Opiđ Atlantshaf

Nú hefur vestanloftinu tekist ađ hreinsa Atlantshafiđ nánast austur úr norđan 50. breiddarstigs. Ţađ hitnar hins vegar fljótt yfir sjónum og til verđa smálćgđir og éljagarđar - auk hefđbundinna éljaflóka (sem viđ kennum viđ útsynning). - Leiđindaveđurlag - ţótt ađalhćttan felist í fyrirgjöf hlýrra lofts ađ sunnan - ţá getur allt orđiđ vitlaust. 

Kortiđ sýnir stöđuna síđdegis miđvikudaginn 2. desember - ađ mati evrópureiknimiđstöđvarinnar. 

w-blogg021215a

Lćgđin sem sá um snjókomuna suđvestan- og vestanlands í dag er vestast á Grćnlandshafi - snjókomubakkinn sjálfur er enn í fullu fjöri á korti ţessu - blátt, mjótt svćđi fyrir norđan land - og lćgđin sem ólmast viđ Norđausturland varđ til síđdegis (á ţriđjudag) og er ţegar ţetta er skrifađ ađ fara norđur međ Austurlandi í örum vexti - međ mjög skćđri vestan- og norđvestanátt í kjölfarinu. 

Nćstu lćgđardrög eru suđvestur í hafi og benda rauđu örvarnar á ţau. Í ţeim tveim nćstu eru éljagarđar - sem spurning er hversu öflugir verđa. Ţegar ţetta er skrifađ (seint á ţriđjudagskvöldi 1. desember) eru óljósar háskýjaslćđur í fylgd međ ţeim - og ţađ bođar ekkert sérstaklega gott - á bilinu 5 til 20 cm gćtu bćst viđ snjóinn međ hvoru lćgđardraginu um sig nái skipulagt úrstreymi í efri hluta veđrahvolfs ađ hjálpa uppstreymi ţví sem verđur óskipulega til yfir hlýjum sjónum.

Lengst í burtu, suđur af Nýfundnalandi er svo nćsta fyrirgjöf af hlýju lofti. Reiknimiđstöđvar eru um ţađ bil ađ ná taki á málinu - og ţađ verđur djúp lćgđ úr ţessu - en viđ vitum ekki enn hvort hún fer fyrir suđaustan land eđa verđur nćrgöngulli. Alla vega verđur fylgjast nördheimar međ af athygli - og auđvitađ vaktin á Veđurstofunni. 


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Um bloggiđ

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veđurfrćđingur og áhugamađur um veđur.

Fćrsluflokkar

Júlí 2024
S M Ţ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30 31      

Nýjustu myndir

  • w-blogg220724b
  • w-blogg220724a
  • w-blogg210724
  • Slide2
  • Slide1

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (27.7.): 17
  • Sl. sólarhring: 427
  • Sl. viku: 2733
  • Frá upphafi: 2378309

Annađ

  • Innlit í dag: 14
  • Innlit sl. viku: 2421
  • Gestir í dag: 14
  • IP-tölur í dag: 14

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri fćrslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband