strikalína).
Þetta gæti allt saman verið rétt - loft í háloftum var nægilega hlýtt - bara að ná því niður í skyndi.
En við getum samt ekki gefið þessu fullkomið heilbrigðisvottorð hér og nú - spurningarmerkið í titli pistilsins verður því að standa um sinn.
Febrúarhitamet voru sett á 17 stöðvum sem hafa athugað frá því fyrir aldamót - þar af einni mannaðri (Skjaldþingsstöðum). Áberandi var hversu mörg met á heiða- og fjallastöðvum eystra féllu. Hiti fór m.a. í 10,1 stig á Gagnheiði (949 m hæð) - nærri því eins hátt og hæst hefur nokkru sinni mælst í febrúar í Reykjavík (10,2 stig). Gagnheiðarstöðin er efst á heiðinni - mjög fjandsamlegur staður fyrir metavænt niðurstreymi - andstætt Eyjabökkum.
Þeir sem nenna geta rifjað upp sex ára gamlan pistil hungurdiska um háan hámarkshita í febrúarmánuði - töflurnar auðvitað orðnar nokkuð úreltar - við endurnýjum þær síðar.
Flokkur: Vísindi og fræði | Breytt 13.2.2017 kl. 01:31 | Facebook
Um bloggið
Hungurdiskar
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.12.): 20
- Sl. sólarhring: 214
- Sl. viku: 985
- Frá upphafi: 2420869
Annað
- Innlit í dag: 15
- Innlit sl. viku: 864
- Gestir í dag: 15
- IP-tölur í dag: 15
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Desember 2024
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
Athugasemdir
Rakastig á Eyjabökkum komst niður í 20% í gær og niður í 22% á Brúaröræfum. Hver eru metin í því efni? Var að blogga um þetta.
Ómar Ragnarsson, 13.2.2017 kl. 00:53
Rakastig fór enn neðar á Eyjabökkum í dag - niður fyrir 20 prósent - sem líklega er rétt. En rakamælingar eru mjög ónákvæmar þegar orðið er svona þurrt - og mælar á flestum stöðvum illa kvarðaðir. Eldri vetrartölur undir 20 prósentum - og reyndar niður í 10 prósent eru þó til á þessum tveimur stöðvum sem þú nefnir - gætu verið réttar - eða ekki.
Trausti Jónsson, 13.2.2017 kl. 01:02
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.