Já, mikil úrkoma

Gríðarleg úrkoma var í dag (föstudag 27. maí) víða á Snæfellsnesi og sunnantil á Vestfjörðum. Þegar síðast fréttist var sólarhringsúrkoman á Grundarfirði komin í 133 mm. Það er meira en nokkru sinni hefur mælst í maí á mannaðri stöð, en sjálfvirki Grundarfjörður á sjálfur eina hærri maítölu, 147 mm sem féllu þar á einum sólarhring 26. maí 2012. Þá voru veðurskilyrði mjög lík því sem var í dag - öflug tunga af röku og mjög suðrænu lofti var kreist af uppstreymi og vindi yfir Snæfellsnesi - og úrkoman fauk svo yfir í mælinn á Grundarfirði. - Einhvern tíma í fornöld kallaði ritstjóri hungurdiska þetta „fokhrif“ - heitir „spillover effect“ á ensku.

Svo sýnist sem sjálfvirka stöðin á Tálknafirði hafi slegið maímet sitt rækilega - þar mældust í dag 60 mm - fyrra maímet var 39 mm, sett 2009. - Rétt er að geta þess að ekki hefur verið farið ítarlega yfir metatöflur sjálfvirku stöðvanna og í þeim geta leynst alvarlegar villur.

Evrópureiknimiðstöðin og harmonie-líkanið virðast hafa hitt vel á þennan atburð - harmoniespáin gerði ráð fyrir meir en 100 mm á Snæfellsnesi - og reiknimiðstöðin kveikti á útvísum sínum - eins og fjallað var um í pistli á hungurdiskabloggi fyrri dags.

Raka og hlýja tungan sést vel á kortinu hér að neðan. Það sýnir spá evrópureiknimiðstöðvarinnar um sjávarmálsþrýsting og jafngildismættishita í 850 hPa kl. 18 í dag, föstudag (27. maí).

w-blogg280516a

Jafngildismættishiti (við leitum enn að þjálara orði) sýnir hita lofts ef hægt væri að draga það úr 850 hPa (í dag í 1400 metra hæð) niður í 1000 hPa (í dag í 80 metra hæð) og þar að auki þétta alla vatnsgufuna í því og nota dulvarmann til að hita loftið. 

Rakt og hlýtt loft sker sig mjög vel úr á kortum sem sýna jafngildismættishitann - hér sjáum við það sem mjóa gulbrúna tungu sunnan úr hafi berast með vindi í átt til landsins. Það vekur athygli hversu mjó tungan er - en það eru slíkar tungur oft.  

Mikið úrkomumætti býr í tungunni - en til þess að það holdgerist þarf að lyfta loftinu og þar með kæla það. Það gerist þar sem vindur þvingar hana yfir fjöll - eins og á Snæfellsnesi. 

Venja er að greina frá mættishita í Kelvingráðum á kortum - þá er minni hætta á að rugla honum saman við þann „venjulega“. Í dag var mættishiti í 850 hPa um 17 stig (290 K) á þeim stað sem örin bendir á á kortinu hér að ofan, jafngildismættishitinn er hins vegar um 40 stig (við drögum 273 frá tölunni) - dulvarminn er drjúgur. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veðurfræðingur og áhugamaður um veður.

Færsluflokkar

Maí 2025
S M Þ M F F L
        1 2 3
4 5 6 7 8 9 10
11 12 13 14 15 16 17
18 19 20 21 22 23 24
25 26 27 28 29 30 31

Nýjustu myndir

  • w-blogg260525a
  • w-blogg250525a
  • w-blogg250525a
  • w-blogg180525a
  • w-blogg120525a

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (30.5.): 107
  • Sl. sólarhring: 143
  • Sl. viku: 1521
  • Frá upphafi: 2471969

Annað

  • Innlit í dag: 91
  • Innlit sl. viku: 1412
  • Gestir í dag: 84
  • IP-tölur í dag: 84

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband