Hvítasunnuhiti - fortíđar

Ţar sem hvítasunnan er ein af hrćranlegum hátíđum ársins er ekki auđvelt ađ bera saman hita á hátíđinni frá ári til árs. Ţađ er líklegra ađ hvítasunnudagur í júní sé hlýrri en í maí. - Ţađ hlýnar býsna hratt á ţeim rétt rúma mánuđi sem hvítasunnan getur falliđ á. Ţau ár sem hér verđur litiđ á bar hvítasunnuna fyrst upp á 11. maí, 1845 og 1913, en síđast 13. júní, 1886 og 1943. - Hér ađ neđan er hrođvirknislega litiđ yfir hitafar horfinna hvítasunnudaga - óreiđuhrúgur. 

Fyrstu tvö gröfin sem hér eru sýnd eru ţví sett upp ţannig ađ dagur ársins er sýndur á lárétta ásnum - en hiti á ţeim lóđrétta. Ártöl eru síđan sett viđ hvern hvítasunnudag fyrir sig. - Auđvitađ verđur mikil hrúga úr - en auđvelt er ţó ađ greina hlýjustu og köldustu dagana. 

w-blogg140516a

Fyrri myndin á viđ Reykjavík og sýnir hámarkshita sólarhringsins - hún skýrist sé hún stćkkuđ - hún er líka í viđhengi. Rauđa strikalínan sýnir mánađamót maí og júní - tölurnar ná allt aftur til 1831 - en flestöll árin 1854 til 1871 vantar - og auk ţess 1917. Hugsanlegum „tvöföldum hámörkum“ hefur ekki veriđ útrýmt. 

Samkvćmt ţessu voru hlýjustu hvítasunnudagarnir 6. júní 1954 og 26. maí 1901. Bláa strikalínan sýnir eins konar vćntihámark - sem háđ er dagsetningunni, ţađ er um 12 stig síđustu dagana, en rétt undir 10 stigum sé hvítasunnan um miđjan maí - eins og nú. 

Sjá má slćđing af dögum ţar sem hámarkshitinn hefur ekki náđ 8 stigum - ţau ósköp gerđust síđast 1995, hámarkshitinn var ađeins 6,3 stig - ţó hátíđin vćri frekar seint á ferđinni ţađ áriđ, 4. júní. Hiti náđi ekki 4 stigum á hvítasunnu 1834 (18. maí) og 1838 (3. júní) - en ritstjórinn hefur ekki athugađ ţćr tölur nánar - međ tilliti til mögulegra villa - margt er ógert. 

Viđ lítum líka á međalhita hvítasunnudags í Stykkishólmi - ekki hámarkiđ - á sama hátt.

w-blogg140516b

Hér er fariđ aftur til 1846. Međalhiti á hvítasunnu 2004 (30. maí) var hćstur - síđan kalda voriđ 1979 (3. júní - ekki vćnlegt ađ giska á almenna kuldatíđ eftir ţessari einu töku). Köldust var hvítasunnan í Stykkishólmi áriđ 1858 - međalhiti undir frostmarki 23. maí. Viđ ţurfum ekki ađ fara nema aftur til 2007 (27. maí) til ađ finna međalhitatölu undir 5 stigum og til 1993 (30. maí) til ađ finna tölu undir 4 stigum - og til 1952 (1. júní) til ađ finna lćgri međalhita en 3 stig. - Íslensk vorhret eiga sín nöfn - „hvítasunnukast“ er eitt ţeirra. Alhvítt var á Stórhöfđa í Vestmannaeyjum ađ morgni annars dags hvítasunnu 1952 - 2. júní. Dagana áđur urđu fjárskađar og samgöngutruflanir víđa um land. 

Ađ lokum skulum viđ skella stöđvunum saman á blađ - ţá vantar auđvitađ árin fyrir 1846 og flest ár tímabilsins 1854 til 1871.

w-blogg140516c

Klessuverk - já, en viđ sjáum ţó ađ allgott samkomulag er á milli stöđvanna - ţótt í öđru tilvikinu sé um hámarkshita ađ rćđa (sem vill helst logn og sólskin til ađ verđa hár - kannski kalt ađ nóttu) en í hinu međalhita sólarhringsins - sem er helst lágur í skýjuđu veđri, úrkomu og trekki. - Munum líka ađ Reykjavík er oft í skjóli fyrir norđaustanţrćsingnum sem oft plagar vestanvert landiđ ađ öđru leyti ađ vorlagi.

Vonandi verđum viđ sem lengst laus viđ hvítasunnudaga eins og ţá sem liggja neđst til vinstri á myndinni, hámarkshita í Reykjavík um eđa undir 6 stigum - og međalhita í Stykkishólmi undir 2. 

Ef viđ viljum getum viđ greint tvćr ţyrpingar á myndinni - ađfallslínan (sú rauđa) liggur milli ţeirra á 8 til 13 stigabilinu í Reykjavík. Neđri ţyrpingin (tiltölulega kalt í Stykkishólmi - en skárra í Reykjavík) sýnir e.t.v. daga ţegar sólin hefur náđ hámarkshita Reykjavíkur upp yfir hádaginn í annars kaldari tíđ. - Viđ gerum ekki neina tilraun hér til ađ stađfesta eđa afsanna ţá kenningu. 


Skrár tengdar ţessari bloggfćrslu:

« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Um bloggiđ

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veđurfrćđingur og áhugamađur um veđur.

Fćrsluflokkar

Apríl 2024
S M Ţ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • w-blogg160424b
  • w-blogg160424a
  • w-blogg120424c
  • w-blogg120424b
  • w-blogg120424a

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 18
  • Sl. sólarhring: 145
  • Sl. viku: 1767
  • Frá upphafi: 2348645

Annađ

  • Innlit í dag: 18
  • Innlit sl. viku: 1548
  • Gestir í dag: 18
  • IP-tölur í dag: 18

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri fćrslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband