14.3.2016 | 01:50
Hefði hlaupársdagur ekki ...
Hefði hlaupársdagur ekki skotist inn í dagatalið - hefði í dag verið 14. mars. Þann dag í fyrra gekk sunnan fárviðri yfir landið - hárastarveður á mállýsku ritstjóra hungurdiska. Veðrið í dag (ekki alveg jafnútbreitt og í fyrra) var líka hárastarveður. Lítum á myndir - góður dagahittingur.
Þetta er þversnið úr harmonie-líkaninu - það fylgir 23 gráðum vesturlengdar (sjá kortið í horninu) - norður er til hægri á myndinni - gráu fletirnir neðst eru Snæfellsnes og Vestfirðir. Sniðið nær frá sjávarmáli upp í um 10 km hæð. Ljósbleika svæðið sýnir hvar vindur er meiri en 48 m/s, þetta er hes sem hangir niður úr heimskautaröstinni fyrir ofan og teygir sig í átt til jarðar. Við urðum fyrir hesi af þessu tagi 14. mars í fyrra. Fróðleiksfúsir gætu rifjað það upp og litið á pistil með myndum af því (þar eru líka ítarlegri skýringar).
Illviðrið í gær (12. mars) var annarrar ættar - hraðfara lágröst á leið hjá. Lágrastarveðrin eru fjölbreyttari ætt - og bakgrunnur þeirra nokkuð misjafn. Lágröstin er ekki eins öflug og sú hærri - en vindur niður undir jörð var þó ekki mikið minni.
Þetta er sama snið - en kl.13 í gær (12. mars). Hér er vindhámarkið ekki efst í sniðinu heldur niðri í 850 hPa (um 1300 m). Gott dæmi um misjafnt veðraeðli.
En ekki er hægt að láta hjá líða að minnast á hitabylgju dagsins. Hiti fór í 17,6 stig á Siglufirði nú í kvöld og í 10 stig eða meira á 48 stöðvum í byggð (af 107). Siglufjarðarhitinn er landsdægurmet og reyndar hæsti hiti sem nokkru sinni hefur mælst á landinu fyrstu 26 daga marsmánaðar. Þetta er annað landsdægurmetið í mánuðinum - sem þó hefur ekki verið neitt sérlega hlýr, er nú 0,9 stigum ofan meðallags síðustu tíu ára í Reykjavík, en -0,4 undir því á Akureyri.
Þykktin var í kvöld í hæstu hæðum - nærri því hæsta sem vitað er um hér við land í mars.Kortið sýnir spá evrópureiknimiðstöðvarinnar sem gilti kl.18 í kvöld.
Á kortinu er þykktin yfir Norðurlandi meiri en 5520 metrar (þætti gott sumargildi). Í fljótu bragði finnst aðeins ein jafnhá tala í endurgreiningum - 18. mars 1979 (kuldaárið mikla) - í vestanlofti sem komið var yfir Grænland.
Þetta er harla óvenjulegt.
Flokkur: Vísindi og fræði | Facebook
Um bloggið
Hungurdiskar
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 734
- Sl. sólarhring: 817
- Sl. viku: 2529
- Frá upphafi: 2413549
Annað
- Innlit í dag: 687
- Innlit sl. viku: 2287
- Gestir í dag: 673
- IP-tölur í dag: 656
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
Athugasemdir
Hver er þá hitinn það sem af er mánuðinum í beinhörðum tölum?
Annars eru tölur um úrkomumagn einnig vel þegnar, enda hefur rignt mjög mikið síðustu daga þó það sé kannski ekki "harla óvenjulegt" í því rigningarbæli sem höfuðborgarsvæðið er.
Og þó. Fyrir tveimur sólarhringum var úrkoman 122 mm á Nesjavöllum. Orkuveitan hefur þá ekki þurft að dæla miklu vatni ofan í borholurnar sínar.
Torfi Kristján Stefánsson, 14.3.2016 kl. 07:46
Gaman væri að sjá spádóm frá þér Trausti varðandi hitastig á þessu sumri. Hvort þróunin í háloftunum verði svipuð og í fyrra, þegar kuldaboli réð ríkjum þarna uppi sem og þegar neðar dró.
Bjarni Einarsson (IP-tala skráð) 14.3.2016 kl. 11:53
Meðalhiti í Reykjavík er 1,8 stig það sem af er, en -0,5 á Akureyri. Úrkoma á Nesjavöllum er komin upp fyrir meðaltal alls marsmánaðar - en það er eina stöðin sem enn hefur náð því. Mæling þaðan barst ekki í morgun (gæti komið síðar í dag) - en í gær hafði úrkoman þar ekki náð nýju meti fyrir sömu marsdaga (en gæti hafa náð því nú). Vogsósar hafa náð nýju meti - en ekki aðrar stöðvar. Metúrkomuleysi hefur verið á Skeiðsfossi - og óvenjuþurrt er í Eyjafirði (en ekki met).
Trausti Jónsson, 14.3.2016 kl. 12:02
Bjarni - eina spáin sem ég hef séð um sumarið gerir ráð fyrir hita ofan meðallags 1981 til 2010 - norðlægum áttum - en skúrasælu veðri og svalviðri í háloftum. Heldur deyfðarleg spá satt best að segja - en ekki endilega áreiðanleg.
Trausti Jónsson, 14.3.2016 kl. 12:05
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.