Af hlýskeiðasamanburði

Hér er dálítill samanburður á hita í Reykjavík á tímabilinu 1925 til 1946 annars vegar og 1999 til 2015 hins vegar. 

Hiti í Reykjavík 12-mánaða keðjumeðaltal 1925 til 1946 (blátt), 1999 til 2015 (rautt)

Lóðrétti ásinn sýnir ársmeðalhita (reiknaðan 12 sinnum á ári sem 12-mánaða keðjumeðaltal). Grái ferillinn sýnir hitann á tímabilinu 1925 (línan byrjar á meðaltali þess árs) til loka árs 1945, en rauða lína sýnir hita okkar tíma, byrjar í árslok 1999 og nær til loka árs 2015. 

Á fyrra tímabilinu eru sveiflur miklu meiri milli ára heldur en verið hefur á síðustu árum og hiti oft jafnlágur eða lægri en ársmeðalhitinn 2015. Skyldu menn hafa haldið að hlýskeiðinu væri lokið þegar hitinn datt niður vorið 1929 eftir hlýindin miklu þar á undan? Já, sennilega - og þó, fjögur stigin sem ársmeðalhitinn fór þá niður í voru talsvert hærri heldur en venjuleg lágmörk voru fyrir 1920 - það hljóta menn að hafa munað. - Og hlýskeiðið hélt svo áfram langt handan við myndina - allt til 1964. 

En þetta fyrra skeið segir okkur auðvitað ekki neitt um núverandi hlýskeið né framhald þess - við vitum ekkert hvernig það þróast áfram. Hlýskeiðið sem kennt er við fyrri hluta 19. aldar var svo enn brokkgengara - inn í það komu fáein mjög köld ár - en samt hélt það áfram eftir það þar til að það endanlega rann á enda fyrir 1860. 

En hvers vegna var árið 2015 það kaldasta á öldinni hér á landi? 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Kaldi pollurinn í sjónum sv- af landinu?

Gunnar Th. Gunnarsson, 5.1.2016 kl. 02:26

2 identicon

Það er auðvitað spurning hvort hægt sé að tala um hlýskeið þegar svona miklar hitasveiflur eru milli ára. Þú talar t.d. um að "hlý"skeiðið á síðustu öld hafi staðið til 1965. Tölurnar (í Reykjavík) segja þó annað. Hitinn frá 1949 fer sjaldan upp fyrir 5 stigin (aðeins árin 1953, 1956-60, 1964-65). 

Þá finnst mér hæpið að tala um árið 2000 sem hluta af hlýskeiðinu en þá var hitinn aðeins 4,5 stig (í Rvík).

Talandi um það ár, tel ég augljóst að það tilheyri þessari öld en ekki þeirri 20. Þannig er árið 2015 ekki það kaldasta á öldinni heldur árið 2000 (a.m.k. hér í Reykjavík þó svo að tveggjaaukastafatölurnar sé ekki enn komnar!).

Út frá sjónarhóli kólnunarsinnans get ég þó vel unnt þér, Trausti, að tala um síðasta ár sem það kaldasta á öldinni!

Torfi Stefánsson (IP-tala skráð) 5.1.2016 kl. 06:18

3 identicon

Kaldi pollurinn suður af landinu er AMO í neikvæðum fasa, það er eins rökræna skýringin.

Hermundur Sigurðsson (IP-tala skráð) 5.1.2016 kl. 07:06

4 identicon

Skemmtilegur samanburður. Einhversstaðar var haft eftir Páli Bergþórssyni að hlýja tímabilið væri næstum búið. Er hægt að túlka þennan samanburð á þá leið að hlýja tímabilið fyrir og um miðja síðustu öld sé öflugra en það sem er núna? Ef tímabilið núna væri sambærilegt þá ætti hitinn að vera nokkuð hærri að teknu tilliti til hlýnunar vegna gróðurhúsalofttegunda, eða hvað?

Hjalti Þórðarson (IP-tala skráð) 5.1.2016 kl. 10:11

5 identicon

ef mönnum tekst að ráða fullkomlega í veðrið vantar nýtt umræðuefni ef marka má yngva hrafn jónsson stöðvaðist gólfstraumurin um nokkurt skeið í haust veit ekki  hvort rétt er en  gæti skipt máli. harðskjáltin sem varð við haiti 2010. hafði hann einhver áhrif á gólfstraumin en hann hlítur að hafa hrist svolítið upp í straumnum

kristinn geir steindórsson briem (IP-tala skráð) 5.1.2016 kl. 11:16

6 Smámynd: Emil Hannes Valgeirsson

Kaldasta árið á öldinni. Það hljómar eins og árið hafi verið mjög kalt, sem það var ekki. Annars vitum við ekki hversu mörg ár verða kaldari á þessari öld og því væri eiginlega nákvæmara að segja "kaldasta árið af þeim 15 sem liðin eru af öldinni". En eins og Torfi og fleiri þá bíður maður eftir lokastaðfestingu á árshitanum í Reykjavík.

Emil Hannes Valgeirsson, 5.1.2016 kl. 12:51

7 Smámynd: Torfi Kristján Stefánsson

Mér finnst nú 4,5 stig hér í Reykjavík á miðju óðahlýnunartímabili harla kalt. Iss það er ekkert, segja þá sumir og benda á annað verra. Þeir gleyma því hins vegar að þetta gerist á sama tíma og hiti eykst sífellt ár frá ári nær allsstaðar á jörðinni. Kólnunin núna, sem nemur heilli gráðu miðað við síðustu 15 árin eða svo, er meiri en hlýnun jarðar hefur verið frá iðnbyltingu (1750 eða 1800)!!!

Uss, það er ekki neitt!

Torfi Kristján Stefánsson, 5.1.2016 kl. 15:03

8 Smámynd: Emil Hannes Valgeirsson

Nei, hitinn gengur allstaðar í rikkjum og skrikkjum á einstökum stöðum jörðinni eins og í Reykjavík. Köld ár og hlý koma þannig á víxl nánast með tilviljanakenndum hætti nema hvað hlýju árunum fer frekar fjölgandi þannig að meðalhitinn hækkar yfirleitt til lengri tíma. Meðalhiti jarðarinnar í heild eykst með jafnari hætti en þó líka með einhverjum sveiflum á milli ára.

4,5 stig í Reykjavík er kaldara en verið hefur hin síðustu hlýju ár en meðalhitinn hér getur örugglega farið talsvert neðar þrátt fyrir hlýnun jarðar.

Emil Hannes Valgeirsson, 5.1.2016 kl. 15:58

9 Smámynd: Torfi Kristján Stefánsson

Þetta segi Trausti líka - og að undantekningin sanni (staðfesti!) regluna. Eins mætti alveg segja eins og Ágúst H. Bjarnason og fleiri að kuldinn sé hið eðlilega ástand (svo sem undir 5 stigum hér í Rvík) en hlýindin það afbrigðilega - séð í ljósi lengri tíma eða margra alda.

En við getum auðvitað deilt um þetta í nokkur ár eða þar til komin er meiri reynsla á þetta "hlýindatímabil", þe. hvort því lauk 2013 (með 2014 sem undantekninguna sem sannar regluna) eða hvort árin 2013 (4,9 stig) og 2015 (4,5 stig) séu einungis smá hnökrar í vel smurðri vél hlýindanna.

Torfi Kristján Stefánsson, 5.1.2016 kl. 17:02

10 Smámynd: Halldór Jónsson

Íslendingar eru ekki að að standa sig í að leggja meira fram af CO2 til að hita loftslagið hjá okkur. Ísland getur ekki orðið annað en byggilegra ef hér hlýnaði. Þáttaka í AlGore-fræðunum er þjóðaróhollt og þjóðarskömm. Okkur ber að gera allt sem við getum til að hlýja loftslagið og efla útblástur sem mest við megum. Sólin er alveg einfar um að kæla það í fyllingu tímans.Eða svo?

Halldór Jónsson, 5.1.2016 kl. 17:40

11 identicon

Ágæti Torfi.

Árið 2000 tilheyrir vissulega 20. öldinni, eins og ártalið gefur til kynna (20. hundraðið) og ný öld hófst árið 2001.

Til að forðast karp um þetta bendi ég á að það var ekkert ár 0 (núll), heldur var árið sem Kristur fæddist árið 1 eftir Krist og árið áður en hann fæddist árið 1 fyrir Krist. Ég veit að þetta er ekki rökrétt, en það er svosem ekkert rökrétt hvort eð er að byggja tímatal okkar á draugasögu frá Mið-Austurlöndum.

(Þessi áratugur byrjaði líka árið 2011 og honum lýkur 2020 en þú vissir það væntanlega).

Jón Halldórsson (IP-tala skráð) 5.1.2016 kl. 20:40

12 Smámynd: Torfi Kristján Stefánsson

Mikið vildi ég að ég vissi eins mikið en þú Jón en svo er því miður ekki. frown

Ég hef alltaf litið svo á að árið eitt hafi Jesús verið eins ár (þess vegna þetta "eftir Krist(s) burð"). Eins er með allar aðrar tölur. 1. janúar árið 2000 voru þannig tvö árþúsund síðan meistarinn fæddist og þar með lauk 20. öldinni (þar erum við reyndar sammála!). 

Aðrir mynda þá segja (Trausti t.d.?). Við byrjum ekki að telja á núlli heldur á einum.

Rétt er það enda er einn tala sem lokar fyrstu einingunni en byrjar hana ekki. Sama á við 10. Hún lokar tugnum. Síðan byrjar nýr tugur (10-11). Einfalt ekki satt þótt flókið sé?!!

Því er árið 2000 kaldasta ár þessarar aldar hér í Víkinni en ekki 2015 þó aðeins muni sjónarmun (einverri aukastafatölum, sem við Emil bíðum reyndar spenntir eftir að heyra frá Trausta!).

Torfi Kristján Stefánsson, 5.1.2016 kl. 22:37

13 Smámynd: Trausti Jónsson

Meira um sama (hitann í Reykjavík) kemur í næsta pistli hér á eftir.

Trausti Jónsson, 5.1.2016 kl. 22:39

14 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Torfi, eins og þú segir sjáfur, "Sama á við 10. Hún lokar tugnum" ... og þess vegna opnnar 11 næsta tug.

Einfalt, ekki satt? laughing

Gunnar Th. Gunnarsson, 6.1.2016 kl. 00:44

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veðurfræðingur og áhugamaður um veður.

Færsluflokkar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • w-blogg230424
  • Slide10
  • Slide8
  • Slide6
  • Slide5

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.4.): 7
  • Sl. sólarhring: 362
  • Sl. viku: 1832
  • Frá upphafi: 2350568

Annað

  • Innlit í dag: 7
  • Innlit sl. viku: 1635
  • Gestir í dag: 7
  • IP-tölur í dag: 7

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband